14.04.1967
Efri deild: 64. fundur, 87. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (961)
158. mál, almenningsbókasöfn
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Hv. 1. þm. Norðurl. e. hefur nú gert grein fyrir þeirri brtt., sem 3 nm. í menntmn. flytja við frv.
Það er rétt að láta þess getið, að í n. var vakið máls á þessari brtt., en það varð ekki samstaða um, að n. flytti hana.
Í sambandi við umsögn sveitarfélagasambandsins vil ég taka það skýrt fram, að í heimi er því ekki mótmælt, að gjaldið sé lagt á sveitarfélögin, heldur er það fyrirkomulagið á framlögum sveitarfélaga, sem sambandsstjórnin mótmælir, og áðan las ég hér upp það í grg., með þessum mótmælum, sem snertir þetta atriði, og þar segir bara, að stjórnin teldi eðlilegast og einfaldast, að allar greiðslur til sjóðsins kæmu úr ríkissjóði. Síðar í grg. er að því vikið, að það gæti þá jafnvel verið dregið frá rekstrarstyrk safnanna. Og ég tel, að það undirstriki enn þá betur það, að sveitarfélagasambandið mótmælir ekki gjaldinu út af fyrir sig, þegar það segir í grg., að það mætti trúlega kveða á um slíka tilhögun í reglugerð. Auðvitað dettur engum í hug, að í reglugerð sé hægt að leysa sveitarfélögin eða bókasöfnin undan gjaldskyldu, ef hún er í lögunum.
Það er rétt hjá hv. 1. þm. Norðurl. e., að hér er ekki um háar fjárhæðir að ræða, en þá getum við sjálfsagt líka orðið sammála um það, að þetta komi ósköp létt niður á sveitarfélögunum. Það, að einhverjar stofnanir eru styrktar af ríkisfé, þarf ekki endilega að réttlæta það, að jafnframt sé þá létt af þeim stofnunum gjaldskyldu. Ég vil t.d. minna á, þó að það sé nú kannske ekki fyllilega sambærilegt, styrki, sem hafa verið veittir til leiklistarstarfsemi og þar sem hins vegar ríkið hefur hirt í skemmtanaskatti margfaldan styrkinn aftur af þeim samtökum, sem hans hafa notið. Mér finnst út af fyrir sig, eins og ég sagði, þetta ekki vera beinlínis röksemd, að þó að ríkið styrki einhverja starfsemi eða einhverja stofnun, fylgi það, að það eigi þá einnig að taka á sig að greiða þau gjöld, sem með l. yrðu ella lögð á viðkomandi stofnun. Ég get því, og ætla að ég mæli þar einnig fyrir munn meðnm. minna, annarra en þeirra, sem brtt. flytja, lýst því yfir, að ég mun greiða atkv. gegn þessari brtt.