14.04.1967
Efri deild: 65. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (765)

94. mál, jarðeignasjóður ríkisins

Frsm. (Bjartmar Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er 3. frv. um landbúnaðarmál, sem væntanlega verður samþ. á þessu þingi, l. um Framleiðnisjóð og l. um búreikningaskrifstofu hafa áður verið afgr. Öll þessi lagafrv. eiga að stuðla að hagkvæmari búrekstri, þegar á heildina er litið, og létta róður þeirra bænda, sem verst eru settir. Búreikningaskrifstofan á á þann hátt að finna tölulega, hvaða búgreinar henti bezt við mismunandi aðstæður og um leið hvað kosti raunverulega að framleiða búvörur, þegar meðaltal er tekið. Framleiðnisjóðurinn er myndaður af 50 millj. kr. framlagi á 4 árum og á að þjóna því hlutverki að styrkja rannsóknir og framkvæmdir, er miða að lækkun framleiðslukostnaðar á búvörum, stuðla að nauðsynlegum breytingum á framleiðslunni, veita lán og styrki til vinnslustöðva búnaðarvöru, ræktunarsambanda, vísindastofnana og einstakra manna.

Í 3. lagi er svo frv. það, sem hér liggur fyrir um Jarðeignasjóð. Stofnframlag sjóðsins er 36 millj. kr. eða 6 millj. kr. á ári í 6 ár. Á öllum tímum landsbyggðarinnar hafa bújarðir verið að fara í eyði suma tíma, en byggzt aftur aðra tíma. Næstliðna áratugi hafa mörg byggðarlög og einstakir bæir farið þessa leið og hafa eigendur þeirra jarða tíðast gengið slyppir frá eignum sínum. Jarðeignasjóði er ætlað að koma þeim til hjálpar, sem hér eftir verða að yfirgefa jarðir, sem ekki teljast búrekstrarhæfar, vegna þess hversu þær eru illa í sveit settar, með því að kaupa þær fyrir matsverð. Honum er einnig ætlað að kaupa jarðir, þótt vel séu í sveit settar, ef þær eru svo landlitlar eða snauðar að ræktanlegu landi, að þar teljist ekki vera hægt að stunda lífvænlegan búskap. Fleiri verkefni eru þessum sjóði ætluð skv. frv. Hér er þó ekki um neins konar valdboð að ræða, heldur heimildir eftir samkomulagi við hlutaðeigandi bændur, sem þannig stendur á fyrir, og sitja á því jarðnæði, sem ég drap á áðan.

Frv. þessi varðandi landbúnaðinn eru öll gerð í samráði við stéttarfélög bænda og allt eru þetta stjórnarfrv. Ég tel, að öll þessi frv. og ný lagaákvæði horfi til bóta, bæði fyrir bændastéttina og einnig landið eða þjóðina í heild, ef vel tekst um stjórn þessara mála hjá þeim mönnum, sem framkvæmdir hafa með höndum.

Um leið er vert að fagna því, að góð samvinna hefur í seinni tíð yfirleitt tekizt milli fulltrúa stéttarsamtaka bændanna og ríkisvaldsins, eða nánar tiltekið landbrn., um ýmis mál. En um leið og ég mæli með þessu frv., vil ég benda á, að mjög gætilega þarf að fara í sakirnar, ef leggja þarf niður búrekstur á jörðum. Byggðarlög eru háð því lögmáli, sem alls staðar gildir, að annaðhvort miðar þar aftur á bak ellegar nokkuð á leið. Fækki fólki í byggðarlögum, er vá fyrir dyrum. Ekkert byggðarlag þolir teljandi grisjun, nema til komi annað í skörðin. En í sveitum má stunda margt annað en okkar algengustu bústörf og búvöruframleiðslu og á þann veg eiga sveitabyggðirnar að dafna og eflast, þótt lélegustu jarðir hætti að vera bújarðir. En þetta er mál út af fyrir sig og stórmál, sem enn hefur verið of lítill gaumur gefinn. Ég sé ekki ástæðu til að ræða þetta mál meira hér, það er miklu yfirgripsmeira en svo, að hér sé staður eða stund til þess, en endurtek að landbn. hefur mælt með, að þetta frv. verði samþ., en einstakir nm. skrifuðu þó undir frv. þetta með fyrirvara og hafa flutt brtt. við það á sérstöku þskj., og verður að sjálfsögðu gerð grein fyrir þeim af flutningsmönnum.