01.11.1966
Efri deild: 10. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1050 í B-deild Alþingistíðinda. (828)
36. mál, Samábyrgð Íslands á fiskiskipum
Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):
Herra forseti. Þetta frv. er eins konar fylgifrv. með því frv., sem var hér næst á undan á dagskránni og eiginlega bein og eðlileg afleiðing af því frv., og gilda fyrir flutningi þess sömu rök og ég minntist á, að rétt þykir, þrátt fyrir það, að d. hefur fjallað um það einu sinni áður, að fá efnislega afstöðu Alþ. til málsins í heild. Helztu breyt. á þessu frv. frá gildandi ákvæðum eru þessar: 1) Stjórn Samábyrgðarinnar verði nú skipuð fimm mönnum í stað þriggja áður og þrír verði skipaðir af ráðh., þ. á m. formaðurinn, sem sé jafnframt framkvæmdastjóri, en hinir eru tilnefndir af bátaábyrgðarfélögunum. 2) Samábyrgðin fái heimild til að taka að sér slysa- og ábyrgðartryggingar fyrir útgerðina, ýmist sem endurtryggjandi fyrir bátaábyrgðarfélögin, sem taka slíka tryggingu að sér, eða sem frumtryggjandi, ef bátaábyrgðarfélag á viðkomandi tryggingasvæði tekur ekki að sér slíkar tryggingar. 3) Að sett verði ákvæði um, að Samábyrgðin boði til fundar með fulltrúum frá bátaábyrgðarfélögunum eigi sjaldnar en þriðja hvert ár, þar sem kosnir séu tveir menn í stjórn ábyrgðarinnar, skipzt á skoðunum og gerðar ályktanir í málefnum trygginganna. 4) Ákvæði núgildandi laga um ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum Samábyrgðarinnar séu felld niður.
Ég sé ekki þörf á því, fremur um þetta mál en hið fyrra, að hafa um það langa framsögu. Eins og ég sagði í upphafi liggja sömu forsendur fyrir flutningi beggja þessara frv.
Ég legg til, herra forseti, að þessu frv. verði einnig vísað til hv. sjútvn.