09.04.1968
Neðri deild: 95. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1012)
82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. 1. minni hl. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu á þessu frv., og hefur n. skipzt í þrjá hl. Ég hef leyft mér að flytja brtt. við frv., eins og það liggur nú fyrir frá Ed., og eru þær prentaðar á þskj. 487. Það hefur láðst í prentun að geta þess, að eftir brtt. breytist greinatalan í samræmi við þetta og vil ég leiðrétta það hér með. Þau atriði, sem ég á ekki samleið með meiri hl. félmn. um, eru í sambandi við 1. og 5. gr. frv.
Ég tel ekki ástæðu til þess að fara að breyta 9. gr. laga um aðstöðugjöld, þó stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga fari fram á það, og eins og fram kemur í áliti mínu á þskj. er ég þeirrar skoðunar, að aðstöðugjöldin séu mjög óæskilegur tekjustofn fyrir sveitarfélögin og í mörgum tilfellum mjög ranglátur skattur, en hins vegar ber að játa það, að það er ekki auðvelt verk að finna tekjustofn fyrir sveitarfélögin, sem kæmi í stað aðstöðugjaldanna, og því er mér ljóst, að það getur orðið á því alllöng bið og að sveitarfélögin verði enn um sinn að notast við þennan tekjustofn, en ég tel brýna nauðsyn bera til þess, að það fari fram mjög ítarleg endurskoðun á ákvæðum aðstöðugjalda í tekjustofnal. sveitarfélaganna, því að eins og ég gat um, eru þau að mörgu leyti mjög ranglát. Og ég tel, að í sumum tilfellum sé gengið allt of langt í álagningu aðstöðugjalda á fyrirtæki, sem þurfa að búa við mikinn taprekstur, en skapa sveitarfélögunum miklar tekjur að öðru leyti, launatekjur fjölmargra starfsmanna; og á ég þá auðvitað alveg sérstaklega við þau fyrirtæki, sem stunda sjávarútveg, útgerð eða vinnslu sjávarafurða. Ég tel, að fyrirtæki, sem og allir einstaklingar, eigi að hafa nákvæmt bókhald, eigi að gefa rétt upp til skatts, en það á ekki að vera hægt að ganga það langt, að þegar fyrirtæki tapar, á ekki fyrir afborgunum lána og sinna skuldbindinga, þá geti sveitarfélögin undir slíkum kringumstæðum skattlagt þau ár eftir ár, þegar illa gengur. Skal ég ekki hafa þessi orð fleiri um 1. gr. frv.
Við 5. gr. legg ég til, að sú gr. falli niður, en í upprunalega frv., eins og það var lagt fyrir Ed., var lagt til, að e-liður ákvæða til bráðabirgða ætti að gilda að nýju í 5 ár, en í meðförum n. í Ed. varð sú breyting á, að lagt er til, að á árunum 1968 og 1969 sé heimilt að víkja frá ákvæðum skattal. um frádrátt samkv. l. um tekjuskatt og eignarskatt, 11. gr. B, 2. mgr., 12. gr. D og 17. gr. 2. mgr. Það eru aðallega þau ákvæði, að fyrirtæki megi ekki færa taprekstur á milli ára, sem ég tel fullkomlega ranglát. Þar hafa sveitarfélögin haft 4 ára aðlögunartíma og ég tel eðlilegt, að að loknum þessum tíma sé sveitarfélögunum skylt að búa við sömu ákvæði og eru við álagningu tekjuskatts hjá ríkinu. Mörg sveitarfélög hafa á þessum tíma aðlagað sig þessari breytingu og ættu að vera tilbúin til þess. Ef fyrirtæki, sem tapaði einni milljón á s.l. ári, á að koma út slétt á næsta ári, þyrfti það að græða 1.6 millj. kr., því að útsvar, tekjuútsvar og kirkjugarðsgjald til sveitarfélagsins, mundi nema 600 þús. kr., og það sjá allir, að með þessari stefnu er ekki verið að skapa traust atvinnufyrirtæki, ef sveitarfélögin vilja nota sér þessa heimild og taka ekki tillit til taprekstrar, sem verður hjá fyrirtækjum. Þess vegna tel ég eðlilegt, að þetta falli alveg niður, og ég skil eiginlega ekki í því, að forustumenn sveitarmála geti í raun og veru staðið að því að fara fram á, að þessi ákvæði séu framlengd. Ég hef sjálfur átt sæti í sveitarstjórn í 22 ár og hef þar af leiðandi mikið unnið að sveitarstjórnarmálum, og ég hygg, að það eigi ekki að vera sú eina stefna sveitarstjórnarmanna að reyna að seilast svo langt í skattálagningu á hendur fyrirtækjum, ekki sízt þeim sem standa undir útflutningsframleiðslunni, að þau geti eiginlega aldrei, þótt eitthvað gangi vel, rétt úr kútnum, og þess vegna tel ég fyllstu ástæðu til þess að taka tillit til þessa og að þetta verði fellt niður.
Fyrir nokkru voru hér til umr. á Alþ. og hér í þessari hv. þd. sparnaðarfrv. ríkisstj., og þá stóð þannig á, að það voru tvær greinar, sem snertu sjávarútveginn, sem ákveðnir þm., og þó alveg sérstaklega einn þm., hv. 4. þm. Reykv., gerði þá að umræðuefni og lét svo ummælt, að við, sem hefðum staðið framarlega í félagsmálum útgerðarinnar, ættum ekki að láta ríkisstj. hafa okkur til þess að fella niður þessi ákvæði, en honum láðist alveg, þeim ágæta og prýðilega sannorða manni, að geta þess um leið, að í staðinn fyrir 30 millj. fengum við, forsvarsmenn útgerðarinnar, 124 millj. kr. til fiskveiðasjóðs. Ég sá ekki ástæðu til þess að koma inn á þetta atriði, vildi ekki tefja umr., ég bjóst við því, að tækifæri myndi gefast síðar, og ég er þessum hv. þm. og ýmsum öðrum afskaplega þakklátur, ég get eiginlega ekki með orðum lýst, hvað ég er þakklátur fyrir áhuga hans og góðvild í garð sjávarútvegsins, en nú vil ég minna hann og aðra hollvini sjávarútvegsins á það, við afgreiðslu á þessu frv., að nú gefst þeim tækifæri til þess að sýna hug sinn í verki við atkvgr., og ég efast auðvitað ekki um, að hann mun standa við það að rétta upp höndina með mér í sambandi við þessa till.