09.03.1967
Neðri deild: 51. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (780)
111. mál, ríkisreikningurinn 1965
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Í umr. þeim, sem hafa farið hér fram á hv. Alþ. í sambandi við fjárlagaafgreiðslu, hef ég fyrir hönd Framsfl. í framsögu lýst þeim viðhorfum, sem Framsfl. hefur til fjármálastjórnar núv. hæstv. ríkisstj., og gert aths. við þau vinnubrögð, sem ég hef talið þar athugasemdar verð. Af þeirri ástæðu hef ég fylgt þeirri reglu, og við aðrir, sem höfum unnið að endurskoðun ríkisreikningsins nú s.l. tvö ár, að vera ekki með neitt pólitískt nart í þeirri afgreiðslu okkar, enda höfum við allir afgreitt þær aths. sameiginlega, sem þar hafa komið fram.
Þetta vildi ég taka fram, vegna þess að eldri reikningar sýna önnur vinnubrögð í þessum efnum. En ég vil í sambandi við ríkisreikninginn nú víkja aðeins nokkrum orðum að þeim atriðum, sem ég tel, að þurfi mestrar athugunar við eftirleiðis og undirstrika það, sem ég sagði áðan, að hér er ekki um pólitískt mál að ræða, heldur almenn atriði, er varða rekstur ríkisins. Í sambandi við umframgreiðslur þær, sem fram fóru á s.l. ári, þá hafa þær verið skýrðar í reikningnum. Það eina, sem ekki hefur verið þar til umr., er, eins og venja er, alþingiskostnaðurinn, en hann fór verulega fram úr áætlun á þessu ári. Ástæðan til þess, að svo varð, var m.a. sú breyting, sem gerð var, þegar Alþ. tók á leigu Þórshamar og lét innrétta það hús til nefndarstarfa fyrir Alþ. Ég vil líka taka það fram, að inni í þessari tölu um alþingiskostnað er kostnaður við Norðurlandaráð og starfsemi Íslendinga í því ráði, sem mun vera um 1.7 millj. kr.
Við yfirskoðunarmenn gerðum við síðasta reikning og aftur nú aths. m.a. í sambandi við skil hjá hinum ýmsu innheimtumönnum ríkissjóðs. Það má segja um þau, að þau séu yfirleitt góð, en nokkur embætti voru þar mjög aftarlega í skilum og það svo, að athygli vekur. Nokkur breyting varð á þessu, meira var útistandandi við árslok 1965 en 1964, sem stafaði af því, að ríkisreikningi var lokað nákvæmlega 31. desember 1965, en svo hafði ekki verið árið áður og það því talið útistandandi, er þá lá hjá embættunum af innheimtufé og ekki hafði verið skilað inn til ríkisféhirðis. En það kom hins vegar í ljós, að nokkur embætti lágu með yfir 60% af ársinnheimtunni. Eitt embætti lá með um 67% af ársinnheimtunni. Það embætti hafði einnig legið með álíka háan hluta af innheimtunni árið áður og á þessu vildum við vekja athygli, hvort hér væri um eðlilega afgreiðslu að ræða og hvernig stæði á því, að þetta embætti væri svo seint á ferðinni og þau, sem við þar greinum í okkar aths., frekar en önnur. Við viljum undirstrika það, að hér er um óeðlilega tölu að ræða, þar sem mörg af embættunum voru búin að skila allt upp í 70%, eða þar yfir, af sinni innheimtu og hliðstæð embætti 60–70%, þó að það sé vitað, að mikið falli til af innheimtu einmitt á síðasta mánuði ársins og í kringum áramótin.
Í öðru lagi gerðum við aths. í sambandi við rekstur ríkisútvarpsins og innheimtu hjá ríkisútvarpinu. Árið 1964 kom í ljós, að yfir 20% af afnotagjöldum ríkisútvarpsins voru óinnheimt í árslok. Þetta hafði aukizt á árinu 1965, þrátt fyrir þá aths., sem við höfðum þá gert við þetta, og við töldum, að hér væri verið að telja til eignar fjármuni, sem án efa verður að einhverju leyti að afskrifa. Okkur finnst, að innheimta ríkisútvarpsins sé með þeim hætti, að óeðlilegt sé, að 20–25% af afnotagjöldum ríkísútvarpsins séu óinnheimt í árslok. Rekstur ríkisútvarpsins gekk erfiðlega á árinu 1965, varð hallarekstur og það hlýtur að verða ennþá fráleitara, þegar innheimtan gengur einnig svo illa sem raun ber vitni um.
Þá viljum við vekja athygli á því, í sambandi við rekstur Ferðaskrifstofu ríkisins, að eignir stofnunarinnar hjá viðskiptamönnum hennar höfðu verulega aukizt á árinu. Í svari, sem ferðaskrifstofan gaf við aths. um þetta, eða viðskmrn. fyrir hennar hönd, kemur í ljós, að ferðaskrifstofan telur sér til eignar ýmsa hluti viðkomandi hótelrekstri sínum í skólum landsins. Ferðaskrifstofan hefur undanfarin sumur annazt hótelrekstur í ýmsum skólum, og hefur hún lagt þessum skólum til húsgögn og fleiri muni, sem að þeirra dómi hafa verið látnir þeim í té upp í endurgjald af húsnæði. Og þar sem ég þekki til, hafa þessar skólastofnanir talið, að þær ættu þessi húsgögn sem leigugjald eftir skólahúsnæðið, sem látið væri í té fyrir þennan rekstur ferðaskrifstofunnar. Nú kemur það hins vegar í ljós, að ferðaskrifstofan telur sig eiga þarna eignir í þessum stofnunum, og enn fremur höfum við uppfært á eignareikning ferðaskrifstofunnar halla af rekstri þeirra hótela, sem halli varð á. Nú er það skoðun okkar, er unnum að yfirskoðun ríkisreikningsins, að hér geti ekki orðið um eign að ræða. Þennan hallarekstur, sem þarna hefur átt sér stað, verði að afskrifa eða færa sem tapaðan pening nú þegar, því að það séu engar líkur til, að það batni, þó að rekstrinum verði haldið áfram. Á þessu viljum við vekja athygli, af því að við teljum, að hér sé ekki stefnt í rétta átt.
Þá gerðum við aths. við það, að á vegum ríkisins höfðu verið veitt ýmis embættislán, sem höfðu færzt nokkuð í aukana á árinu 1965. Við spurðumst fyrir um það, hvort um þessi lán væru fastar reglur, og í aths. við ríkisreikninginn svarar rn. því til, að hér hafi verið um að ræða lán til stutts tíma, sem hafi svo verið endurgreidd af kaupi viðkomandi starfsmanna. Þessi lán voru vaxtalaus, en rn. tekur undir þessa aths. og telur, að því sé hætt að veita þessi lán og teljum við það eðlilegt.
Eins og ég gat um í upphafi máls míns, ætlaði ég ekki að fara hér út í pólitískar deilur í sambandi við ríkisreikninginn, því að það hef ég gert á öðrum vettvangi. En þar sem þessi ríkisreikningur var með öðrum hætti að því leyti, að loka varð reikningnum 31. desember, eins og ég áðan sagði og ekki er á honum að finna greiðsluyfirlit ríkissjóðs, vildi ég leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh., hvort það mundi ekki vera rétt hjá mér, að greiðsluhallinn hefði verið um 90 millj. á árinu 1965. Ég tel mig hafa fundið það út úr ræðu hans og upplýsingum, en af því að það er ekki tekið fram í reikningnum, vildi ég biðja hann að segja d. frá því.