10.04.1967
Efri deild: 60. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (717)
150. mál, Háskóli Íslands
Alfreð Gíslason:
Herra forseti. Ég hef ekki annað en gott að segja um það frv., sem hér liggur fyrir um fjölgun prófessorsembætta, svo og um þá áætlun, sem hæstv. ríkisstj. hefur heitið að beita sér fyrir í þessum efnum og þetta frv. er einn liður í. En það er í sambandi við þetta mál eitt atriði, sem mig langar til þess að fá nokkra skýringu á, ef það væri unnt. í frv. er gert ráð fyrir fjölgun prófessora í lögfræðideild um einn, þannig að þeir verði 6. Á þinginu í fyrra var einnig samþ. fjölgun prófessora í lagadeild um einn, þannig að þá var þeim fjölgað upp í 5. Með frv. því, sem hæstv. ríkisstj. lagði þá fram, fylgdi grg., m.a. frá þeirri n., sem undirbjó frv., og þar var okkur alþm. ótvírætt sagt, að hina mestu nauðsyn bæri til stofnunar nýs prófessorsembættis í lagadeild, 5. embættisins, því að það væri knýjandi nauðsyn að fá til lagadeildar prófessor í réttarsögu. Það er tekið fram í grg., að þetta eina prófessorsembætti í lagadeild skuli vera í réttarsögu. Þar er ennfremur, í mörgum fögrum orðum, talað um brýna og knýjandi nauðsyn á því, að að lagadeildinni fáist einmitt prófessor í réttarsögu. Þar segir svo m: a., með leyfi hæstv. forseta:
„Um nauðsyn á prófessorsembætti í réttarsögu hefur lengi verið rætt og raunar hefur það borið á góma í umr. á Alþ. Íslenzk réttarsaga er óplægður akur. Þar er feykilega mikið verk óunnið. Enn fremur segir svo í grg:, með leyfi hæstv. forseta: „Er nú svo komið, að víða er skarð fyrir skildi í almennri, íslenzkri sagnfræði sakir skorts á rannsóknum í íslenzkri réttarsögu. Er það mjög miður, þar sem íslenzk réttarsaga er mjög mikilvægt rannsóknarefni. Íslenzk lög þjóðveldisaldar eru að sínu leyti jafndýrmætur fjársjóður sem fornbókmenntirnar og eru þau meðal helztu andlegra stórvirkja norrænna manna, og ýmsir telja það lagaverk sambærilegt við rómverska réttarskipun. Það er brýn menningarleg skylda Íslendinga að búa fræðimönnum rannsóknaraðstöðu í réttarsögu, og verður það meðal helztu verkefna prófessors í réttarsögu, auk almennra rannsókna, að hlutast til um að kynna lögskipan þjóðveldis fyrir erlendum fræðimönnum og að fást við útgáfur á lögum þjóðveldisaldar á erlendu máli.“
Hér fer ekki á milli mála, að alþm. eru hvattir til að samþykkja fjölgun um einn prófessor í lögfræði vegna þessa máls eingöngu eða vegna þessa máls fyrst og fremst. Þar segir einnig:
„Háskólaráð hefur sýnt mikinn skilning á nauðsyn á prófessorsembætti í réttarsögu með því að skipa þessu embætti í röð hinna fyrstu embætta, er það óskar nú lögfestingar á.“
Lögfestingin fékkst í fyrra, en mér er spurn: Er það ekki rétt hjá mér, að þetta prófessorsembætti hafi verið auglýst og það sé búið að veita án þess að setja nokkur skilyrði um, að viðkomandi prófessor sé sérfróður í réttarsögu? Og ef svo er, verð ég að svo stöddu að víta slíkt, með því að prófessorsembættið í fyrra, sem hér er um að ræða, var af Alþ. veitt til þess arna og ekki annars.