09.04.1968
Neðri deild: 96. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í B-deild Alþingistíðinda. (1027)
82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. meiri hl. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Hér hefur komið fram brtt. frá hv. 4. þm. Vestf. varðandi 5. gr. og er nokkuð til samræmis við þá till., sem hann flutti hér við 2. umr., en þá náði ekki fram að ganga. Hv. 4. þm. Vestf. lýsti því í dag hér úr ræðustóli, að hann væri búinn að vera sveitarstjórnarmaður í 22 ár, og ég verð að segja, að flutningur á þessari till. finnst mér lítið vera í samræmi við þann anda, sem ég hélt, að mundi ríkja hjá sveitarstjórnarmönnum almennt. Frá því að ég fór að fást við sveitarstjórnarmál, sem er nú nokkru lengra síðan heldur en hv. 4. þm. Vestf. byrjaði, hefur alltaf verið grundvallarregla hjá þeim mönnum, sem ég hef starfað með, þeim mönnum, sem ég hef kynnzt í sambandi við sveitarstjórnarmál, að hafa sem mest samræmi og jafnræði og réttlæti í þeim álögum, sem lagðar eru á þegna sveitarfélagsins til þess að standa undir nauðsynlegum útgjöldum og byrðum, sem á sveitarfélaginu hvíla. Hér er komin fram till., sem á að brjóta þessa reglu og að mismuna aðilum, gera aðstöðumun, meta, hvort þetta fyrirtæki á frekar að njóta fríðinda heldur en önnur. Ég tel þetta brot á grundvallarreglum þeim, sem sveitarfélög í landinu hafa starfað eftir og starfa eftir enn í dag og ég vonast til, að þær í framtíðinni starfi eftir, þ.e. að gera engar þær ráðstafanir, sem skapa beint óréttlæti, misræmi á milli gjaldenda í hinum einstöku byggðarlögum. Ég verð að segja, að mig undrar nokkuð það kapp, sem hv. 4. þm. Vestf. leggur á það að fá þetta ákvæði fellt út úr frv. Þetta er heimildarákvæði aðeins til tveggja ára um, að sveitarstjórnir fái að meta það, sem þær eru að gera, það; sem þær telja réttast að gera í sambandi við fyrningarafskriftir og annað slíkt. Ég held, að það sé ekki til of mikils mælzt, þó að þessi ákvæði fái að standa í tvö ár, en það getur vel verið, að það komi að því síðar, að það verði talið eðlilegt, þróun mála verði þannig, eins og með þau tvö ákvæði, sem nú hafa verið felld út úr því í sambandi við sjómannafrádrátt og tekjur giftra kvenna. Það hefur þróazt í þá átt undanfarin 4 ár, að við hér erum sammála um það að taka þessi ákvæði út, en meiri hl. þings hefur þó lýst þeirri skoðun sinni, að rétt sé að halda hinum þremur ákvæðunum, sem upphaflega voru sem bráðabirgðaákvæði í l., inni enn þá.
Ég skal taka fram og þarf þó reyndar ekki að gera það, að ég legg mjög mikla áherzlu á það, að þessi brtt. verði ekki samþ., því að hún brýtur beinlínis þá grundvallarreglu, sem sveitarfélögin hljóta að verða að starfa eftir í framtíðinni og eiga að starfa eftir, en það er að mismuna ekki hinum einstöku gjaldendum á kostnað annarra.