27.02.1967
Neðri deild: 46. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 998 í B-deild Alþingistíðinda. (733)
94. mál, jarðeignasjóður ríkisins
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég er dálítið hissa á því, að hæstv. landbrh. skuli hafa á móti því, að þetta stóra mál verði sent búnaðarþingi til umsagnar, úr því að það er hér að störfum. Það kom fram í setningarræðu form. Búnaðarfélagsins, að Búnaðarfélagið hefði ekki verið kvatt til að eiga hlut að samningu frv. Það hefur engan mann tilnefnt til þess. Mér finnst alveg sjálfsagt, að búnaðarþingi verði gefinn kostur á að segja álit sitt á því, og ég legg áherzlu á það, að við fáum að heyra þess álit hér í Nd., áður en málið fer út úr þessari d., því að okkur gefst e.t.v. ekki kostur á því að fjalla um það meira, eftir að það er komið til hv. Ed. Og það er engin hætta á því, að það vinnist ekki nægur tími til að afgreiða málíð á þessu þingi, þó að beðið verði í fáeina daga eftir áliti búnaðarþings, beðið með afgreiðslu málsins hér út úr þessari hv. þd. Ég vil sem sagt, eins og ég hef áður sagt, leggja áherzlu á það, að þetta mál verði nú þegar sent búnaðarþingi og óskað eftir umsögn þess, svo fljótt sem það mögulega getur látið hana í té.