05.04.1967
Neðri deild: 59. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1011 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

94. mál, jarðeignasjóður ríkisins

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Það voru aðeins nokkur orð, sem ég vildi segja til stuðnings þeirri till., sem flutt er á þskj. 299, af hv. 3. þm. Vestf., sem gengur út á að afnema það ákvæði í 4. gr., að það skuli ekki mega kaupa jörð á hærra verði en fasteignamat segir til. Hv. þm. nefndi nokkur dæmi um, hvernig jarðir væru metnar, þar sem hann þekkti til, og kom í ljós, að í einum hreppi var meðalverð jarða eftir fasteignamatinu gamla um 6 þús. kr. Það er að vísu vitað, að við nýja fasteignamatið verður mjög mikil breyting þarna víða á, en ekki er þó að vita, að hún verði sérstaklega mikil á þeim jörðum, sem afskekktastar eru og líklegastar til að fara í eyði. En jafnvel þó að verð kynni að tífaldast á slíkum jörðum, þá er þarna ekki um hátt verð að ræða. Ég álít óþolandi, að það sé verið að binda ríkið við það að mega ekki kaupa jarðir á hærra verði en fasteignamatsverðinu, jafnvel þótt miðað sé við það nýja.

Við skulum í þessu sambandi athuga ofurlítið það mat, sem við viljum leggja á vinnu og vinnuverðmæti annars vegar og brask eða braskverðmæti hins vegar. Við skulum athuga, hvort það væri ekki ástæða til að koma einhverri réttlætishugmynd að í sambandi við það mat og það verð, sem lagt er á jarðir þeirra bænda, sem eru að flosna upp eða vilja yfirgefa sínar jarðir, og hvort það sé rétt af okkur að miða alltaf einvörðungu við markaðsverð og sölumöguleika. Ef lóðareigandi hér í Reykjavík selur lóð, sem hann hefur aldrei gert neitt fyrir, aldrei unnið neitt að, aldrei hjálpað til á nokkurn hátt að gera hana verðmætari, þá er slík lóð seld, t.d. ef hún er nærri okkur í miðbænum, á 10–20 millj. kr. Það er einvörðungu þjóðfélagið sjálft, sem hefur skapað þetta verðmæti með aðgerðum sínum. Sjálfur hefur maðurinn ekkert gert. Tökum svo hins vegar bónda, sem hefur þrælað allt sitt líf og sett allt sitt vinnuafl og kannske sinnar fjölskyldu í jörðina. Þegar á að fara að selja hans jörð, þá er hún kannske metin á 5–10 þús. eða kannske 50 eða 100 þús., og þá á að banna með lögum, að ríkið borgi hærra verð fyrir. Það er vitað, að þær jarðir, sem ríkið kaupir núna, verða eftir eina eða tvær kynslóðir mjög mikils virði. Og spurningin er aðeins, hvort við viljum sýna eitthvert réttlæti þeim mönnum, sem hafa lagt verk sinna handa í þetta allt sitt líf. Annars eiga viðkomandi hjón, sem máske eru orðin gömul, það á hættu, ef farið er eftir fasteignamatsverði, að sjá raunverulega allt, sem þau hafa unnið, fara fyrir gýg, á sama tíma sem það tíðkast og er algengur viðburður hér í Reykjavík, að menn, sem aldrei hafa snert á að gera nokkurn skapaðan hlut til þess að gera sína lóð dýrmætari, fái 10–20 milljónir króna fyrir hana. Svona er ekki hægt að fara að í þjóðfélagi, sem vill á einhvern hátt taka tillit til réttlætis og ekki bara láta allt vera á boðstólum fyrir fé og meta allt til fjár.

Hins vegar vitum við, að ef jörð er að fara í eyði og bóndinn að fara burt af henni og það skyldi vera þar einhver lækjarspræna, þar sem einhver silungur, ég tala nú ekki um lax, veiddist í, þá er viðkomandi jörð undireins komin upp í 800–900 þús. eða 1 millj. og einhver og einhver burgeis í Reykjavík, sem kannske borgar ekki einu sinni útsvar, er reiðubúinn að snara út milljóninni fyrir að fá að kaupa lækinn til þess að skemmta sér við hann stundum á sumrin, þó að jörðin sjálf fái að fara í eyði.

Ég held, að Alþ. eigi að reyna að sjá til þess, að vinna manna og framlag til þjóðfélagsins sé ekki metið á þennan máta. Ég held þess vegna, að við eigum að samþ. þessa till. á þskj. 299 og leggja það undir mat viðkomandi n. og síðan auðvitað hæstv. ríkisstj. sjálfrar, hvaða verð sé rétt að gjalda því fólki, sem er að yfirgefa sínar jarðir. Það hefði verið skynsamlegt og átt að gerast fyrir löngu að setja verðhækkunarskatt á lóðirnar í kaupstöðunum, eins og Reykjavík og taka þannig það verð, sem þjóðfélagið sjálft skapar með sínum aðgerðum, til þjóðfélagsins aftur. Þá hefði líka verið hægt að nota það fé til þess m.a., að borga þeim bændum, sem hafa lagt alla vinnu lífs síns í að gera sínum jörðum til góða, sæmilega fyrir þær, þegar þeir fara.

Vegna þróunar þjóðfélagsins er bóndinn að tapa eign sinni ú sama tíma sem aðrir menn græða milljónatugi á þessari sömu þróun. Þarna hefur Alþ. vald til þess að skapa eitthvert réttlæti. Ég held þess vegna, að hv. d. gerði mjög rétt í því að samþ. brtt. á þskj. 299. Ég trúi því ekki, að það sé álit hæstv. ríkisstj., að allir þm. hennar séu skuldbundnir til þess að drepa alltaf allar brtt., sem koma fram frá einhverjum í stjórnarandstöðunni, og heilbrigð skynsemi og réttlætistilfinning megi aldrei komast að, svo framarlega sem um till. frá stjórnarandstæðingi er að ræða. Ég vil þess vegna leyfa mér að vonast til þess, að þessi till. geti náð fram að ganga. Það er sú minnsta sanngirni, sem Alþ. getur sýnt í máli eins og þessu.