02.12.1966
Sameinað þing: 13. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í B-deild Alþingistíðinda. (89)
1. mál, fjárlög 1967
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af ræðu hv. 6. þm. Sunnl. Af því að hann leiddi þetta mál hér inn á fundinn, sem er ósköp eðlilegt, því að hér er um stórmál að ræða fyrir þá Vestmanneyinga, þá vildi ég aðeins láta það koma fram, að að þessu máli hefur verið unnið, eins og hann sagði, mjög skynsamlega og heilsteypt af hálfu þeirra Vestmanneyinga, og þetta er vissulega mjög sérstakt vandamál, sem þarna er við að glíma. Þetta er dýr framkvæmd, að vísu ekki dýrari en svo út af fyrir sig, að jafnríkur staður og Vestmannaeyjar gæti ráðið við hana. En það breytir ekki því, að það mundi leggja óeðlilegar byrðar á bæjarfélagið. Málið hefur verið nú að undanförnu í rækilegri athugun í félmrn. og fjmrn. og Efnahagsstofnuninni, og ég get fullvissað hann um, að það er fullur áhugi á því, að áður en fjárlagaafgreiðslu lýkur, verði niðurstaða fengin um það, hvað í málinu hefur verið gert, hvort sem menn kunna að vera ánægðir með það eða ekki. Það getur a.m.k. gefið þm. tækifæri til þess að segja um það sínar skoðanir og hreyfa því þá með tillögum, ef þeim finnst það ekki viðunandi.