10.04.1967
Efri deild: 60. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (716)

150. mál, Háskóli Íslands

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég bið hæstv. forseta og hv. dm. afsökunar á því, að ég skuli hafa látið hv. d. bíða eftir mér vegna þessarar framsögu. Ég vona, að öllum sé ljóst, að yfir stóð í hv. Nd. mjög löng atkvgr. um orkulagafrv., sem ég var að taka þátt í.

Þetta frv. er komið frá hv. Nd. og var samþ. þar fyrir skömmu með shlj. atkv. hv. dm., en frv. hafði hlotið einróma meðmæli hv. menntmn. d. Efni frv. er það, að stofna skuli 6 ný prófessorsembætti við Háskóla Íslands. 3 af þessum embættum eru stofnuð skv. þeirri 10 ára áætlun um fjölgun prófessorsembætta við háskólann, sem ríkisstj. samþykkti fyrir nokkru að beita sér fyrir við Alþ., að næði fram að ganga. Hafa áður verið stofnuð nokkur embætti skv. þessari áætlun, en áætlunin gerir ráð fyrir því, að á árinu 196? skyldi stofna 3 ný embætti við háskólann, þ.e.a.s. prófessorsembætti í læknadeild, í lagadeild og í viðskiptadeild. Þá gerir þetta frv. ráð fyrir því að breyta tveimur dósentsembættum í prófessorsembætti, en þessi dósentsembætti eru jafnframt yfirlæknisembætti við Landsspítalann. Og er hér annars vegar um að ræða dósentsembætti í fæðingarhjálp og kvensjúkdómum, en hins vegar í röntgenfræði. Stofnun þessara prófessorsembætta mun ekki hafa í för með sér neina útgjaldaaukningu fyrir ríkissjóð, vegna þess að hlutaðeigandi yfirlæknar, sem jafnframt eru dósentar, hafa þegar sömu laun og þeir myndu fá skv. þessu frv. sem prófessorar og yfirlæknar. Hér er því fyrst og fremst um að ræða breytingu á starfsheiti tveggja yfirlækna og dósenta við Landsspítalann.

Sjötta embættið er stofnun nýs prófessorsembættis í verkfræðideild, og er hér um að ræða embætti prófessors í jarðeðlisfræði og er gert ráð fyrir því, að sá, sem það embætti hlýtur, veiti jafnframt forstöðu rannsóknarstofu í jarðeðlisfræði, sem þegar hefur verið komið á fót við Raunvísindastofnun háskólans, en enginn fastur endanlegur forstöðumaður hefur enn verið ráðinn við hana. Stofnun þessa prófessorsembættis er í nánum tengslum við það, að Gunnar Böðvarsson verkfræðingur, sem nú gegnir prófessorsstöðu í Bandaríkjunum, hefur tjáð sig reiðubúinn til þess að hverfa aftur til Íslands og taka við prófessorsembætti við verkfræðideild háskólans í jarðeðlisfræði, ef slíkt embætti yrði stofnað og jafnframt forstöðu hinnar nýju rannsóknarstofu í jarðeðlisfræði. En það er kunnara en frá þurfi að segja, að prófessor Gunnar Böðvarsson er ekki aðeins einn helzti sérfræðingur íslenzkur í jarðeðlisfræði og einkum að því, er snertir rannsóknir á hverahita og hagnýtingu hans til raforku og annarra þarfa, heldur er hann einn fremsti sérfræðingur veraldar á þessu sviði og hefur gegnt trúnaðarstörfum eða ráðunautsstörfum fyrir alþjóðastofnanir í þessum efnum og starfar nú að þessu við háskóla í Bandaríkjunum. Það yrði íslenzkum vísindum og Íslandi til ótvíræðs gagns, ef prófessor Gunnar kemur aftur til Íslands og helgar íslenzkum verkefnum og vandamálum mikils metna starfskrafta sína og vonir standa til þess, að það muni verða, ef stofnun þessa prófessorsembættis verður ákveðin. Með þessu móti held ég, að ég hafi gert ljóst efni þessa frv. og vildi mjög eindregið mælast til þess við hv. Ed., þótt langt sé liðið á þingtímann, að hún afgreiði frv. og vona, að jafnákveðin samstaða náist um framgang þess hér í þessari hv. d. eins og átti sér stað í hv. Nd.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, áð óska þess, að frv. verði að lokinni þessari 1, umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.