21.03.1967
Neðri deild: 57. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (747)
94. mál, jarðeignasjóður ríkisins
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð, og mætti þá byrja á hv. síðasta ræðumanni, sem lagði til, að 13. gr. frv. væri felld úr gildi, vegna þess að l. um Jarðakaupasjóð frá 1936 væru engum til meins, þó að þau væru látin halda gildi sínu. Þetta held ég, að sé alveg rétt, ég hygg, að það verði engum til meins, en engum heldur til gagns, vegna þess að þessi lög hafa verið óvirk núna í áratugi, og það er gerð grein fyrir því á fskj. með frv., hvers vegna lagt er til að fella þessi l. úr gildi. Segir hér orðrétt, með leyfi hæstv. forseta, um 13. gr.: „Rétt þykir að fella niður með l. þessum l. nr. 92 frá 1936, um Jarðakaupasjóð ríkisins.“ Og hvers vegna? Engin jarðakaup hafa um langt árabil farið fram skv. þeim l., enda l. miðuð við tímabundnar aðstæður. Gögn Jarðakaupasjóðs eru í vörzlu jarðeignadeildar landbrn., og með jarðir, sem keyptar voru af Jarðakaupasjóði, er farið eins og aðrar þjóðjarðir. Eignir Jarðakaupasjóðs þar fyrir utan eru ekki aðrar en nokkur fjárhæð í sparisjóðsbók, aðeins nokkur fjárhæð, og þykir rétt, að hún renni í Jarðeignasjóð.
Það er enginn vafi á því, að það er tilgangslaust að hafa þessi l. lengur í gildi, vegna þess að þau eru óvirk. Ríkið hefur á undanförnum áratugum ekki treyst sér til að leggja til fé til að kaupa jarðir. Og það er rétt, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði hér áðan, að ef þessi l. verða felld úr gildi nú, gæti það orðið síðar, að eitthvað í þá átt, sem gömlu l. hafa að geyma, yrði aftur lögfest. Þetta er rétt, þetta gæti orðið. Það er vitanlega á valdi Alþ. hverju sinni að breyta l. En það er tilgangslaust að hafa í gildi dauðan lagabókstaf, sem ekki hefur verið virkur, vegna þess að það hefur ekki þótt ástæða til að notfæra sér l., og ég held, að það sé hreinn skrípaleikur að vera að hafa tvo jarðeignasjóði að nafninu til.
Með því frv., sem nú er ætlað að lögfesta um Jarðeignasjóð ríkisins, er gert ráð fyrir árlegu framlagi frá ríkíssjóði í 6 ár, til þess að l. geti orðið virk, og það er einnig gert ráð fyrir heimild til lántöku eða skuldabréfasölu til þess að auka það fjármagn, sem Jarðeignasjóður hefur undir höndum. Þess vegna verða þessi l. ekki aðeins pappírsgagn, eins og gömlu l., og það er vitanlega miklu betra. Og ég held, að það sé rétt að stuðla að því, að þau l., sem eru afgr. hér frá hv. Alþ., séu gerð virk, og ég hélt, að hann væri alveg úreltur og kæmi ekki fram hér á hv. Alþ., sá gamaldags hugsunarháttur, að halda í þessu gömlu l., sem eru alveg ónýt.
Það var allt öðruvísi, sem hv. flokksbróðir hv. 1. þm. Norðurl. v. hugsaði í gær, þegar hann beinlínis kom hér upp í ræðustólinn til þess að gera aths. við það, hvort gömlu l. um búreikningaskrifstofuna yrðu ekki felld úr gildi, um leið og ný lög um það efni væru samþ. Sú aths. var vitanlega alveg rétt og í samræmi við það, sem við erum að byggja upp. En hv. 1. þm. Norðurl. v. vill halda í þessi l. frá 1936, þótt viðurkennt sé af flestum, að þau séu gagnslaus og ónýt og hafi ekki verið virk um áratugi. Hv. þm. var að tala um það, að bændur græddu ekki á jarðasölu nú, og ég hugsa, að það sé rétt. Það hefur oft verið erfitt að selja jarðir, og þær renna ekki út núna frekar en áður, en þó er það nú svo, að þær jarðir, sem eru vel í sveit settar og góðar til búrekstrar; hafa nú selzt, og það hafa orðið ábúendaskipti á þeim, enda er l. um Jarðeignasjóð ríkisins ætlað að ná til þeirra jarða, sem eru lítt seljanlegar, vegna þess að þær eru ekki vel byggilegar og ekki vel í sveit settar.
Ég held, að hv. þm. hafi ekki talað um, að það væri aðeins núna erfitt að selja ýmsar jarðir í sveitinni. Ég held, að hann hafi ekki sagt, að það hafi alltaf verið ósköp auðvelt áður, t.d. áður en núverandi ríkisstj. komst til valda, en hann sagði: „Nú fást engin bústofnslán.“ Af því mátti draga, að bústofnslán hefðu fengizt áður. En það hefur oft verið rætt um, að það væri nauðsynlegt fyrir bændur og sérstaklega fyrir þá, sem eru að byrja búskap, að fá bústofnslán. Það hefur strandað á tvennu, það hefur oftast vantað fjármagn, og einnig hitt, að bústofninn hefur ekki verið talinn veðhæfur, lánastofnanir hafa ekki viljað lána út á bústofninn, viljað hafa eitthvert bakveð að auki, á þessu hefur þetta alltaf strandað. Það var talað um, að veðdeildin sé nú févana, það er eins og hún hafi alltaf áður haft fé, jafnvel þó að hún hafi ekki getað lánað nema 600 þús. á ári. Veðdeild Búnaðarbankans hefur þó fengið meira fé undanfarið en oft áður, og á þessu ári fær hún 20 millj. kr., og er það mesta framlag, sem þessi stofnun hefur fengið á einu ári. Um veðdeild Búnaðarbankans höfum við oft rætt hér á hv. Alþ., og mér finnst, að við eigum að ræða um hana eins og önnur mál, alveg af raunsæi, en ekki með einhverri tæpitungu og reyna að láta líta út sem þetta sé eitthvað verra nú en það hefur áður verið. Sannleikurinn er sá, að það er þegar byrjað að byggja veðdeild Búnaðarbankans upp, en ég skal fúslega viðurkenna, að vegna þess, hve verksvið deildarinnar er víðtækt og mikið, þarf hér meira til, og það þarf meira til til að tryggja rekstrargrundvöll hennar, svo að hún geti innt af hendi það mikilvæga hlutverk, sem henni er ætlað. En ekki meira um það, og tæplega ástæða til að fara nánar út í það, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði hér áðan.
En hv. flokksbróðir hans, hv. 3. þm. Vestf., talaði hér mikið um 4. gr. frv. og vildi afnema ákvæðið, þar sem kveðið er á um það, að kaupverð jarða megi ekki fara yfir fasteignamat, eins og stendur í gr. Hv. þm. talaði um, að ýmsar jarðir fyrir vestan væru í fasteignamati frá 3 þús. og upp í 12 þús. Það er vitanlega gamla matið, en nú kemur nýtt mat og það er alveg vitað, að það mun stórhækka. Og það er nýja matið, sem á að miða við, þegar jarðirnar verða keyptar: Jarðir, sem eru í gamla fasteignamatinu aðeins 3 þús. kr. virði, og jafnvel þó að þær séu 12 þús. kr. virði, hljóta að vera ákaflega litlar, það hljóta að vera ákaflega litlar byggingar og mannvirki á þeim jörðum, og af því leiðir, að það getur tæplega hvílt hátt lán á slíkri jörð, eins og hv. 3. þm. Vestf. var að tala um hér áðan, að það væri ef til vill ómögulegt fyrir Jarðeignasjóð að kaupa jörð, sem hvíldi lán á, vegna þess að fasteignamatið væri svo lágt, og kaupverðið mætti ekki fara, upp fyrir það. En ég ætla, að þar sem mannvirki hafa verið gerð að verulegu leyti, byggð hús og annað þess konar, hafi farið fram millimat og ef fasteignamatið er svona lágt, eins og þm. talaði um, hlýtur að vera ákaflega lítið að kaupa, lítið að veðsetja og þá um leið lágt lán á slíkri jörð. Þetta held ég hljóti að vera. En það, sem þessum l. er ætlað að gera, er að kaupa jarðir, afskekktar jarðir, sem ekki eru hæfar til búrekstrar, þannig að þeir, sem eiga þær, þurfi ekki að standa uppi slyppir og snauðir. Og nýja fasteignamatið hlýtur að verða miðað við það verðmæti, sem á jörðinni er, og það er vitanlega ætlazt til, að það verði höfð hliðsjón af því. Mig minnir, að í reglugerð, sem fasteignamatsnefndirnar vinna eftir, sé kveðið svo á, að það eigi að hafa hliðsjón af því, sem lagt hefur verið í jarðirnar, ræktun, byggingar, girðingar og annað slíkt, og þá hlýtur fasteignamatið að verða að mestu í samræmi við þau verðmæti, sem á jörðinni eru, enda þótt fasteignamatsnefndin eigi líka að taka að einhverju leyti tillit til líklegs söluverðs.
Ég held, að þessi brtt. hv. 3. þm. Vestf. eigi ekki rétt á sér, og ég vil taka það fram, að frv. hefur fengið rækilega endurskoðun á búnaðarþingi. Frv. var samið af n., sem athugaði þetta mál mjög rækilega, og í þeirri n. voru ekki aðeins fulltrúar, heldur forustumenn bændanna (Gripið fram í.) og þeir hafa áreiðanlega gert sér grein fyrir því, hvað hér var um að ræða. Ég held, að það sé ákaflega mikilvægt, að l. um Jarðeignasjóð verði þannig virk, að það sé hægt skv. þeim að kaupa jarðir á sannvirði og tryggja eigendum þeirra, sem annars hefðu kannske orðið að fara frá jörðunum, án þess að geta selt, sannvirði og kannske að mestu það fjármagn, sem þeir hafa lagt í jörðina. Það er þetta, sem l. um Jarðeignasjóð er ætlað að gera.
Ég tel, að brtt., sem hv. landbn. flytur, og þær munu vera komnar frá búnaðarþingi flestar, séu sumar hverjar til nokkurra bóta, engin þeirra spillir málinu. Sumar þessar brtt. mætti þó telja óþarfar, t.d. þá, sem fjallar um útsvarsskyldu af landi. Það verða allir að borga útsvar af landi, sem þeir eiga, vegna þess að hreppsnefndirnar leggja útsvarsskyldu á ábúendur og jarðeigendur. Það er viss hundraðshluti af fjallskilakostnaðinum af fasteignum í hreppnum og viss hundraðshluti af fjáreigninni, þannig að enda þótt þetta væri ekki orðað svona í till., væri skylt að taka þátt í fjallskilakostnaðinum.
Herra forseti. Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fara fleiri orðum um þetta. Ég vil þakka hv. landbn. fyrir góða afgreiðslu á málinu og vona, að það fái góðan framgang.