27.10.1966
Neðri deild: 8. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1136 í B-deild Alþingistíðinda. (933)
8. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Eins og fram hefur komið hér í ræðu hæstv. dómsmrh., er þetta frv. um breyt. á lögum um bann gegn botnvörpuveiðum í landhelgi flutt í beinu framhaldi af frv., sem ég hef flutt hér nokkrum sinnum á Alþ. um þetta sama efni. Till. mínar höfðu aðallega beinzt að því að breyta þrem atriðum í gildandi lögum um bann við botnvörpuveiðum í landhelgi.
Í fyrsta lagi hafði ég lagt áherzlu á það, að sektarákvæði yrðu hækkuð allverulega frá því, sem verið hefur, og ákvæðunum breytt þannig, að sektarupphæðin yrði mismunandi eftir stærð þeirra skipa, sem í hlut ættu. Ég hef gert till. um, að sektir við brotum skipa, sem væru undir 200 rúml., yrðu óbreyttar. En hins vegar yrðu sektirnar hækkaðar allmikið á stærra flokknum, frá 200 til 600 rúml., og enn þá meira í stærðarflokki þar fyrir ofan. Í þessu frv., sem hér liggur nú fyrir frá hæstv. ríkisstj., er gengið til móts við þetta sjónarmið mitt og fallizt á þessa stærðarskiptingu skipanna, en hins vegar er ekki fallizt á mínar till. um breytingar á sektarákvæðunum. Að vísu er lagt til, að sektirnar verði hækkaðar talsvert, en engan veginn eins mikið og ég hafði lagt til. Ég skal að vísu játa það, að það er alltaf nokkuð vafasamt, hvað á að stíga stór skref í einu í þessum efnum, hvað á að hækka sektirnar mikið. Og það má vel vera, að hækkun sektanna, þó að nokkru væri minni en ég hafði lagt til, kæmi hér að talsverðu gagni, en ég efast um, að sú hækkun, sem gert er ráð fyrir í frv. ríkisstj., sé nægjanleg. Það er ekkert um það að villast, eins og ég hef bent á og greinilega kemur fram í umsögn saksóknara ríkisins, að það hefur verið að undanförnu um óheyrilega ágengni erlendra skipa að ræða á íslenzka landhelgi. Allt bendir því til þess, að þeir, sem þar eiga hlut að máli, séu farnir að líta þannig á sektarfjárhæðina, að hún skipti þá ekki mjög miklu máli í samanburði við það, sem um er að tefla. Sannleikurinn er líka sá, að ef um er að ræða skip, sem kostar orðið 40–50 millj. kr. og aflar mjög oft í einum veiðitúr söluverðmæta, sem nema rúml. 2 millj. kr. eða talsvert mikið á 3. millj. kr., þá er óttinn við sekt, sem ekki nemur hærri fjárhæð en 260 þús. kr. eða þar um bil, ekki ýkja mikill. Ég held því, að það þyrfti að athuga enn betur, hvort ekki er rétt, fyrst hreyft er við sektarfjárhæðinni, að hafa hækkunina nokkru meiri en lagt er til í frv., en þó með fullri viðurkenningu á þeirri hækkun, sem fram kemur hjá hæstv. ríkisstj. í þessum efnum, og ég tel að sjálfsögðu, að sú hækkun, sem lögð er til í frv., verði til bóta.
Í öðru lagi höfðu till. mínar beinzt að því, að sett yrðu skýr ákvæði í lög um það, að óheimilt væri að láta af hendi með nokkrum hætti veiðarfæri til þess aðila, sem staðinn hefur verið að veiðiþjófnaði, og honum væri ekki gefinn kostur á því að kaupa hin uppteknu veiðarfæri aftur fyrr en í fyrsta lagi að mánuði liðnum. Ég tel fyrir mitt leyti, að ákvæði í þessa átt séu mjög mikilvæg og mundu raunverulega þyngja sektarupphæðina í framkvæmd mjög mikið frá því, sem verið hefur. Á þetta sjónarmið hefur hæstv. ríkisstj. ekki viljað fallast og ekki tekið það upp í þetta frv., og það þykir mér miður. Það má vera, að svo hafi verið litið á, að það væri ekki með öllu viðkunnanlegt að hafa slík ákvæði í lögunum, að gefa þeim, sem tekinn hefur verið að veiðum í landhelgi ekki kost á því, eins og og nú er, að fá veiðarfærin strax aftur, aðeins gegn fjárhagslegri tryggingu, sem hann setur. En í þessum efnum vil ég benda á það, að hliðstæð ákvæði þeim, sem ég legg til, að tekin séu upp varðandi þetta atriði, er að finna hjá öðrum þjóðum. Ég rak mig t.d. á það nú fyrir stuttu síðan, að sagt var frá því, að tvö norsk síldveiðiskip voru tekin innan brezkrar landhelgi vegna veiðibrota þar, og þau voru færð til skozkrar hafnar. Frá því var svo skýrt, að stjórnendur þessara skipa hefðu þurft að þola nokkrar sektir, en þó hefði sá hluti refsingarinnar verið langþyngstur, að veiðarfærin hefðu verið gerð upptæk og þeir ekki átt neinn kost á því að fá þau aftur. Um þetta, var m.a. rætt í norskum blöðum og bent á það, að þarna giltu ströng lög í þessum efnum. Ég sé því ekki, að það ætti að vera neitt því til fyrirstöðu, að við hefðum í okkar lögum hliðstæð ákvæði og þetta og held t.d., að Bretar ættu ekkert gott með að finna að því, þó að við hefðum slík ákvæði, sem þeir hafa sjálfir hjá sér.
Í þriðja lagi hafði ég lagt til í mínum till., að tekin yrðu upp skýr ákvæði um það, að hægt væri að lögsækja vegna landhelgisbrota raunverulega eigendur þess skips, sem í hlut ætti, útgerðarfyrirtækið eða forsvarsmenn fyrirtækisins, þó að svo vildi til, að ekki yrði hægt að koma refsiákvæðum yfir, skipstjóra skipsins. Þetta ákvæði hefur ríkisstj. fallizt á og tekið upp í frv. á þann hátt, sem ég tel fullnægjandi, þótt með öðrum hætti sé heldur en ég hefði lagt til, og mér sýnist, að á allan hátt sé gengið vel frá þessu atriði í því frv., sem hér liggur fyrir. Ég held, að það sé fyllilega þörf á því að breyta þeim lögum, sem hér er gerð till. um að breyta, og ég held, að við þurfum að gæta þess vel um leið og við breytum þeim lögum, að breytingarnar komi að því gagni, sem til er ætlazt, en það er að sjálfsögðu það að stugga alvarlega við veiðiþjófum í okkar landhelgi og fæla þá verulega frá því að gera tilraunir til þess að stela fiski úr okkar landhelgi. Ég fagna því, að ríkisstj. hefur í allveigamiklum atriðum fallizt á þau sjónarmið, sem fram hafa komið hjá mér, en vildi mælast til þess, að sú n., sem kemur til með að fjalla um málið, íhugi það, hvort ekki sé rétt að ganga nokkru lengra en gert er í þessu frv., bæði varðandi sektarfjárhæðina og eins varðandi það atriði að gera veiðarfæri veiðiþjófanna raunverulega upptæk, en afhenda þau ekki strax aftur á þann hátt, sem nú er gert.