11.04.1967
Neðri deild: 64. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (912)

166. mál, Iðnlánasjóður

Frsm. minni hl. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er í raun og veru gamall kunningi hér í d. Það var lagt fram í þingbyrjun í nokkuð öðru formi en það er nú, og var þá ágreiningur um það innan stjórnarflokkanna, til hvaða n. það ætti að fara. Þar sem frv. fjallaði um, nýjan toll, sem átti að leggja á sjávarútveginn, var í raun og veru eðlilegt, að málið færi þangað. En hæstv. iðnmrh, hafði nú lagt til, að málið gengi til iðnn. og hann gat ekki sætt sig við það, að horfið yrði frá þeirri till. hans, en mun þó ekki hafa fengið meiri hl. fyrir henni í sínum flokki, og niðurstaðan varð þess vegna sú, sem var mjög óeðlileg hér á Alþ., að það var sett á laggirnar sérstök n. til þess að fjalla um málið. Af störfum hennar hefur hins vegar ekki neitt heyrzt, en þegar leið á þingtímann, var lagt fram það frv., sem hér er nú til meðferðar, og þetta mál flutt í talsvert öðru formi en það hafði áður verið, auðsjáanlega gert til þess að komast fram hjá veiðarfæranefndinni.

Annað hafði líka gerzt á þessum tíma af hálfu þeirra í stjórnarflokkunum, sem telja sig vera sérstaka málsvara sjávarútvegsins, eins og t.d. hv. 11. landsk. Hafði verið talað mjög rösklega á móti þeim tolli, sem hér átti að leggja á sjávarútveginn, og ég man ekki betur en hann hafi hér á þessum stað, þar sem ég stend nú, svarið og sárt við lagt, að þessi tollur skyldi aldrei ná fram að ganga. Og mér skilst, að einnig hafi hv. 7. landsk. tekið mjög skelegglega undir þetta hér í umr. á þinginu, sem þá fóru fram, og einnig hv. 3. þm. Sunnl., og í framhaldi af þeirri afstöðu þeirra skilst mér, að það hafi verið haldnir fundir í Landssambandi ísi. útgerðarmanna, og þar samþ. mótmæli gegn þessari nýju skattaálagningu. Síðan hefur nú hæstv. iðnmrh. farið að ræða við þessa stuðningsmenn sína, og niðurstaðan virðist vera sú, að nú sé úr þeim allur vindurinn og þeir séu orðnir samþ. þeirri skattaálagningu, sem þetta nýja frv. gerir ráð fyrir. En þó er nú ánægjan samt ekki meiri en það, að við í iðnn. sendum þetta frv. til umsagnar Landssambands ísl. útvegsmanna, og það hafði mjög ríflegan tíma til að svara okkur, en okkur bárust aldrei nein skrifleg svör þaðan. Þó munu bæði hv. 11. landsk. og hv. 7. landsk. eiga sæti í stjórn þessara samtaka, en hins vegar barst okkur það munnlega, að Landssambandið mundi láta það afskiptalaust, þó að þessi tollur á útveginn, sem frv. gerir ráð fyrir, yrði samþ.

Ég verð nú að segja það sem mína skoðun, að mér finnst það ákaflega einkennileg afstaða hjá þeim, sem eiga að vera forsvarsmenn útvegsins, að þegar er verið að bæta á hann einum pinklinum til viðbótar öllum öðrum, sem áður hafa verið á hann lagðir af hv. Alþ., skuli ekki einu sinni fást skriflegt svar frá Landssambandinu um það, hvort það sé þessu samþ. eða ekki. Og mér þætti mjög fróðlegt að heyra, hvernig því víkur við, að afstaða t.d. hv. 11. landsk. og hv. 7. landsk., sem töluðu jafn skelegglega á móti þessum skatti og þeir gerðu hér á þingi fyrir jólin, skuli nú vera orðin svo breytt, að þeir kannske vilja ekki beinlínis mæla með því, að hann sé lagður á, en þeir ætla a.m.k. að láta það afskiptalaust og mótmælalaust og vilja ekki láta uppi neitt skriflegt álit um það. Hefur það kannske gerzt á þessum tíma, að afkoma útgerðarinnar hafi eitthvað batnað eða hefur vetrarvertíðin gengið svo vel, að útvegurinn sé betur undir það búinn að taka þennan skatt á sig en áður var? Það væri ákaflega fróðlegt að fá vitneskju um þetta. Og það má segja, að þetta sé kannske ekki stórmál í allri súpunni. Það séu ekki nema kannske 4, 5 eða 6 millj., sem þarna eigi að leggja á útgerðina og það sé nú ekki nein stórupphæð miðað við aðrar ennþá stærri upphæðir, sem þar er um að ræða. En mér finnst eigi að síður, að þetta sýni, að útgerðin eigi bæði hér á Alþ. og í landssamtökunum heldur lítið skelegglega forsvarsmenn. Þeir geta kannske við viss tækifæri talað allhraustlega um sína afstöðu og sagzt vera mjög áhugasamir um velgengni þessa atvinnuvegar. En einhvern veginn verður það nú svona, að ef einhver ráðh. tekur þá út í horn og talar við þá afsíðis, þá er allur vindurinn úr þeim farinn, og þá sætta þeir sig við það, að einum skattinum sé enn bætt ofan á þá, sem fyrir eru á útgerðina. En það hljóta allir þm. að gera sér ljóst, að það, sem veldur mjög miklu um þá erfiðu aðstöðu, sem útgerðin býr við í dag, er það, að það er alltaf verið að bæta á hana nýjum og nýjum sköttum, engum kannske verulega stórum í hvert skipti, en þegar pinklarnir koma saman í eitt, munar um þetta. Og ég held, að það hefði verið miklu skynsamlegra af meiri hl. Alþ. að gera eitthvað til að rétta við útgerðina að þessu sinni frekar en ráðast í þessar verðuppbætur, sem hér voru ákveðnar fyrir nokkru, að létta þessum pinklum af útgerðinni, alls konar sköttum, sem á hana eru lagðir, en eðlilegra væri, að ríkið aflaði sér með öðrum hætti, í stað þess að gera hana að þurfalingi með þessum uppbótargreiðslum, sem alltaf er verið að auka. En það verðum við að játa, og fram hjá því verður ekki komizt, að málum útgerðarinnar er svona komið að verulega miklu leyti vegna þess að þeir, sem hafa verið til forsvars fyrir hana í stéttarsamtökum útgerðarmanna, og þeir, sem hafa verið til forsvars fyrir hana hér í stjórnarflokkunum á Alþ., hafa ekki reynzt skeleggir talsmenn fyrir þennan atvinnuveg, og stjórnin hefur þess vegna getað farið því fram, sem henni hefur sýnzt í þeim efnum.

Þetta er nú aðeins inngangur, sem víkur að sjávarútveginum sérstaklega. En ég ætla þá að koma að þeirri hliðinni, sem snertir iðnaðinn. Það má segja, að þetta frv. sé tvíþætt. Annars vegar er, eins og ég áðan sagði, lagður sérstakur skattur á sjávarútveginn og hinn þátturinn er sá, að þennan skatt á að nota til þess að styrkja sérstaklega eitt iðnaðarfyrirtæki, Hampiðjuna. Nú játa ég það fullkomlega, að hér er um mjög merkilegt fyrirtæki að ræða, að það væri mikið óhapp, ef ekki væri hægt að halda uppi slíkum atvinnurekstri í landinu. En hitt verð ég að segja, að mér finnst það ákaflega skrýtið, að hæstv. iðnmrh. skuli ekki koma auga á nema þetta eina fyrirtæki, sem þannig er ástatt um, því að þeir erfiðleikar, sem Hampiðjan hefur við að glíma í þessum efnum, gilda um iðnaðinn yfirleitt. Það er komið nákvæmlega eins með iðnaðinn og landbúnað og sjávarútveg, vegna þeirrar efnahagsstefnu, sem hefur verið fylgt í landinu á undanförnum árum, þessi atvinnuvegur þarf á styrkjum og uppbótum að halda, ef hann á að geta haldið uppi eðlilegri starfrækslu. Þess vegna finnst mér það ákaflega undarlegt, að ríkisstj. skuli taka þetta fyrirtæki eitt út úr öllum hópnum og veita því sérstaka aðstoð, en ætla ekki að gera neinar ráðstafanir til stuðnings þeim iðnaðarfyrirtækjum, sem líkt er ástatt um.

Ástæðurnar til þess að svona er komið fyrir iðnaðinum, eru mjög augljósar. Þar er ekki eingöngu um verðbólguna að ræða, heldur líka misheppnuð afskipti ríkisstj. á ýmsum öðrum sviðum. Það hefur t.d. ekki lítið að segja, hvernig búið er að iðnaðinum í lánamálum. Iðnaðurinn býr við stórkostleg rekstrarfjárvandræði, miklu meiri en hann hefur nokkru sinni áður gert, og það gildir raunar um aðrar atvinnugreinar líka. Með þeirri sparifjárfrystingu, sem ríkisstj. hefur tekið upp, hefur viðskiptabönkunum verið gert ókleift að halda uppi eðlilegri þjónustu við atvinnuvegina, og því til viðbótar hefur Seðlabankinn stórlega dregið úr þeirri þjónustu, sem hann veitir atvinnuvegunum. Með því að búa þannig að atvinnurekstrinum í lánamálum, hefur rekstraraðstaða þeirra verið stórlega skert eða gerð miklu örðugri, og það hefur að sjálfsögðu komið fram í verri afkomu hjá fyrirtækjunum. Þessu til viðbótar hafa vextir verið stórhækkaðir og eru miklu hærri hér en í nokkru öðru nágrannalandi okkar. Ég fullyrði það, að í engu Evrópuríki finnast nálægt því eins háir vextir og hér eru borgaðir, og ég dreg meira að segja í efa, að hægt sé að finna dæmi um það í Suður-Ameríku, þó að margt sé hægt að finna þar, sem ekki er til fyrirmyndar. Því til viðbótar, að þannig hefur verið þrengt að iðnaðinum í lánsfjármálunum, hefur það komið, að það hefur verið dregið mjög úr innflutningshöftum og fluttur inn erlendur iðnvarningur í stórum stíl. Ég tel, að það geti vel komið til greina, að slík samkeppni fari fram. En hún á því aðeins að fara fram, að áður sé búið að búa innlendan iðnað undir það að mæta slíkri samkeppni. En í staðinn fyrir það að búa iðnaðinn undir þetta, hefur verið þrengt að honum stórkostlega með þeim aðgerðum í fánamálum, sem ég hef nú vikið að og auk þess, sem verðbólgan hefur gert aðstöðu hans verri á allan hátt. Þess vegna álít ég, að undir þessum kringumstæðum hafi það verið rangt af ríkisstj. að hleypa hinum erlendu iðnaðarvörum eins mikið inn í landið og raun ber vitni um. Það er þessi innflutningur, sem veldur erfiðleikunum hjá veiðarfæragerðinni, en innflutningurinn veldur líka stórfelldum erfiðleikum hjá mörgum iðnfyrirtækjum öðrum. Við höfum t.d. fyrir augunum dæmi um það, að það hefur dregið stórkostlega úr atvinnu hjá járniðnaðarfyrirtækjum nú í vetur. Bæði er það, að þessi fyrirtæki hafa fækkað við sig starfsmönnum og því til viðbótar hefur svo að segja öll yfirvinna og eftirvinna fallið niður. En þegar þannig er komið, að búið er að fella þessa vinnu niður, er kaupgjaldið ekki hærra en það, að töluvert vantar á, að menn hafi sæmilega til hnífs og skeiðar. Þetta stafar af því, að það eru fluttar inn núna ýmsar vélar og ýmis tæki, sem járniðnaðurinn íslenzki hefur unnið, en sem hann getur ekki keppt við undir þeim kringumstæðum, sem nú eru fyrir hendi. Sama gildir að sjálfsögðu um ýmsan iðnað, sem starfar beint að útflutningi, t.d. á hinn merkilegi ullariðnaður á Akureyri, sem hefur á undanförnum árum flutt út talsvert af iðnaðarvarningi, nú í miklum erfiðleikum, vegna þess að hann er í raun og veru ekki lengur nægilega samkeppnisfær til þess að halda þessum útflutningi áfram. Með þetta allt í huga hefur okkur í minni hl, iðnn. þótt rétt að stórbreyta þessu frv. Í staðinn fyrir það, að það er tilgangur þessa frv. að koma upp verðjöfnunarsjóði innan iðnlánasjóðs fyrir eitt iðnaðarfyrirtæki, leggjum við til, að settur sé á fót verðtryggingarsjóður, sem veiti aðstoð ekki aðeins til þessa fyrirtækis, heldur annarra, sem svipað er ástatt um, iðnaðarfyrirtækja, sem annaðhvort selja vöru sína aðallega erlendis eða þurfa að keppa innanlands við erlendar iðnaðarvörur, sem eru fluttar inn án verulegra tolla. Og í stað þess, að lagt er til í frv. að afla fjárins með því að skattleggja útgerðina, leggjum við til, að þess sé aflað með því að taka nokkurn hluta af tekjuafgangi ríkissjóðs s.l. ári, og leggja það fé í þennan verðtryggingarsjóð, sem við viljum að sé stofnaður. Ég held, að menn hljóti að vera sammála um það, að iðnaðurinn er það mikilvægur atvinnuvegur, að honum beri með réttu nokkur hluti af þeim mikla tekjuafgangi, sem orðið hefur hjá ríkissjóði á s.l. ári og það sé ekki fram á of mikið farið, þó að af þessum tekjuafgangi, sem nemur eitthvað um 500 millj., fari 1/10 til styrktar iðnaðinum á þann hátt, sem lagt er til í okkar brtt. Hitt er náttúrlega hrein fjarstæða að ætla í þessu sambandi að fara að skattleggja atvinnuveg, sem þegar er stórlega styrktur úr ríkissjóði, ég á við sjávarútveginn, með því að skattleggja innflutt veiðarfæri, eins og lagt er til í frv.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að bæði landbúnaður og sjávarútvegur njóta nú stórfelldra verðuppbóta á ýmsan hátt, og það er ekki nema eðlilegt, að iðnaður, sem svipað er ástatt um, sitji þar við sama borð. Það er í gildi hér, eins og í svo mörgum öðrum efnum, að það hefur minna verið hugsað um iðnaðinn en sjávarútveg og landbúnað, en þó er iðnaðurinn sízt þýðingarminni atvinnuvegur en þessir tveir. Ég vil segja jafnvel að sumu leyti þýðingarmeiri atvinnuvegur, því að það skulum við gera okkur ljóst, að í sambandi við þá fólksfjölgun, sem hér verður á komandi áratugum, munum við ekki geta komið að nema takmörkuðum hluta hennar við landbúnað og sjávarútveg, þar sem því eru takmörk sett, hve mikið hægt er að auka þessa atvinnuvegi, og þess vegna verðum við fyrst og fremst að efla margs konar iðnað í landinu til þess að tryggja næga atvinnu fyrir vaxandi þjóð á komandi árum.

Þessi verðtryggingarsjóður, sem við leggjum til, að sé settur á fót, miðast að vísu að mjög verulegu leyti við það ástand, sem nú er fyrir hendi, að fyrirtækin eru almennt hallarekin og þurfa þess vegna á aðstoð að halda. En við álítum, að hann hafi líka merkilegt framtíðarverkefni, þó að búið sé við venjulegt efnahagsástand. Eins og ég sagði áðan, er nauðsynlegt að efla, iðnaðinn í landinu á komandi árum, og við verðum m.a. að leggja stund á að efla þann iðnað, sem framleiðir vörur fyrir erlendan markað. En það getur oft tekið sinn tíma að gera slíkan iðnað arðvænlegan. Það tekur sinn tíma að vinna markaði fyrir nýjar iðnaðarvörur erlendis, og það má vel búast við því, að slík fyrirtæki verði kannske rekin með einhverjum halla til að byrja með, og þá er það, sem við teljum, að sjóður eins og verðtryggingarsjóður, sem rætt er um í okkar till., geti komið að verulegu gagni með því að veita styrk eða framlög til þeirra fyrirtækja, sem þannig eru að vinna framleiðslu sinni sess á erlendum mörkuðum. Sama gæti að sjálfsögðu einnig gilt um fyrirtæki, sem framleiða fyrir innlendan markað, en þurfa að keppa t.d. við tollfrjálsar, innfluttar vörur.

Ég sé svo ekki ástæðu til þess að sinni að rökstyðja þessar brtt. okkar öllu nánar. Ég trúi því, að þegar þm, íhuga þessi mál betur, verði þeim ljóst, að hér er ekki nauðsynlegt að veita Hampiðjunni einni styrk, heldur líka öðrum gagnlegum og nauðsynlegum fyrirtækjum, sem líkt er ástatt um og þess vegna eigi að vinna að þeirri sjóðsstofnun, sem lagt er til, að gert verði í okkar brtt., en ekki sjóðsstofnun, sem bundin. er aðeins við eitt iðnaðarfyrirtæki. Ég trúi því líka, að þm. eigi eftir að gera sér það ljóst við nánari athugun, að það er ekki rétt að afla tekna til þess arna með því að leggja nýja skatta á sjávarútveginn, sem þegar er búið að leggja á allt of mikið af slíkum pinklum, heldur sé eðlilegt að nota þann tekjuafgang, sem varð hjá ríkinu, til þess að leysa það verkefni, sem hér er fyrir hendi. Því vænti ég þess, að þessar brtt. okkar verði samþ., en ef hins vegar svo skyldi fara gegn von minni og okkar í minni hl., að þær næðu ekki fram að ganga, vildi ég bera þá ósk fram við hæstv. forseta, að hann léti fara fram sérstaka atkvgr. um 1. málsl. í 1. gr. frv., þ.e.a.s. þann málsl., sem fjallar um veiðarfæraskattinn, því að það er vel bægt að hugsa sér og er einnig eðlilegt, ef menn vilja afgreiða frv. í þessu formi, að það sé hægt, án þess að þessi skattur verði samþ., því að þá mundi tekjuöflunin fyrst og fremst byggjast á öðrum tölul., sem er framlag úr ríkissjóði.

Ég skal svo ekki orðlengja þetta frekar, en vænti þess, að þessar brtt. okkar fái nánari athugun þm. og góðar undirtektir.