02.12.1966
Sameinað þing: 13. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í B-deild Alþingistíðinda. (94)

1. mál, fjárlög 1967

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð um pá einu brtt., sem ég flyt við fjárlagafrv. Á fjárlagafrv. eru nú ætlaðar 400 þús. kr. til sjúkraflugvalla. Þetta er auðvitað furðulega lág upphæð, þegar þess er gætt, á hversu mörgum stöðum brýn nauðsyn kallar að að koma upp sjúkraflugvöllum. En það skal játað, að hv. fjvn. hefur líka séð þörf á því að bæta þarna örlítið úr, því að í brtt. hennar er að finna hækkunartillögu á þessum lið, 20. gr., þannig að nefndin leggur til, að 600 þús. kr. verði varið á fjárlagaárinu til sjúkraflugvalla. Ég veit, að þessi upphæð er sömuleiðis allt of lág, því að hér er í mörg horn að lita og þarf víða að koma upp sjúkraflugvöllum til þess að tryggja það öryggi, sem skylt er þjóðfélaginu að veita í sjúkdómstilfellum.

Tillaga mín er í örstuttu máli um það, að þessi upphæð hækki um 100 þús. kr. og verði þá á fjárlögum 700 þús. kr. til sjúkraflugvalla og að við liðinn bætist, að af þessari upphæð skuli veittar a.m.k. 100 þús. kr. til sjúkraflugvallar í Tálknafirði. Vitanlega er hér um allt of lága upphæð að ræða. Að vísu er það svo, að í Tálknafirði er sérlega góð aðstaða til þess að gera sjúkraflugvöll á Sveinseyri, sem er lárétt sandeyri. Mundi þessi sjúkraflugvöllur sennilega verða þar byggður og óvíða betri aðstaða til að gera sjúkraflugvöll en einmitt þar. Nauðsynin á sjúkraflugvelli á þessum stað byggist á því, að þarna hefur risið upp myndarlegt útgerðarþorp á síðustu árum. Þarna eru myndarlegir fiskibátar gerðir út, þarna er verkstæði rekið, og blómlegt atvinnulíf er þarna. Það er erfitt um vik að ná sambandi við flugvelli, það er a.m.k. klukkutíma akstur á bíl til Patreksfjarðarflugvallar, þegar ökuskilyrði eru sómasamleg. Sá flugvöllur er ekki fullgerður, hann er aðeins hægt að nota um hábjartan dag, því að enn þá er hann ólýstur, og kannske allt að því hálft árið er ekki hlaupið að því að komast frá Tálknafirði til Patreksfjarðar, ef um sjúkraflutninga væri að ræða. Tálknfirðingar leggja því mjög mikla áherzlu á það, að sjúkraflugvelli verði komið upp í þeirra byggðarlagi, þ.e.a.s. í Tálknafirði. Oddviti Tálknafjarðarhrepps var hér nú í næstsíðustu viku suður frá einmitt til þess að reyna að vinna að þessu máli ásamt skólabyggingarmáli Tálknafjarðarhrepps.

Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða mikið um þetta. Ég býst þó við, að gerð sjúkraflugvallar á Sveinseyri eða þar annars staðar, sem hentugt þætti í Tálknafirði, muni kosta mun meiri upphæð en ég legg hér til, 100 þús. kr., en vildi þó mega vænta þess, að í upphæðinni 600 þús. kr. gæti verið einhver upphæð, sem verja mætti til mannvirkis á þessum stað, því að ég tel brýna nauðsyn kalla að, að þetta verði framkvæmt.

Ég hef svo þessi orð ekki fleiri, en vil vænta þess, að þessi eina brtt. mín finni náð fyrir augum fjárveitingavaldsins.