09.04.1968
Neðri deild: 96. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1028)

82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. 2. minni hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég kom með brtt. við 2. umr. málsins, sem því miður náðu hér ekki fram að ganga, og ég ætla að freista þess að koma hér með brtt., sem orðast á þessa leið:

„Á eftir 1. gr. komi ný gr. þannig: a-liður 10. gr. laganna orðist svo:

Allt að 1/2% af rekstri fiskiskipa og flugvéla og af verzlun með tilbúinn áburð. Áburðarverksmiðjan er þó undanþegin aðstöðugjaldi.“

Ég vil geta um það, að a-liðurinn er þannig í l.: „Allt að 1/2% af rekstri fiskiskipa og flugvéla.“ Það, sem ég legg til, að bætist hér við, er: af verzlun með tilbúinn áburð.

Eins og hv. þm. vita, er þetta náttúrlega önnur aðalrekstrarvara landbúnaðarins. Eins og ég gat um í minni ræðu áðan, er lagt allt upp í 2% á þetta, eða frá 1/2% upp í 2%, og í reyndinni er þessu þá bætt líka við verðið. Bændurnir verða að taka á sig það kemur þannig út, að þeir taka á sig aðstöðugjaldið af þessu, og þessi liður verður áreiðanlega á þessu ári og næstunni nógu erfiður, þó að þetta sanngirnismál næði fram að ganga hér í þessari hv. d.