14.03.1967
Neðri deild: 54. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (851)
151. mál, listamannalaun
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Þetta mál um listamannalaunin hefur lengi verið erfitt viðureignar hjá okkur hér í þinginu. Í þessari n. varð samkomulag um það, sem er höfuðatriðið í þessu stjfrv. til l. um listamannalaun, að Alþ. Skyldi sjálft, með því að kjósa þá n., sem þar ræðir um, taka að sér úthlutunina. Um þetta atriði er auðvitað mikið búið að ræða, stundum hafa komið fram till. um, að listamennirnir önnuðust þetta sjálfir. Einu sinni var jafnvel, svo að segja í blóra við þá, sett í gegn löggjöf þess efnis hér í þinginu, og gafst síður en svo vel, enda kannske ekki í þeim tilgangi gerð, að hún gæfist vel, og ég held, að það sé óhætt að fullyrða, að þrátt fyrir alla þá ádeilu, sem fulltrúar Alþ. oft hafa hlotið og þær deilur, sem um þetta hafa staðið, verði ekki fundið öllu betra fyrirkomulag en að Alþ. taki á sig ábyrgðina á því, og þar með oft kannske líka leiðindin eða heiðurinn hins vegar af því, hvernig úthlutunin tekst. En um leið og við göngum inn á þessa höfuðreglu, sem hæstv. ríkisstj. leggur til, að þarna sé farið inn á, álít ég rétt fyrir okkur að athuga mjög gaumgæfilega, hvernig hentugast sé að framkvæma þetta í einstökum atriðum: Þess vegna var ég með þessu frv., eins og við allir í menntmn., en vil hins vegar biðja hv. d., og kannske hv. n., að athuga betur einstök atriði í þessu sambandi.
Þá er það fyrst þessi spurning: Á Alþ. að veita sérstök heiðurslaun á hverju ári? Eins og 1. og 2. gr. eru orðaðar nú, er þetta óákveðið. Alþ. er sem sagt sett það í sjálfsvald, hvort það veitir t.d. 5 eða 10 mönnum heiðurslaun, eins og nú hefur verið gert undanfarið, eða hvort það gerir það ekki. Sú upphæð, sem n. hefði til úthlutunar, mundi þá nokkuð breytast, eftir því hvort yrði. Ég held, að við eigum endilega að hafa þá reglu, að Alþ. skuli sjálft veita slík heiðurslaun, eins og venja var hjá okkur hér áður fyrr. Um þetta hefur hins vegar vissulega staðið mjög mikil deila, eins og þeir þm. þekkja, sem kunna sögu þessa máls alls. Vax það svo hér áður fyrr, að í 18. gr., sem var álitin óhreyfanleg í fjárl., voru ákveðin heiðurslaun til nokkurra listamanna, og það var ekki fyrr en stofnað var til mjög harðrar og illvígrar deilu um þessi mál, að þessir menn voru teknir þarna út af, og notuð til þess alveg sérstök aðferð, og svo stórlækkaðir, Allt það ástand, sem þá skapaðist, er svo langt frá því að vera Alþ. til sóma, að þvert á móti ættum við að sjá til þess, að slíkt gæti ekki komið fyrir aftur. Ég vil minna menn á, að á árunum 1939 og 1940 var notuð alveg sérstök aðferð, sem sé sú, að fela menntmrh. úthlutun þessara launa, svo að allir þeir menn, sem höfðu verið inni á 18. gr., voru teknir út af henni, og þetta var m, a. gert til þess að geta klekkt á vissum mönnum, t.d. Halldóri Kiljan Laxness. Hann hafði haft 5000 kr. skáldalaun á 18, gr., og almennt var gengið út frá því, að þeir, sem á 18. gr. voru, yrðu þar ævilangt. Hann var þar með sömu upphæð og Einar H. Kvaran og Einar Benediktsson. En eftir að þessi háttur var upp tekinn að fela, ég held það hafi verið menntmrh., að úthluta laununum, var Halldór Kiljan einmitt færður úr þessum 5 þús. kr. launum niður í 1800 kr., ef ég man rétt. Það var til að refsa honum fyrir Sjálfstætt fólk, hann hafði vogað sér að semja það og gefa það út þá. Þessi laun voru allhá, eins og menn sjá, 5 þús. kr. samsvara áreiðanlega um 160 þús. kr. nú, þannig að þessi heiðurslaun, sem þá voru veitt, voru 60% hærri skulum við segja en þau, sem nú eru veitt, og þó að maður voni náttúrlega, að Alþ. framtíðarinnar hafi lært það mikið af því, sem gerðist á þessum tíma, að slíkt komi aldrei fyrir aftur, er hitt þó skemmtilegra, að það sé alveg ákveðið, að Alþ. úthluti þarna sérstökum heiðurslaunum ævilangt svo að segja til þeirra manna, sem svo almennt samkomulag er um, að þeir komist þannig inn á fjárl. Ég álít ekki, að við þurfum að ákveða endilega einhverja tölu, ég hef sett þarna inn í „allt að 10 manna“, það eru 5 menn núna, og ég er ekkert að leggja til að hækka það endilega, en það yrði Alþ. að ákveða ætíð jafnóðum. En óviðkunnanlegt þætti manni þó að fara að taka þessa menn þarna burtu, og það yrði alltaf litið á það sem einhverja tilraun til að svipta þá vissum heiðri, sem Alþ. hefði álitið, að þeir hefðu verðskuldað. Ég held því, að með tilliti til þess, sem áður hefur gerzt í þessum efnum, ættum við að slá þeirri reglu fastri, þegar við reynum að koma framtíðarskipulagi á úthlutunina, að það skuli vera þarna nokkur heiðurslaun og sú upphæð, sem sé veitt sérstaklega á fjárl., skuli vera þarna fyrir utan.
Þá kemur að næstu spurningunni, og hún er þessi: Á hvern hátt eigum við að reyna að tryggja sem bezt sem óhlutdrægast mat, bæði séð frá listrænu og stjórnmálalegu sjónarmiði, á þeim rithöfundum og öðrum listamönnum, sem við vildum veita svona laun? Það er nú svo, að ef við látum þetta eingöngu vera komið undir því, hvernig t.d. meiri hl. í þessu 7 manna ráði greiðir atkv. á þann venjulega hátt, sem tíðkast í slíkum n., getur hæglega svo farið, að þarna myndist eins konar bandalag t.d. tveggja sterkra aðila, sem ráði allri úthlutuninni, og þeir, sem þarna séu í minni hl., komist ekki að með sínar skoðanir. Við verðum að gera okkur ljóst, að þetta er alveg mögulegt, og þetta er hlutur, sem hvað eftir annað í okkar sögu hefur komið fyrir. Nú, en það þarf ekki að tala um það hér, hvað pólitíkin getur verið viðkvæm í slíkum efnum, það er ekki einungis hún, það eru líka oft eins harðvítuglega skiptar skoðanir um þau hreinu, listrænu sjónarmið — við skulum bara taka t.d. í málaralistinni — og í sjálfri pólitíkinni. Svo var það einnig hér á Alþ., þegar harðast var barizt um þessi mál 1940, að jafnvel viss listaverk, sem nú eru í Listasafni ríkisins, voru tekin hingað niður eftir til þess að hræða alþm. frá því að greiða atkv. með fólki, sem byggi til önnur eins verk, og tókst stundum. Ég hef þess vegna verið að íhuga, á hvern máta við gætum helzt fundið þarna út einhverja aðferð þannig, að mismunandi skoðanir, hvort heldur það væri í list, þjóðmálum eða öðru slíku, gætu haft meira jafnrétti, hægt væri að tryggja í heild óhlutdrægni í þessum efnum. Okkur lægi kannske næst hér á Alþ. að segja: það ættu þá bara að vera hlutfallskosningar. En ég býst nú ekki við, að menn vildu heldur ganga inn á að stuðla beinlínis að því, að myndaðar yrðu alls konar samsteypur í þessari 7 manna n. um hvaða menn skyldi kjósa til þessa heiðurs. Mér hefur dottið í hug, hvort ekki væri hægt að nota þarna þá aðferð, sem undanfarið hefur tíðkazt hjá Blaðamannafélaginu, þegar þeir hafa verið að úthluta vissum verðlaunum. Eins og kunnugt er, hefur það verið svo, að þegar silfurlampanum hefur t.d. verið úthlutað af leikdómurum blaða eða þegar íþróttafréttaritarar hafa verið að velja bezta íþróttamanri ársins eða þegar helztu ritdómarar blaða hafa valið bezta höfund ársins, hafa þeir notað eins konar stigakerfi, þannig að hver maður getur númerað niður þá menn, sem hann vill láta, t.d. í þessu tilfelli, hljóta ákveðin listamannalaun. Það yrði ákveðin tala skulum við segja, hve margir ættu að hljóta sæti í efri flokknum og hve margir í neðri flokknum og síðan væri, eftir reglum, sem hæstv. menntmrn. mundi setja, ákveðin viss stigatala í sambandi við þetta, þannig að hver maður geti sem sé kosið svona og svona marga, en hann númerar þá í ákveðinni röð. Það fæst þá 100 út á þann, sem flokkast nr. 1, 90, eða hvað sem vera skal, út á þann næsta o.s.frv. Með þessu móti mundu nýtast áhrif allra manna í n., það mundi ekki vera bara einhver meiri hl. og hinni hl. Hver maður mundi greiða atkv. eftir sínu höfði og sínum smekk, og út úr þessu ætti að koma, þegar á heildina væri litið, nokkuð óhlutdrægt mat á þessu, þó menn hafi sínar mismunandi skoðanir, listrænar eða aðrar, á listrænu gildi verkanna og öðru í þessu sambandi. Ég held, að við ættum að athuga nánar, hvort þetta væri framkvæmanlegt, það er vafalaust nokkuð flóknara, þegar þarf að kjósa um svona marga menn, en þegar verið er að kjósa kannske einn, tvo eða þrjá. Samt held ég, að rétt sé að athuga, hvort við getum fundið með þessu móti einhverja nýja aðferð í þessum efnum, sem bjargaði okkur meira út úr öllum þeim hörðu deilum, sem risið hafa í þessu sambandi.
Þá hef ég enn fremur, fyrir utan að leggja til að breyta 2. gr. eða vissum þáttum hennar í þessa átt, lagt til að bætt væri við þarna tveim nýjum greinum. Hæstv. menntmrh. skýrði okkur frá því, og það er í lok grg. sagt greinilega frá því, að rn. muni skipa n. til að athuga um styrkjakerfi, og það er vitað, að þetta er mál, sem er mjög vinsælt hjá listamönnum og getur verið ákaflega praktískt í þessum efnum. Það, að geta í eitt eða tvö ár bókstaflega launað ákveðna menn við að vinna ákveðið verk, er okkur afskaplega dýrmætt, ekki aðeins í sambandi við, við skulum segja, að t.d. rithöfundar fái þannig tíma til þess að reyna að vanda sínar bækur sem bezt, heldur líka t.d. málarar til þess að vinna að stórum verkum. Við vitum hvað hefur staðið t.d. fyrir þrifum allri almennilegri málaralist hvað snertir söguleg málverk á Íslandi, sem varla eru til, og vart nokkur, sem verulegt gildi hafa. Það þarf venjulega svo langt stúdium hjá málara, sem ætlar sér að mála sögulegt málverk, þannig að það verði ekki hálfgerð ómynd, að hann þarf til þess bókstaflega að setja sig inn í allar aðstæður mjög langan tíma, fyrir utan svo hitt að vinna verkið, þannig að einmitt með því að geta veitt mönnum svona styrki 1–2 ár er ákaflega mikið fengið. Ég hef lagt til í 3. gr., að við reyndum að gera þetta ákveðnara þannig, að við lofuðum því sem sagt, að á fjárl. 1968 yrðu þessir starfsstyrkir teknir upp, og ég held, að það mundi varla vera talið, svona rétt fyrir kosningar, sérstaklega mikið af hálfu Alþ. að flotta sig nú með því að lofa slíku gagnvart listamönnum landsins, ekki sízt, þegar við hvort eð er erum búnir að gera ráð fyrir því í grg. frv., og hæstv. ráðh. hefur ítrekað, að þessi n. verði sett, þá held ég, að það væri ákaflega ánægjulegt, ef við gætum komið okkur saman um að segja þetta eitthvað ákveðnar.
Þá hef ég enn fremur lagt til, að bætt yrði við þarna gr. um, að þegar laun opinberra starfsmanna hækki, skuli þessi heiðurslaun, og almenn listamannalaun, líka hækka í sama hlutfalli. Stundum hefur þetta orðið og verið álitið sjálfsagt og er jafnvel nú. Gert er ráð fyrir því á vissan hátt í fjárl., hvað heiðurslaunin snertir, en það hefur viljað vera nokkur tröppugangur á hinu, jafnvel þó það sé rétt, að fyrir ítrekaða baráttu góðra manna hafi tekizt að hækka þó nokkuð þessi listamannalaun. Þó er það svona, að ennþá er þetta lægra hjá okkur en það var fyrir alllöngu síðan, þrátt fyrir framfarir á síðustu árum, þannig að ég álít, að það væri mjög gott, ef við gætum komið okkur saman um eitthvað svona, því þetta er nú hlutur, sem menn álíta hvort eð er, að sé sanngjarn.
Þá hef ég líka í þessum brtt. lagt til, að upphæðirnar væru ákveðnari í þessum efnum, t.d. að sú upphæð, sem væri ákveðin á fjárlögum, skuli vera 5 millj. kr. Það er slæmt að þurfa að berjast um þetta í hvert einasta skipti. Það færi betur, að við gætum komið okkur niður á, að við settum eina ríflega upphæð þarna frá upphafi, og síðan hækkaði hún í hlutfalli við, við skulum segja, laun opinberra starfsmanna, heldur en að menn þyrftu sífellt að standa í þessari baráttu. Þetta frv. er öruggt með að fara í gegnum þ., það er algert samkomulag um það, eins og menn vita, og það er hér í síðari deild, þannig að ég held, að það ætti ekki að tefja neitt þess framgang, þó að við gæfum okkur ofurlítinn tíma til þess að athuga þessar brtt. nánar í n. og hvort við gætum máske orðið sammála um að nýta eitthvað af þeim. Það mun verða fundur í n. í fyrramálið, þannig að það væri hægt að taka þetta þá fyrir. Ég vildi mælast til þess, ef hægt væri, að fá um það samkomulag, að þessari umr, væri frestað núna og okkur gæfist tækifæri til þess að athuga málið í n.