17.04.1967
Efri deild: 69. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (924)

166. mál, Iðnlánasjóður

Frsm, meiri hl. (Sveinn Guðmundsson):

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. um lðnlánasjóð frá 3. apríl 1963 hefur verið til athugunar í iðnn. Nefndin gat ekki sameinazt um að mæla með frv., en meiri hluti hennar mælir með, að það sé samþ. óbreytt og skilar áliti á þskj. 547. Minni hluti skilar séráliti og ber fram brtt. á sérstöku þskj.

Í byrjun yfirstandandi þings lagði hæstv, iðnmrh. fram frv. í hv. Nd. um 2% gjald á innflutt veiðarfæri. Gjald þetta skyldi vera til verðjöfnunar, þannig að innlendur veiðarfæraiðnaður gæti staðizt þá hörðu samkeppni, sem honum er búin, sérstaklega frá Portúgal, en þar eru vinnulaun aðeins brot af vinnulaunum hér á landi. Svo furðulegt sem það er, þá sá þetta frv. ekki dagsins ljós úr svokallaðri veiðarfæranefnd, sem var sérstaklega kosin til að fjalla um málið. Hins vegar hefur hæstv. iðnmrh. nú lagt fram frv. það, sem hér um ræðir og koma á ísl. veiðarfæraiðnaði að sama gagni. Er því ætlað að gera honum kleift, að halda áfram eðlilegri starfrækslu, og til frekari uppbyggingar. Frv. þetta gerir ráð fyrir, að 1% gjald sé lagt á innflutning veiðarfæra, sem nánar er tilgreint í frv. Skal þessi fjárhæð ganga til sjóðs, sem stofnaður verði við iðnlánasjóð, lánadeild veiðarfæraiðnaðar. Skv. frv. leggur ríkissjóður þessari lánadeild í byrjun 11,6 millj. kr. Einnig er iðnlánasjóði heimiluð lántaka til deildarinnar, 10 millj. kr. með ábyrgð ríkisstj. Þá er gert ráð fyrir, að deildinni kunni að verða veitt frekara fé úr ríkissjóði. Tilgangur þessa sjóðs er sá, að styrkja þann litla vísi að veiðarfæragerð, sem enn er til í landinu, þannig að veiðarfæraiðnaður leggist hér ekki niður. Einnig er frv. ætlað að styðja uppbyggingu ísl. veiðarfæraiðnaðar almennt. Ég fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. iðnmrh., sem hann gaf í þessari hv. þd. við 1. umr. málsins s.l. föstudag, en þar kom fram, að hann hefur skipað 4 manna n. til að rannsaka orsakir þess, innanlands og erlendis, hvers vegna þessi grein ísi. iðnaðar á svo erfitt uppdráttar hér á landi, þrátt fyrir geysimikla notkun okkar á veiðarfærum. Frv. það, sem hér um ræður, getur orðið grundvöllur þess, að hér á landi rísi upp þróttmikil atvinnugrein, veiðarfæragerð, sem ekki aðeins geti fullnægt ísl. útgerð, heldur einnig framleitt veiðarfæri til útflutnings. Þar sem ég er nátengdur ísl. iðnaði, fagna ég þessu frv., ekki aðeins vegna þessarar lagasetningar, heldur miklu fremur þeirrar óbeinu yfirlýsingar, sem felst í frv. og þeim yfirlýsingum, sem hæstv. iðnmrh. hefur gefið við umr. málsins, að ríkisstj. sé ákveðin í að stuðla að uppbyggingu ísl. veiðarfæraiðnaðar. Þess ber að vænta, að þetta frv. sé upphaf, en ekki endir þeirrar sóknar í iðnaðarmálum þjóðarinnar. Hér liggur fyrir nál. minni hluta iðnn. um frv. þetta. Þar eru sett fram sömu sjónarmið og fram koma í minni hluta áliti hæstv. iðnn. Nd. Þar er verið að fleyga inn í þetta sérstaka veiðarfæramál, sem nú er orðið alllangsótt hér á hæstv. Alþ., önnur iðnaðars jónarmið, sem fyrirfram er sýnilegt að yrðu til að drepa þetta nauðsynlega mál.

Það yrði of langt mál að rekja hér, hvers vegna svo ambögulega hefur tekizt með veiðarfæragerð hér á landi, svo ekki sé minnzt á tilraunir Skúla með Innréttingunum um 1750, sem drepnar voru af erlendu kaupmannavaldi. Það er „sorgarkapítuli“ í sögu verkmenningar á Íslandi. Íslenzk veiðarfæragerð nú á dögum er önnur sorgarsagan. Því ber ekki að leyna, að þar eiga hlut að máli erlendir veiðarfæraframleiðendur, innlendir kaupahéðnar og útgerðin, innlendu neytendurnir. Það er sannarlega kominn tími til að snúa við og huga betur að því, sem innlent er. Það kynni að fara svo, fyrr en varir, að það þætti ekki varhugavert að framleiða veiðarfæri á Íslandi til nota fyrir ísl. útgerð og til útflutnings.

Ég vænti þess, að hv. Alþ. beri gæfu til að samþ. frv. það, sem hér liggur fyrir, til stuðnings ísl. veiðarfæragerð.