14.04.1967
Neðri deild: 66. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (823)
35. mál, bátaábyrgðarfélög
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er komið til þessarar hv. d. frá Ed., þar sem það hefur hlotið, afgreiðslu með nokkrum breyt. En þetta frv. er reyndar gamall kunningi hv. d. Það lá fyrir þessari d. á s.l. ári. Tildrög þess, að frv. er samið, munu vera þau, að á aðalfundi Landssambands ísl. útvegsmanna í nóv. 1964 var gerð svohljóðandi ályktun:
„Aðalfundur L.Í.Ú. haldinn 26.–28. nóv. telur, að ekki megi lengur dragast að setja ný lög um vátryggingafélög fyrir fiskiskip, þar sem gildandi lög eru fyrir löngu orðin úrelt og á margan hátt ógerlegt að starfa eftir þeim. Fundurinn telur æskilegt, að skyldutrygging fiskiskipa verði miðuð við allt að 400 rúml. brúttó og bátaábyrgðarfélögin verði efld frá því, sem nú er, og verksvið þeirra fært út þannig, að þau annist allar tryggingar fyrir fiskiskipaflotann. Það er álit fundarins, að stjórn Samábyrgðar Íslands eða Sambands bátaábyrgðarfélaganna eigi að vera í höndum útvegsmanna sjálfra að verulegu leyti, en telur eðlilegt, að ríkisvaldið eigi þar einnig sinn fulltrúa. Fundurinn skorar á sjútvmrh. að leggja fram á Alþ. því, sem nú situr; frv. til l. um vátryggingafélög fyrir fiskiskip.“
Þannig hljóðaði samþ. L.Í.Ú. 1964, sem var upphaf þess, að þetta frv. var samið. Eitt meginatriðið í þeirri ályktun er það, að stærðarmark þeirra skipa, sem tryggð skulu hjá bátaábyrgðarfélögunum, skuli hækka úr 100 rúml. brúttó í 400 rúmlestir og við það er frv. miðað. Það kom hins vegar í ljós, þegar þetta frv. var til meðferðar í sjútvn. d. á s.l. ári, að frá því í nóv. 1964 var afstaða L.Í.Ú., og þar með meginþorra þeirra aðila, sem þarna eiga mestra hagsmuna að gæta, orðin mjög á annan veg en fram kom í þeirri ályktun, sem ég las upp áðan. Á aðalfundi L.Í.Ú. 1965 var gerð svohljóðandi ályktun, með leyfi hæstv. forseta:
„Aðalfundur L.Í.Ú. telur, að frv. til l., sem nú liggja fyrir Alþ. og send hafa verið samtökunum til umsagnar, um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum og um bátaábyrgðarfélög, þurfi frekari athugunar við en hægt er að gera á þeim skamma tíma, sem aðalfundur stendur yfir. Þess vegna samþ. fundurinn að kjósa þriggja manna n, til þess að semja umsögn um bæði frv., og skal n. hafa samráð við stjórn samtakanna um efni hennar, áður en hún er send Alþ. Þó vill fundurinn taka eindregna afstöðu gegn hækkaðri skyldutryggingu úr 100 rúml. í 400 rúml.“
Ástæðan fyrir því, að frv. þetta og annað skylt frv., þ.e.a.s. frv. um Samábyrgð Íslands á fiskiskipum, sem einnig liggur fyrir hv. d. í dag, voru ekki afgreidd í fyrra, var einmitt þessi breytta afstaða samtaka útvegsmanna til málsins. Hins vegar voru nm. í sjútvn. d. á s.l. ári mjög á einu máli um það, þegar þeir könnuðu þetta mál, að það væri til mjög mikilla bóta fyrir bæði bátaábyrgðarfélögin og Samábyrgð Íslands, að þessi frv. næðu fram að ganga, jafnvel þótt þessu meginatriði yrði breytt þannig, að eftir sem áður yrði skyldutryggingin miðuð við 100 brúttórúmlestir. Aðilar þeir, sem hlut áttu að máli, töldu sig þá þurfa að athuga það betur, hvort þeir vildu, að málið yrði þannig afgreitt. Á þessu ári munu hafa komið fram óskir um, að þannig yrði málið til lykta leitt, og hefur hv. Ed. aðeins gert nokkrar minni háttar breyt, á frv., sem allar eru í samræmi við það, er samkomulag varð um í sjútvn. þessarar hv. d. á s.l. ári.
Skv. þessu eru þýðingarmestu breyt., sem í frv. felast í höfuðatriðum þær, að bátaábyrgðarfélögunum verður nú, með vissum skilyrðum, heimilað að taka að sér aðrar tryggingar fyrir útgerðina, aðallega slysatryggingar og ábyrgðartryggingar, sem útgerðarmenn hafa með samningum við sjómannasamtökin skuldbundið sig til að kaupa, og í öðru lagi, að tryggingarskilmálar verði ekki lengur ákveðnir í 1., heldur með reglugerð, að fengnum till. stjórnar Samábyrgðar Íslands á fiskiskipum. Þetta síðara atriði er mjög veigamikið, því að í eldri l. um vélbátaábyrgðarfélögin voru vátryggingaskilmálarnir lögbundnir, og hefur ekki verið hægt að breyta þeim eftir ýmsum breytilegum aðstæðum, og hefur það háð Samábyrgðinni og bátaábyrgðarfélögunum talsvert í starfi þeirra. Ef frv. næði fram að ganga, eins og lagt er til, mundi það veita þeim meira svigrúm, bæði til að breyta tryggingaskilmálum og til þess að taka upp nýjar tryggingagreinar.
í sambandi við bátaábyrgðarfélögin hygg ég, að þetta séu meginatriði málsins, og í sjútvn. d. er algert samkomulag um að mæla með því, að frv. nái fram að ganga, eins og það kom frá hv. Ed. En í Ed. mun hafa komið fram það sjónarmið, að rétt væri að gefa tryggingar fyrir minni vélbáta, eða vélbáta allt að 100 rúml., frjálsar, og munu talsmenn þeirrar skoðunar hafa talið, að það mundi verða til hagsbóta fyrir bátaeigendur að tryggja þannig. Ég er fyrir mitt leyti á gagnstæðri skoðun, og það hygg ég, að flestir eða allir nm. sjútvn. þessarar hv. d. séu, eins og ástatt er með minni bátana. Þeir eru flestir orðnir allgamlir. Ég hygg, að meðalaldur þeirra mundi reynast býsna hár, ef hann væri athugaður, þannig að þetta er áhættusöm trygging. Í frjálsu bátatryggingunum er hver bátur tryggður sem sérstök áhætta, þannig að ef hann fær á sig tjón, þá hækka iðgjöldin. Það mun vera dæmi þess, að bátar, sem hafa e.t.v. byrjað með 21/2–3% iðgjöld, og hafa síðan fengið á sig mikil tjón, hafi komizt innan tíðar upp í 10–12% iðgjöld, eða jafnvel hærri. Aftur á móti eru iðgjöldin hjá vélbátaábyrgðarfélögunum og Samábyrgðinni þau sömu fyrir alla, sem tryggðir eru þar, og áhættunni þannig jafnað út. Það má auðvitað deila um, hvor aðferðin í slíkum tryggingum sé æskileg, og e.t.v. á fyrri aðferðin sér fleiri formælendur, en eins og ég sagði eru bátarnir, sem nú flokkast undir skyldutrygginguna, orðnir mjög gamlir og ganga ört úr sér, og þess vegna er heppilegra fyrir þá, sem þarna eiga hagsmuna að gæta, að hafa þennan sama hátt á enn um skeið. Það hefur því ekki fengið undirtektir í sjútvn. að mæla með því, að þessi trygging verði gefin frjáls, og eins og ég sagði, mælir n. með frv., eins og það nú liggur fyrir.