09.04.1968
Neðri deild: 96. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1206 í B-deild Alþingistíðinda. (1035)
82. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Það hafa orðið nokkrar umr. um frv. það um breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga á þskj. 370, sem er 82. mál hæstv. Alþ. Samband ísl. sveitarfélaga hefur lagt mjög mikla áherzlu á það, að þetta frv. yrði afgreitt hér frá þinginu að þessu sinni. Ástæðan til þess, að Samband ísl. sveitarfélaga beitir sér mjög fyrir því, er knýjandi nauðsyn sveitarfélaganna til þess að fá skýrari ákvæði laga um ýmis atriði, er til bóta mega verða fyrir sveitarfélögin í landinu.
Ég held það sé nauðsynlegt, að hv. alþm. geri sér grein fyrir því, að erfiðleikar þeir, sem sveitarfélögin í landinu verða að horfast í augu við nú, eru ekki minni en hjá öðrum í þessu þjóðfélagi. Hv. alþm. skuli einnig gera sér grein fyrir því, að ef við gerum upp dæmið um það, hverju sveitarstjórnirnar í raun og veru mega ráða um útgjöld sveitarfélagsins, eru það í sveitarfélagi af þeirri stærð, sem ég þekki bezt til, 70–80% af útgjöldum sveitarfélagsins, sem er ráðstafað með löggjöf frá Alþ. Það eru um 20% af útgjöldum sveitarfélagsins, sem sveitarstjórnin raunverulega má ráðstafa, og reyndar er of mikið að segja, að hún megi ráðstafa því, vegna þess, að þó það sé ekki beint í l. bundið, er það hinn daglegi rekstur sveitarfélagsins sjálfs, sem þar kemur til, og þær kvaðir, sem byggðarlagið óbeint og beint leggur á sveitarfélagið. Það er því öllum ljóst, að þegar verður nú farið að leggja á gjöld til sveitarfélagsins á yfirstandandi ári, verður full hart á því, að hægt verði að fylgja þeirri reglu, sem fylgt hefur verið undanfarandi ár, og það verður engin tilhlökkun sveitarstjórnarmanna að þurfa að fara að hækka gjaldstigana á gjaldendum hreppsfélaganna nú. Það verður engin ánægja þeirra að þurfa að hækka útsvarsstigana á gjaldendunum almennt. Það væri því mjög misráðið hjá hv. Alþ., ef það ætlaði að þrengja löggjöfina um útsvarsálagningu sveitarfélaganna. Við skulum alveg gera okkur grein fyrir því, að það er heldur engu byggðarlagi til hagsbóta, þó þrengt sé mjög að sveitarfélaginu í heild, ekki sízt þegar atvinnuástandið kreppir að, eins og hefur gerzt á yfirstandandi vetri. Þá hafa sveitarstjórnir orðið að halda uppi meiri vinnu heldur en þær ella hefðu gert, ef atvinnuástandið hefði verið eðlilegt. Til þess að það sé framkvæmanlegt, verða sveitarstjórnirnar að hafa möguleika á tekjum.
En það er svo, að það, sem við erum að deila um hér, eru tvær brtt., sem fram eru komnar. Þær hafa í sjálfu sér mjög lítil áhrif á álagninguna á yfirstandandi ári, en ef þær yrðu samþykktar inn í frv. nú, gætu þær haft þau áhrif, að frv. næði ekki fram að ganga á þessu þingi. Um atvinnurekstur er það að segja, að ég held, að það sé stefna velflestra sveitarstjórna í landinu að þrengja ekki að atvinnuvegunum, m.a. vegna þess, að þeim er það ljóst, að það er byggðarlaginu fyrir beztu, og ég held, að þeir atvinnuvegir, sem hér er vísað til, hafi sáralítil eða engin útsvör borið síðustu árin og muni ekki bera á yfirstandandi ári. Þess vegna held ég, að ákvæðið um frádráttinn vegna taps fyrri ára mundi ekki hafa mikil áhrif á þeirra útsvarsgreiðslu, vegna þess að hún verður að líkindum ekki til staðar. Auk þess mundi það þykja á ýmsan hátt óeðlilegt, ef t.d. síldarverksmiðjurnar, sem rokgræddu nú fyrir tveim árum, hefðu getað komizt hjá algjörri útsvarsgreiðslu vegna taps frá fyrri árum. Það hefði ekki verið nein vinsæld, sem sveitarstjórnarmenn hefðu fengið út á það að taka svo hærri útsvör af hinum almenna borgara í landinu, í sínu byggðarlagi, enda hefðu þeir orðið að gera það, ef þeir hefðu ekki haft þessa möguleika. Þess vegna held ég, að brtt., sem hv. 4. þm. Vestf. flytur hér, muni ekki hafa áhrif til annars en þess, að hún gæti komið í veg fyrir, að þetta frv. næði fram að ganga.
Um brtt. þá, sem hv. 5. þm. Norðurl. e. flytur, vil ég segja það, að ég á mjög bágt með að trúa því, að á áburð séu lögð 2% aðstöðugjöld. Í því byggðarlagi, sem ég hef bezt þekkt og verið í sveitarstjórn fyrir um nokkurt skeið, er það svo, að þar hefur aldrei verið lagt aðstöðugjald á. Ég hygg, að ef hér væri afgreidd till. um það, að aðstöðugjald á áburð skyldi vera 1/2%, yrði mjög erfitt að komast fram hjá því að leggja þetta aðstöðugjald á, ef búið væri að marka það svo með löggjöf. Þess vegna held ég, að slík till. sé ekki einhlít frá sjónarmiði þess, sem á að verja, og ég treysti því, að sveitarstjórnir séu almennt það frjálslyndar og kunni það vel að meta málavexti, að þær hafi ekki í hæsta flokki aðstöðugjalds vöru með jafn lélega eða enga álagningu eins og áburður er. Þess vegna held ég, að till. mundi geta haft þau áhrif, að það yrði farið að leggja aðstöðugjöld á áburð í þeim sveitarfélögum, sem ekki hafa gert það, sem ég hygg að séu velflest. Ég vil líka benda á það, að í þessu frv. er búið að bæta um fyrir þeim sveitarfélögum í landinu, sem verst eru sett, frá því sem er í gildandi löggjöf um afstöðu þeirra gagnvart jöfnunarsjóði. Það yrði þeim því mikið hryggðarefni, ef málið strandaði á þessu þingi. Ég er sannfærður um það, að þær brtt., sem hér eru á ferðinni, bæta málið á engan hátt, en þær gætu orðið til þess að stöðva framkvæmd þess á þessu þingi. Það væri sveitarfélögunum í landinu til tjóns og ég mundi greiða atkv. gegn brtt. við frv.