05.04.1968
Neðri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1067)
157. mál, Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands
Frsm. (Benedikt Gröndal):
Herra forseti. Menntmn. er sammála um að mæla með því, að frv. þetta um Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands verði samþ. með einni breytingu. Breytingin á þskj. 505 er við 3. gr. í frv. segir svo, að fulltrúar háskólaráðs og stúdentaráðs í stjórn hinnar nýju stofnunar skuli tilnefndir, en í grg. með frv. má sjá, að þar er gert ráð fyrir, að fulltrúar þessir skuli kosnir. Brtt. er á þá lund, að í stað þess, að þessir menn séu tilnefndir, skuli þeir vera kosnir af stúdentaráði og háskólaráði. Með þessari breytingu leggjum við til, að frv. verði samþ.
Ég vil geta þess, að menntmn. hefur borizt bréf frá stúdentaráði Háskóla Íslands, þar sem stjórn þess kemur því á framfæri, að mikið starf hafi verið lagt af mörkum til þess, að frv. um Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands nái fram að ganga á því þingi, sem nú situr. Háskólastúdentar binda vonir við stofnun þessa, eins og fram kemur í grg. frv. Það er því einlæg ósk stjórnar stúdentaráðs að menntmn. afgreiði frv. og tryggi skjóta og farsæla afgreiðslu þess í Nd.