27.11.1967
Neðri deild: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 149 í B-deild Alþingistíðinda. (107)
65. mál, verðlagsuppbót á laun og vísitala framfærslukostnaðar
Eðvarð Sigurðason:
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er eitt af fylgifrv. gengisfellingarinnar, og segja mætti, að í sambandi við það væri full ástæða til þess að ræða ýtarlega allar gjörðir þessarar ríkisstj. í launamálunum yfirleitt, en til þess gefst annað tækifæri, og ég ætla ekki að gera það núna, aðeins ræða síðustu atburði varðandi þessi mál.
Frv. það, sem lagt var fram hér í s.l. mánuði um efnahagsaðgerðir, fól í sér, eins og menn muna, um 754–800 millj. kr. nýjar álögur og kjarni þess máls var, að launþegar ættu að taka þessar byrðar á sig bótalaust. Það átti að taka vísitöluna úr sambandi, rjúfa það samkomulag, sem verið hefur um þau mál frá því á miðju ári 1964. Ég lýsti því yfir við 1. umr. þess máls, að ég teldi slíkt algert samningsrof við verkalýðshreyfinguna, og ég held, að það megi segja, að verkalýðshreyfingin í heild hafi litið svo á, því að sennilega hafa aldrei í okkar sögu jafneindregin og almenn mótmæli dunið yfir neina ríkisstj. eins og komu frá verkalýðshreyfingunni varðandi þessar aðgerðir.
Um það mál skapaðist mjög náin samstaða innan verkalýðshreyfingarinnar, og ekki bara með félögum innan Alþýðusambandsins, þrátt fyrir það þó að þau lúti forystu manna með ýmsum pólitískum skoðunum, heldur og einnig með Alþýðusambandinu og Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Má segja, að það sé í fyrsta sinn, sem þessi tvö stóru launþegasamtök taka upp jafnnána samvinnu og var milli þeirra í þessu máli.
Síðan hófust svo samningaumleitanir við ríkisstj., sem hér hafa ýtarlega verið ræddar áður og ég þarf ekki að fara að lýsa í smáatriðum. Niðurstaða allra þeirra viðræðna, rannsókna o.s.frv. varð sú, að enginn árangur varð af því varðandi höfuðefni málsins, þ.e.a.s. að vísitala yrði felld niður á laun vegna þeirra verðhækkana, sem áttu að verða afleiðingar og urðu afleiðingar aðgerðanna í októbermánuði.
Við buðum þá, í þeim viðræðum, að tekin skyldi upp viðmiðun við nýja vísitölugrundvöllinn, sem þýddi það, að við gáfum eftir af okkar fullu kröfum allverulega, en við töldum, að í framhaldi málsins, ef nýr grundvöllur væri látinn mæla og hafa áhrif á kaupgjaldið, væri það til frambúðar ekki lakari mælikvarði en gamli grundvöllurinn hefur verið. En ég vil undirstrika, að það tilboð okkar var miðað við það, að slíkt yrði framhald málanna.
Þegar engin niðurstaða fékkst um þessi mál í viðræðum við ríkisstj., tóku verkalýðsfélögin á ráðstefnu, sem Alþýðusambandið boðaði til, ákvörðun um, að til vinnustöðvunar skyldi koma 1. des., ef ekki væri þá orðið við þessari kröfu félaganna. Frammi fyrir þessum vanda stóð svo hæstv. ríkisstj., þegar fall sterlingspundsins rak á hennar fjörur, og má held ég segja, að það hafi verið sannkallaður hvalreki. Þegar þeir hlutir skeðu, var nú blaðinu snúið við. Við vissum alltaf, að frv. í okt. var aðeins upphaf að öðru og miklu meira, en það var þá talið bæði óljóst dæmi og kannske engan veginn eins stórt eins og margir vildu halda fram, og það tæki langan tíma að reikna allt það dæmi varðandi atvinnuvegina og komast að einhverri niðurstöðu.
Hins vegar skipti nú svo um, að þegar gengi sterlingspundsins hafði verið fellt, virtust liggja fyrir og það í svo til einu vetfangi allir útreikningar um, hverjar væru þarfir íslenzku atvinnuveganna, sem ekki lágu fyrir áður, og var reiknað upp á brot úr prósentu, hvað hver og einn þyrfti til sinna hluta, þegar gengislækkun var annars vegar í sigti. Framhald þessara mála þekkja hv. þm. og þarf ekki að rekja það nánar. En nú var blaðinu snúið við á þann veg, að það þótti ákaflega sanngjarnt og eðlilegt, það var nú endurtekið hér af hæstv. forsrh., að fólk fengi uppbætur fyrir það, sem liðið var og lög og samningar stóðu til, að það skyldi fá. Nú taldi hæstv. ríkisstj. sig hafa efni á því að láta koma uppbætur 1. des., uppbætur á launin vegna þeirra verðhækkana, sem orðið höfðu fram að 1. nóv. En þar var að sjálfsögðu langþyngst á metunum og raunar nærri eitt, sú hækkun, sem varð á landbúnaðarvörunum vegna lækkunar á niðurgreiðslum. Nú var sem sagt hægt að bæta þetta, en nú voru hins vegar viðhorfin svo breytt, að í staðinn fyrir það, að vísitalan skyldi taka til að mæla aftur 1. marz, eins og ætlað var með hinu fyrra frv., skyldu nú felldar niður að fullu allar frekari verðbætur á kaupið, þrátt fyrir það að við blasi nú sú mesta hækkun á nauðsynjavörum almennings, sem við höfum lengi eygt.
Það er enginn efi á því, að sú mikla gengisfelling, sem nú hefur átt sér stað á íslenzku krónunni, er ekki nema að litlum hluta, minnstum hluta, afleiðing af lækkun sterlingspundsins. Það er komið í ljós, sem við raunar sögðum hér í stjórnarandstöðunni við 1. umr. hins fyrra frv., að það, sem var verið að reyna að fela í vor, er nú ekki lengur hægt að fela og kannske heldur ekki sú sama knýjandi nauðsyn að haft sé í felum eins og var fyrir kosningarnar í vor. En gengisfellinguna almennt ætla ég ekki að ræða hér. Ég vil aðeins nota þetta tækifæri til þess að mótmæla því mjög eindregið og sérstaklega, að stór ástæða fyrir gengisfellingunni hafi verið sú, að verkafólkið hafi tekið til sín stærri hlut af þjóðartekjunum undanfarið en áður. Og þetta sé, eins og látið hefur verið liggja að oftar en einu sinni, ein af ástæðum þess, að gengið þyrfti að fella.
Ég vil bara minna á þá staðreynd, að kaupmáttur tímakaups hefur á undanförnum 7–8 árum verið oftast mun lægri, og stundum miklu lægri en hann var á árinu 1959. Og hann er nú svipaður og hann var á árinu 1959, almennt svipaður og hann var þá. Það má finna einstök dæmi, sem eru örlítið á annan veg. Hann hefur farið batnandi síðan á árinu 1964 og verkalýðshreyfingunni hefur einmitt vegna verðtryggingarinnar tekizt að bæta hag sinn nokkuð og einnig hefur verðtryggingin á laununum orðið til þess, að stjórnarvöldin hafa haft meiri hemil á verðlaginu en áður var. Og það er einmitt þetta tvíþætta hlutverk, sem verðtryggingin á að hafa.
Efni þessa frv. er í fyrsta lagi það, að ákveðið er, að greiða skuli uppbót á laun frá 1. des. n.k. Það er nú orðað þannig í þessu frv., að það er mjög villandi, ég vil segja rangnefni. Það er sagt, að verðlagsuppbót skuli aukin, en það er þvert á móti verið að takmarka þá verðlagsuppbót, sem hefði átt að koma að óbreyttum lögum. Ég held, að það hefði nú verið rétt að segja það alveg skýrum stöfum, ekki vera að neinum feluleik á þennan hátt. Það er sérlega einkennilegt að heyra þetta berast til landsfólksins á öldum ljósvakans, í gegnum útvarpið, að það sé verið að auka verðlagsuppbótina á launin, þegar einmitt er verið að gera hið gagnstæða.
Út af fyrir sig mundi sú verðlagsuppbót, sem hér er um rætt, vera viðhlítandi, ef síðasti málsl. 1. gr. væri felldur niður, en þar er sagt, að þessi verðlagsuppbót skuli gilda, þar til aðilar á vinnumarkaðinum semja um annað. Og jafnframt er svo lagt til með þessu frv., að verðlagsuppbót, eins og hún hefur verið ákveðin með l., skuli felld niður.
Hér var fyrir stuttri stundu af hæstv. forsrh. sagt, að það hefði þótt eðlilegt, að nú með þessum breyttu viðhorfum hefðu aðilar vinnumarkaðsins þetta í sínum höndum að semja um vísitölu á kaup; það væri frjálst. Það hefði ekki verið horfið að því að banna verðtryggingu á laun. Á þessu er að sjálfsögðu enginn eðlismunur, því sem nú felst í þessu frv. með þessu ákvæði og því beinlínis að banna verðlagsuppbót, ef grunnkaupið er ekki bundið eins og verið hefur. Á tímabilinu 1960–64 var grunnkaupið ekki bundið. Nú er hins vegar hvort tveggja sett í eitt, grunnkaupið og verðlagsuppbótin. En það er auðvitað ekki nokkur eðlismunur á þessu, aðeins blæmunur, en ekki meira, alls ekki meira. Það er mjög ákveðin og skýr túlkun hæstv. ríkisstj. og hennar sérfræðinga, að gengisfellingin komi ekki að notum þeim, sem hún á að þjóna, ef kaupgjald verði bundið við vísitöluna. Það má náttúrlega nærri geta, hvort atvinnurekendur muni ekki notfæra sér þessa röksemd í sínum átökum við samningaborðið við verkalýðshreyfinguna. Það verður naumast skýrar sagt en gert hefur verið, að þeir skuli ekki láta undan í einu eða neinu, og muni sjálfa sig fyrir hitta, ef þeir geri það.
2. gr. þessa frv. er svo um það, að reikna skuli út nýja framfærsluvísitölu, en það er atriði, sem út af fyrir sig er hægt að samþykkja, að taka upp nýja framfærsluvísitölu eftir þeim grundvelli, sem lagður hefur verið og gengið var úr skugga um, að muni sennilega vera nokkuð í samræmi við neyzlu, eins og hún nú er.
En þriðja og höfuðatriði þessa frv. er að fella niður úr I. ákvæði um, að laun skuli greidd eftir verðlagi, verðlagsvísitölu. Þetta er að sjálfsögðu höfuðatriði frv. og allt annað þjónar sem sagt aðeins þessu höfuðmarki frv. Það er sjálfsagt óþarfi að taka það fram, en þó vil ég gera það, að um þetta frv. er ekkert samkomulag við verkalýðshreyfinguna. Einu afskiptin, sem samninganefnd verkalýðshreyfingarinnar hefur haft af þessum málum á þessu síðasta stigi, eru þau að reyna að hafa áhrif á, að frv. skuli þó ekki vera verra en það er nú í þeirri mynd, sem það er hér lagt fyrir. Eins og ég sagði er afnám verðtryggingarinnar aðalatriði frv. Um það mál yrði aldrei samið við verkalýðshreyfinguna eins og nú standa sakir. Þvert á móti er það stefna verkalýðshreyfingarinnar og hefur rækilega verið túlkuð einmitt nú hina síðustu daga, að hún telur, að laun verði að vera tengd verðlaginu. Afnám verðtryggingarinnar á kaupið leiðir óhjákvæmilega til nýs ófriðar á vinnumarkaðinum. Þessa reynslu höfum við enn svo ferska frá því á árunum 1960–64, og ég held, að það væri nú rétt, að menn íhuguðu rækilega, hvernig málin þá gengu fyrir sig, áður en þeir taka upp ákvæði þessa frv.
Á föstudaginn sagði hæstv. forsrh. einmitt, að reynslan á þessu árabili, á árunum 1960–64, hefði orðið sú, að stöðugleiki í þróun verðlags og launa hefði ekki orðið meiri, heldur hið gagnstæða. Þetta er alveg hárrétt mat. Óvissan, ófriðurinn á vinnumarkaðinum hefur ekki orðið meiri en hann var á þessu árabili. Upp á þetta er nú verið að bjóða að nýju. Afleiðingar gengisfellingarinnar hljóta óhjákvæmilega að verða nýtt dýrtíðarflóð. Helztu nauðsynjar almennings hækka kannske mest og strax í verði. Þeir, sem lægst hafa launin, eiga erfiðast með að standa undir slíkum hækkunum. Það verkar á nákvæmlega sama hátt og afleiðingar hins fyrra frv. hæstv. ríkisstj. Það mun hafa verið reiknað út, að afleiðingar þessara verðhækkana, að afleiðingar gengisfellingarinnar á verðlagsvísitöluna nýju muni kannske nema um 7%. Ég er alveg sannfærður um, að þessir útreikningar standast ekki. Hækkunin hlýtur að verða mun meiri. Það er örugg reynsla, að þegar á annað borð verða verðbreytingar, eru þær alltaf mun meiri en sérfræðingarnir hafa reiknað með. Og það er fyrst og fremst vegna þess, að hvers konar aðilar í þjóðfélaginu, fyrst og fremst milliliðirnir og þeir, sem hafa með hvers konar þjónustu að gera og alls konar braskarar, nota tækifærið til mun meiri hækkana á öllum sviðum en gefið er tilefni til, t.d. í þessu tilviki með gengisfellingunni. Í blóra við slíkar ráðstafanir er fullt af alls konar aðilum, sem nota tækifærið um leið.
Ég ætla ekki að fara að gizka á, hvað þessi verðhækkunaralda muni leiða af sér í framfærsluvísitölunni. Það mun koma í ljós á sínum tíma. En ég vil endurtaka, að hún hlýtur að koma langþyngst niður á þeim, sem úr minnstu hafa að spila. Og til viðbótar áhrifum þessarar gengisfellingar sýnist mér svo koma, að svo til allt, sem ráðgert var í hinu fyrra frv. ríkisstj., muni einnig koma til framkvæmda, þar sem það er einvörðungu lækkun niðurgreiðslubótanna, sem verður bætt núna 1. des., einnig hækkun á tóbaki og áfengi sennilega að einhverju leyti, annað ekki. Eftir stendur, trúi ég, allt, sem upp var talið í hinu fyrra frv. (nema e.t.v. farmiðaskatturinn), söluskattur á póst- og símaþjónustu, söluskattur á hljóðvarp, söluskattur á sjónvarp, hækkun iðgjalda almannatrygginga, hækkun sjúkrasamlags og hækkun hitaveitu. Ekkert hefur verið um það sagt, hvað verði með þessi mál, en a.m.k. á meðan ekki er fyllilega yfirlýst, að eitthvað af því verði dregið til baka, hljótum við að reikna með, að til viðbótar gengisfellingunni komi þetta bótalaust á herðar launþeganna.
Ég held, að rétt sé, að menn geri sér það fyllilega ljóst, að verkalýðshreyfingin mun ekki una bótalaust slíku dýrtíðarflóði, sem óhjákvæmilega hlýtur að verða afleiðing þessara ráðstafana, sem nú hafa verið gerðar. Strangt aðhald í verðlagsmálum gæti miklu ráðið um, hvernig framhaldið verður. Það sem okkur enn hefur verið sýnt af því taginu er nú þess eðlis, að það lofar ekki miklu. Þegar ákveðið er, að aðilar, sem notið hafa verzlunarlánanna erlendu, skuli fá að hækka allar sínar birgðir, ef þeir skulda þær, sjáum við, að það eru ekki þessir aðilar, sem fyrst og fremst eiga að taka á sig byrðarnar, og á sama hátt er með skipafélögin. Hvernig farið verður með þessi mál nú, getur haft mjög mikil áhrif á, hver verður þróun þessara mála á næstu tímum, en eðli gengisfellingar er auðvitað fyrst og fremst stórfelld tilfærsla á tekjum innan þjóðfélagsins milli stétta. Ef ekki verða settar öflugar skorður með hlíðarráðstöfunum, er augljóst, að gengis felling kemur til með að koma harðast niður á launafólkinu og þess vegna verður enn að verðtryggja launin.
Ég mundi telja, að nauðsynlegar breytingar á þessu frv. væru aðallega tvær: 1) Að fella niður síðasta málsl. 1. gr. og 2) Í staðinn fyrir 4. gr. þess þyrftu að koma skýr ákvæði um verðtryggingu launa og tryggingarbóta, eins og verið hefur. Miðstjórn ASÍ hefur beint því til verkalýðsfélaganna að aflýsa verkföllum 1. des., vegna þess að krafa sú, sem verkföllin voru miðuð við, hefur verið uppfyllt, þótt raunar skert sé. En verði ekki gerðar þessar breytingar á því frv., sem hér liggur fyrir og ég var að enda við að lýsa, held ég, að rétt væri fyrir hv. alþm. að gera sér ljóst, að aflýsing verkfallanna nú yrði aðeins frestun, frestun á átökum. Frv., eins og það liggur fyrir, boðar nýjan ófrið á vinnumarkaðinum. Þetta mundi ég vilja, að hv. alþm. gerðu sér fyllilega ljóst, áður en málið verður afgreitt.