11.04.1967
Efri deild: 62. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1073 í B-deild Alþingistíðinda. (866)

151. mál, listamannalaun

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason). Herra forseti. Þetta frv. var fyrir fáum dögum samþ. í hv. Nd. mótatkvæðalaust. Í hv. Nd. kom fram brtt. frá einum hv. þm., hv. 3. þm. Reykv., um eitt atriði frv. fyrst og fremst, þ.e.a.s. breytta tilhögun á vali þeirra, sem hljóta eiga listamannalaun hverju sinni. Ég treysti mér ekki til þess að mæla með samþ. þeirrar till., og náði hún ekki samþ. Aðrar brtt. komu þar fram, einnig frá sama hv. þm., fyrst og fremst sú að kveða á um heildarupphæð listamannalaunanna í löggjöfinni, en sú till. náði heldur ekki fram að ganga. Ég tel auk þess mjög óeðlilegt, að heildarupphæð listamannalaunanna sé ákveðin í löggjöfinni, heldur eðlilegra, að fjárveiting sé ákveðin á fjárl. hverju sinni eins og aðrar hliðstæðar fjárveitingar. Þetta frv. er flutt í samræmi við þál., sem samþ. var shlj. á Alþ. á s.l. vori, þar sem skorað var á ríkisstj. að láta undirbúa fyrir næsta reglulegt Alþ. löggjöf um úthlutun listamannalauna og skuli við það starf haft samráð við Bandalag ísl. listamanna. Þetta frv. var síðan samið í menntmrn. að höfðu samráði við stjórn Bandalags ísl. listamanna, sem fékk frv., meðan það var á undirbúningsstigi, til umsagnar, og mun það hafa verið rætt í öllum aðildarfélögum Bandalags ísl. listamanna. Skilaði síðan stjórn bandalagsins áliti um málið til mín, þar sem í meginatriðum var fallizt á efni þessa frv. En aðalatriði frv. eru þau, að kveðið er svo á, að Alþ. skuli árlega veita fé á fjárl. til þess að launa listamenn. Er annars vegar gert ráð fyrir því, að Alþ. veiti árlega tilteknum listamönnum ákveðin heiðurslaun, svo sem tíðkazt hefur undanfarið, og svo hins vegar eina heildarupphæð, sem síðan skuli skipt af 7 manna n., sem kosin væri hlutfallskosningu á Alþ. Þeim listamannalaunum, sem Alþ. hefur veitt um langt skeið undanfarið, hefur nú um nokkurra ára skeið verið úthlutað einmitt af n. kjörinni af Alþ. hlutfallskosningu. En sú n. hefur jafnan verið kosin til eins árs í senn. Hefur það bagað mjög n. í störfum sínum og valdið því, að ekki hefur verið tryggt, að föstum reglum væri fylgt frá ári til árs. Einn höfuðókostur þess skipulags, sem verið hefur undanfarið á úthlutun listamannalauna, hefur einmitt verið fólginn í því, að n., sem það starf hefur átt að annast, hefur verið kosin til elns árs í senn. Hér er gert ráð fyrir því, að n. verði kosin til allt að fjögurra ára, þ.e.a.s. hvert nýkjörið Alþ. kjósi n. og sé starfstími hennar sá sami og starfstími Alþ. Þá er í öðru lagi gert ráð fyrir því í frv., að um tvo launaflokka listamannalauna verði að ræða, en um nokkurra ára skeið undanfarið hafa þeir verið 4. Þessi fjórskipting launaflokkanna hefur verið eitt þeirra atriða, sem listamenn hafa unað einna verst og margir þeirra líkt úthlutun listamannalaunanna við einkunnagjöf, fyrst flokkarnir hafa verið fjórir. Hér er því gert ráð fyrir því, og er það í nánu samráði við stjórn bandalagsins, að flokkarnir skuli vera aðeins tveir og má þá búast við því, að n. muni haga úthlutun sinni þannig, að í hærri flokknum verði menn, sem lítill eða enginn ágreiningur er um, að skuli njóta fastra heiðurslauna eða fastra listamannalauna og njóti þeirra þá sem fastalauna, þ.e.a.s. ár eftir ár, en frekar sé hugsuð breyt. á milli ára í lægri flokknum.

Í þriðja lagi eru svo í frv. settar ákveðnar reglur um það, hvernig 7 manna n. skuli velja þá, sem listamannalaun hljóta. Aðalatriðið í því er það, að atkvgr, skuli vera leynileg og liggja skuli frammi hreinar till. frá hverjum einstökum nm., eða hverjum hópi nm., um það, hvernig þeir vilji láta skipta því fé, sem Alþ. hefur veitt n. til ráðstöfunar.

Í fjórða og síðasta lagi er síðan svo kveðið á í frv., og það er algert nýmæli í sambandi við úthlutun listamannalauna, að aðildarfélög Bandalags ísl. listamanna skuli eiga rétt á að tilnefna hvert um sig tvo fulltrúa til samstarfs við n., sem Alþ. kýs til þess að ákveða listamannalaunin. Áður en atkv. eru greidd í n. um þær till., sem fram koma, eiga sem sagt fulltrúar hvers aðildarfélags bandalagsins rétt á því að láta í ljós skoðun sína á þeim till., sem fram eru komnar. Þetta fyrirkomulag tryggir listamönnum, að því er ég tel, réttmæta þátttöku og réttmæta aðild að úthlutun listamannalaunanna, án þess þó, að þeim sé sjálfum fengið ákvörðunarvald um það, hverjir launin hljóta. Listamenn hafa sjálfir ekki óskað eftir slíku ákvörðunarvaldi í sínar hendur, og ég tel mjög óeðlilegt, að fulltrúar þeirra veiti listamannalaun og beri þannig ábyrgð á því, hvernig fé Alþ. er skipt. En hitt er annað mál, að það er réttlátt, að listamenn eða fulltrúar þeirra geti látið í ljós álit sitt á þeim till., sem fram koma, þannig að n. Alþ. fái þannig visst, faglegt aðhald, áður en hún gengur til atkv. um veitingu listamannalaunanna. Meðan n. er að starfi, er gert ráð fyrir því, að slíkar umsagnir séu leynilegar, trúnaðarmál, en þegar gengið hefur verið frá málinu er hins vegar gert ráð fyrir því, að umsagnaraðilar geti birt umsögn sína, hvort sem það er þá til stuðnings við það, sem gert hefur verið, eða til gagnrýni á því.

Með þessum orðum held ég, að ég hafi gert hv. Ed. grein fyrir meginatriðum þessa máls og leyfi mér því, herra forseti, að óska þess, að málinu verði, að lokinni þessari 1. umr., vísað til 2. umr. og hv. menntmn.