27.11.1967
Neðri deild: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 154 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

65. mál, verðlagsuppbót á laun og vísitala framfærslukostnaðar

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég held, að ég hafi lesið það í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins eða einhverri grein í Morgunblaðinu, að svona venjulega væri ekki neitt sérstaklega hátt ris á Alþ. En engin regla er til án undantekninga, og það stóð í þessari sömu grein, að sú undantekning væri á þessu, að þegar forsrh. stigi í stólinn og léti til sín heyra, væri venjulega hátt ris á Alþ. Ég gat nú ekki satt að segja fundið það, þegar hæstv. forsrh. talaði hér áðan, að það væri neitt sérstaklega hátt ris á honum eða hátt ris á Alþ. Og ég get líka skilið það ákaflega vel, vegna þess að þegar ráðh. steig hér í stólinn, kom hann hingað til að jarðsyngja það, sem hann telur sig hingað til hafa bezt gert, en það er júní-samkomulagið 1964. En ef Morgunblaðið hefur hins vegar sérstaka tilhneigingu til þess, sem það vafalaust hefur, að hæla hæstv. forsrh., gæti ég bent því á eitt, sem er mjög auðvelt að hæla honum fyrir. Og það er fyrir það, hvað hann er fljótur að snúast, hafa eina skoðun í dag og aðra á morgun.

Ég hef ekki setið lengi hér á Alþ., en ég minnist þess, að ég hef heyrt ráðh. flytja hér þrjár ræður um vísitölumálið. Fyrsta ræðan, sem ég heyrði ráðh. flytja um þetta mál, var á þingi 1960. Þá var í gildi í kaupsamningum milli atvinnurekenda og verkalýðsfélaga ákvæði um dýrtíðaruppbót. Forsrh. sté þá í stólinn til að lýsa því yfir, að hann teldi allar vísitöluuppbætur óhafandi og óverjandi, og það yrði að setja þau lög að banna allar vísitölubætur. Og forsrh. fékk þessum vilja sínum framgengt þá. Það var samþ. af Alþ. að banna allar vísitölubætur.

Fjórum árum síðar heyrði ég forsrh. flytja aðra ræðu um þetta mál. Og þá var hann ekki alveg á þeirri skoðun, að það ætti að banna vísitölubætur, heldur mælti hann með því, að þær yrðu lögfestar. Og hann sagði þá, að það hefði reynzt mjög illa að banna vísitölubætur, vinnu.. ófriður hefði haldið áfram sízt minni en áður, jafnvel meiri, og þess vegna væri það nú ráðið að lögfesta vísitölubætur.

Hér í dag hefur svo ráðh. haldið þriðju ræð- una um þetta mál og hún er á þá leið, að það sé bæði rangt að banna vísitölubætur og lögfesta vísitölubætur, heldur sé nú skást að hafa þetta frjálst.

Ég held, að ég vilji ráðleggja hæstv. ráðh. það, ekki kannske sérstaklega vegna þess, að mér sé svo vel við stjórnina, heldur þá við þjóðina, að það væri hyggilegast fyrir hann að snúast nú einu sinni enn í þessu máli og láta það standa óbreytt, sem hann telur sig hafa bezt gert í þessum efnum, en það er júní-samkomulagið frá 1964. Sá snúningur ráðh. mundi áreiðanlega verða til bóta.

Um þetta frv. vil ég fyrst segja það, að þegar tillit er tekið til þess ástands, sem er að skapast í þjóðfélaginu, að stórfelld dýrtíðarholskefla er að skella yfir, er það frv., sem hér er til umr., tvímælalaust eitt hið ósvífnasta og ranglátasta mál, sem hefur verið borið fram á Alþ. Áður en ég rökstyð þessa skoðun mína eða fullyrðingu frekar, finnst mér rétt að minnast örlítið á forsögu þessara mála.

Ég hygg, að það hafi verið fyrst 1939, sem teknar voru upp — a.m.k. á síðari tímum vísitöluuppbætur á kaup eða dýrtíðaruppbætur á kaup. Það var gert í sambandi við gengisfellinguna, sem þá var ákveðin. Það mun hafa verið Alþfl., sem átti meginþátt í því, að þessi regla var þá upp tekin. Þetta fyrirkomulag, þ.e.a.s. að lögákveða dýrtíðaruppbætur, mun svo hafa haldizt allt fram á árið 1951. Þá var talið, vegna þess að inn í vísitöluna voru þá komnar allar verðhækkanir, sem leitt höfðu af gengisfellingu, sem ákveðin var árið áður, að það væri a.m.k. til athugunar rétt að fella hinar lögákveðnu vísitöluuppbætur niður, og var það gert með sérstökum lögum, sem samþ. voru hér á Alþ. Verkalýðsfélögin sýndu þá, að þau vildu ekki láta þetta fyrirkomulag falla niður, og þegar atvinnurekendur vildu ekki strax á það fallast, að þetta væri tekið upp í samninga, boðuðu þau til verkfalls og eftir nokkurra daga verkfall féllust atvinnurekendur á það að taka vísitölu- eða dýrtíðaruppbótarákvæðin upp í kaupsamninga, og það skipulag hélzt síðan óslitið til ársins 1960, þegar vísitölubannið var sett í viðreisnarl., sem þáv. ríkisstj. beitti sér fyrir. Þessi skipan stóð síðan í 4 ár, en í júnímánuði 1964 næst samkomulag um það milli verkalýðssamtakanna og samtaka vinnuveitenda og ríkisstj., að þetta fyrirkomulag skuli aftur að nýju upp tekið og vera nú lögbundið. Verkalýðshreyfingin hafði þá boðað til verkfalls, og hún hafði þá borið fram mjög verulegar kröfur um grunnkaupshækkanir, sem hún átti fyllsta rétt til. Og það var víst, eins og dæmið stóð þá, að aðstaða hennar var svo sterk, að hún hefði getað knúið þessar kröfur fram. Til þess að koma í veg fyrir þetta, bauðst ríkisstj. til þess að lögfesta dýrtíðarbætur gegn því, að samið yrði um tiltölulega lága grunnkaupshækkun, og það þótti meira öryggi í því, að þetta yrði sett í lög en í samninga eins og áður hafði tíðkazt. Forsrh. taldi þá, að með þessu hefði hann tryggt batnandi sambúð á milli stéttarsamtakanna og hefur mjög hrósað sér af því síðan. Ég held líka, að þó að talsvert hafi verið um verkföll á þessum tíma, hafi þau orðið miklu minni og vinnufriðurinn meiri, vegna þess að þetta samkomulag náðist í júnímánuði 1964. Ég skal hins vegar taka það fram, að þó að ég teldi, að þetta ákvæði í júnísamningunum 1964 væri á sínum tíma mjög til bóta, taldi ég önnur atriði í þeim samningum ekki heppileg, m.a. það, að það var tekið þar upp að reikna út lán húsnæðismálastjórnar eftir vísitölu eða láta þau hækka samkv. vísitölu.

Með því að setja dýrtíðarbæturnar í lög, var tvímælalaust litið svo á, bæði hér á Alþ. og af öllum aðilum, að þetta fyrirkomulag ætti að vera varanlegt. Með því að hafa það ekki í samningum, heldur hafa það í l., væri það orðið samkomulag, sem ætti að standa til frambúðar.

Ég skal að vísu viðurkenna það, sem ráðh. sagði hér áðan, að í ræðu, sem hann flutti, þegar hann mælti með þessu frv. á þinginu 1964, tók hann það fram, að þessi lög mundu ekki binda hendur manna um alla eilífð. En þrátt fyrir þau ummæli hans held ég, að það hafi verið almennt álitið, að þetta ætti að vera varanlegt fyrirkomulag, og ráðh. sagði þetta til að slá vissan varnagla, en ekki vegna þess að hann meinti það, að það ætti að standa stuttan tíma.

Vegna þess hvernig þetta allt er í pottinn búið, tel ég, að nú, þegar þetta samkomulag er rofið, sé það gert af hálfu ríkisstj. á hinn ódrengilegasta hátt. Það er gert á þeim tímamótum, þegar það kemur verkalýðshreyfingunni og launþegastéttunum verst, að það sé rofið. Og það er alltaf ódrengilegt, þegar samningar eru gerðir í góðri trú, að annar aðilinn skuli þá nota sér aðstöðuna til að rjúfa þá, þegar aðstaðan er verst hjá hinum aðilanum. Þess vegna tel ég, að hér sé af hálfu hæstv. ríkisstj., — þó að hún hafi þann varnagla, sem ráðh. minntist á, — mjög ódrengilega að farið, þ.e. að rjúfa þetta samkomulag, þegar þeir tímar fara í hönd, að það er bersýnilegt, að það kemur verkalýðshreyfingunni og vinnustéttunum verst, að það sé rofið.

En af öðrum ástæðum tel ég líka, að hér sé mjög ódrengilega að farið. Ef menn minnast þess, sem sagt var fyrir seinustu kosningar, hygg ég, að mönnum sé fátt minnisstæðara en það, sem hæstv. forsrh. sagði þá um júní-samkomulagið 1964. Ráðh. fór ekki dult með það, að þó að hann teldi sig hafa margt vel gert á liðnu kjörtímabili, hefði hann ekkert betra gert en það, að hann hefði komið á bættri sambúð milli ríkisvaldsins og verkalýðshreyfingarinnar með júnísamkomulaginu 1964. Hann fór um það mörgum fögrum orðum í þeim ræðum, sem hann flutti þá, bæði í útvarp og víða um landið, að með þessu samkomulagi hefði verið tryggður miklu betri vinnufriður en ella, og það hefði líka orðið minni verðbólga en ella hefði orðið, ef þetta hefði allt verið með sama hætti og áður var. Og það mátti af þessum orðum ráðh. ekki annað ætla en a.m.k. hann væri því fylgjandi, að þetta fyrirkomulag ætti að standa til frambúðar. Og ég er sannfærður um það, að ef menn hefðu átt von á því, sem nú er fram komið, að það yrði eitt af fyrstu verkum ríkisstj. að leggja til, að þetta samkomulag yrði fellt niður, hefði útkoma stjórnarflokkanna í kosningunum orðið á aðra leið en hún varð. Ég er sannfærður um, að ef það hefði legið fyrir þá, sem liggur fyrir hér á Alþ. í dag, að stjórnin ætlaði að vinna að því að fella niður dýrtíðaruppbót á laun, hefðu stjórnarflokkarnir ekki fengið þau úrslit í kosningunum, sem raun varð þó á. Og það eitt ásamt öðru sýnir, að ríkisstj. hefur unnið þessar kosningar á fölskum forsendum.

Ég ætla ekki að fara að ræða hér almennt um gengisfellinguna sjálfa, vegna þess að það hefur áður verið nokkuð gert og verður vafalaust enn ýtarlegar gert í umr. í sambandi við önnur mál. En fyrst ég er farinn hér að minnast á annað borð á framkomu, sem ég tel óheiðarlega og ódrengilega, eins og hefur átt sér stað hjá ríkisstj. í sambandi við þetta mál, get ég ekki látið hjá líða að minnast ummæla, sem forsrh. lét falla rétt fyrir seinustu þingkosningar, í útvarpsumr. 7. júní. Forsrh. komst þá að orði á þessa leið: „Sjálfstæðismenn skilja jafnt nú sem áður, að heilbrigður atvinnurekstur er undirstaða velmegunar þjóðarinnar. Því verður ekki jafnað, sem ekki hefur verið safnað. En sjálfstæðismenn fylgja í verki kjörorði sínu, stétt með stétt. Þess vegna er okkur það heiður að hafa, án þess að ganga of nærri atvinnuvegunum, haft forystu um mestu lífskjarabætur, sem almenningi á Íslandi hafa hlotnazt. Launþegar í öllum stéttum munu vissulega minnast þess við kjörborðið.“

Það, sem ráðh. segir, er í stuttu máli þetta: Við höfum tryggt sæmileg lífskjör á undanförnum árum, án þess að hafa gengið of nærri atvinnuvegunum, — án þess að beita þurfi nokkurri kjaraskerðingu, a.m.k. ekki í náinni framtið. Þegar ráðh. sagði þessi orð, vissi hann allt um verðfall afurðanna, sem nú liggur fyrir. Verðlagið var að mörgu leyti lægra þá en það er nú. Hann vissi þá líka um þann aflabrest, sem var á síðustu vetrarvertið. Þrátt fyrir það lýsir hann því yfir fjórum dögum fyrir kosningar í útvarpi, sem öll þjóðin hlustar á, að það megi treysta því, að a.m.k. óbreyttum lífskjörum verði haldið áfram, vegna þess að það hafi ekki verið gengið of nærri atvinnuvegunum.

Hvað segir forsrh. svo í dag? Hvað sagði hann hér s.l. föstudag, þegar hann mælti fyrir öðru frv. um gengismál? Hann sagði í stuttu máli, að það hefði verið gengið svo nærri atvinnuvegunum, að það þyrfti að lækka ísl. krónu um 20%, þegar frá er talin sú lækkun, sem segja má, að verði vegna falls sterlingspundsins. Hefði forsrh. sagt þetta fyrir kosningar, sem hann álítur satt nú, og áleit vafalaust satt þá, mundi hann og ríkisstj. þá hafa fengið sömu úrslit í kosningunum og raun varð á? Ég held, að úrslitin hefðu þá orðið talsvert önnur. Að vísu var það svo hér í Reykjavík, að flokkur forsrh. tapaði tíunda hverju atkv. eða rösklega það, en ég held, að þeir hefðu tapað a.m.k. fimmta hverju atkv. eða meira, ef hann hefði sagt það, sem hann vissi, að var satt, fyrir seinustu kosningar, en ekki blekkt þjóðina og sagt ósatt. Ég álít, að það sé ærin ástæða til þess að rifja þetta upp, vegna þess að þetta og margt annað sýnir, að ríkisstj. hefur unnið seinustu kosningar á algjörlega fölskum forsendum. Og það er þess vegna víst, að sá meiri hl., sem var á bak við hana þá og trúði orðum ráðherranna og annarra framámanna stjórnarflokkanna, sá meiri hl. er áreiðanlega ekki fyrir hendi í dag, og það er ekki meiri hl. þjóðarinnar, sem stendur á bak við þær að gerðir, sem nú er verið að ákveða.

Ég skal þá víkja að efni þessa frv. og leitast við að rökstyðja þá staðhæfingu,sem ég viðhafði um það hér áðan. Það hefur réttilega verið sagt, að það gildi um þessa gengisfellingu eins og raunar aðrar gengisfellingar, að það fari eftir því, hvaða hliðarráðstafanir eru gerðar til þess að tryggja heppilegar framkvæmdir, hvort tilætlaður árangur næst eða ekki.

Þegar talað er um hliðarráðstafanir, er fyrst og fremst átt við ráðstafanir, sem beinast að því að gera þeim, sem þyngst verða fyrir barðinu á gengisfellingu, sem auðveldast að rísa undir þessum byrðum. Í framhaldi af þessu er rétt að athuga, hverjir það séu þá, sem eiga erfiðast með að rísa undir þeim byrðum, sem leiða af gengisfellingunni. Ég held, að það fari ekki á milli mála, að þeir, sem eiga erfiðast með að rísa undir þessum byrðum, séu láglaunamennirnir eða láglaunastéttirnar í landinu. Þær hafa af minnstu að taka til að mæta þeim áföllum, sem af gengisfallinu verða. Ég held, að það væri þess vegna ekki óheppilegt fyrir alþm. að athuga, hver eru launakjör láglaunastéttanna í landinu í dag. Hvað er það, sem verkamenn bera nú úr býtum? Er hlutur þeirra slíkur, að það sé hægt að ætlast til þess, að þeir geti tekið á sig miklar nýjar byrðar vegna stórfellds gengisfalls? Til þess að geta veitt nokkrar upplýsingar um þetta, hef ég aflað mér þeirra kauptaxta, sem nú eru í gildi hjá verkalýðsfélögunum hér í Reykjavík. Og ég ætla að lofa mönnum að heyra, hvaða kaup það er, sem verkamenn hafa samkvæmt þessum kauptöxtum.

Ég ætla þá að byrja á Dagsbrún. Ég ætla ekki að taka fyrsta taxta Dagsbrúnar, sem oft hefur verið vitnað til, heldur annan taxta Dagsbrúnar, en í honum munu vera langflestir verkamenn. Í honum eru t.d. allir verkamenn, sem vinna við fiskvinnu, aðstoðarmenn í togvinnu og steypuvinnu, við gæzlu hrærivéla, vélgæzlu á loftpressum, ryðhreinsun með handverkfærum, vinnu í grjótnámi, bifreiðastjórn, þegar bifreiðarstjóri vinnur eingöngu við akstur bifreiðarinnar, vélgæzlu á togurum í höfn, vinnu við fóðurblöndunarvélar, afgreiðslu í sandnámi, vinnu með handverkfærum við holræsagerð, vatnsveituframkvæmdir og skurðgröft vegna raflagna, símalagna o.fl., verkamenn á olíustöðvum, þ.e. aðstoðarmenn á tankbílum og afgreiðslumenn á smurningsolíulager og menn, sem vinna við götuhreinsun. Það er sem sagt langstærsti hópurinn af Dagsbrúnarmönnum, sem tekur laun samkvæmt þessum taxta. Og launin, sem þessir verkamenn hafa, eru á fyrsta og öðru ári 8.951,00 kr. á mánuði, en það svarar til þess, að þeir hafi í árslaun 107.412,00 kr. Þegar þeir eru búnir að vinna í tvö ár, þá hækka mánaðarlaunin upp í 9.399,00 kr. eða árslaunin verða 112.788,00 kr. Sem sagt, langfjölmennasti Dagsbrúnarhópurinn hefur í árslaun fyrir fulla dagvinnu frá 107 þús. kr. upp í tæpar 113 þús. kr.

Það hefur oft verið rætt um það undanfarið, að hafnarverkamenn séu í sérflokki og þeir hafi fengið meiri hækkun en aðrir verkamenn að undanförnu. En hvað er þá af kaupi þeirra að segja?

Það er í stuttu máli á þá leið, að hafnarverkamaður hefur á fyrsta og öðru ári í vikulaun 2.215,00 kr. eða í árslaun 115.180,00 kr. Þegar hann er búinn að vinna í tvö ár, þá hefur hann í vikukaup 2.325,00 kr. eða í árslaun 120 þús. kr. Og það má segja, að sé hámarkið hjá venjulegum Dagsbrúnarverkamanni, því að þeir, sem eru í taxta fyrir ofan þetta, geta miklu frekar talizt fagmenn en ófaglærðir verkamenn og taka kaup samkvæmt því. Það eru menn, sem vinna fagvinnu, sem sérstaka þjálfun þarf til að leysa af hendi og þess vegna ekki óeðlilegt, þó að þeir séu miklu frekar flokkaðir með fagmönnum en ófaglærðum verkamönnum. Sem sagt, hjá þessum fjölmennustu starfshópum Dagsbrúnarmanna eru launin frá 107 þús. kr. upp í 121 þús. kr. hæst. Þetta er nú það, sem þessir menn bera frá borði, ef fylgt er taxta og ekki er um neina eftirvinnu að ræða, en hins vegar alveg fulla dagvinnu.

Hvernig lítur þetta svo út hjá verkakvennafélaginu Framsókn? Það er ekki óeðlilegt, að það sé athugað líka, en rétt er að viðurkenna, að það hefur komizt á hér, sem á víða langt í land annars staðar, að konur njóta nokkurn veginn jafnréttis við karlmenn í launagreiðslum, a.m.k. í þessum stéttum. Samkv. 1. taxta Framsóknar, en í honum eru allar ræstingakonur, sem er langsamlega fjölmennasti starfshópurinn í Framsókn, eru launin þessi: Fyrstu tvö árin hafa þær í mánaðarkaup 8.713,00 kr. eða í árslaun 104.180,00 kr. Þegar þær eru búnar að vinna í tvö ár, hafa þær í mánaðarlaun 9.149,00 kr. eða í árskaup 109.788,00 kr. M.ö.o., konur í verkakvennafélaginu Framsókn hafa í árslaun frá 104 þús. kr. upp í tæplega 110 þús. kr. eftir því, hvar þær eru í flokki. Þetta er nú allt það, sem verkakonurnar bera úr býtum með því að vinna alveg fulla dagvinnu allt árið um kring, en að vísu er ekki þarna reiknað með neinni eftirvinnu eða yfirborgun.

Ég kem þá næst að félagi verksmiðjufólks, Iðju, en þar eru launakjörin á þessa leið: Fyrsta árið eru mánaðarlaunin 8.564,00 kr. eins og hjá Dagsbrún, eða árslaunin 102.552,00 kr. Eftir eitt ár eru mánaðarlaunin orðin 9.137,00 kr. og árslaunin þá 109.644,00 kr. Sem sagt, launakjörin hjá Iðju eru nokkru lægri en hjá Dagsbrún, þannig að verkamenn, sem eru þar á fyrsta ári, hafa ekki í árslaun nema 102 þús. kr. og þeir, sem komast hæst, hafa tæplega 110 þús. kr. Þetta er það, sem verkamenn bera nú úr býtum samkv. gildandi kauptöxtum.

Hitt er hins vegar rétt og það ber að viðurkenna, að á undanförnum árum hafa þeir haft nokkuð hærri rauntekjur, sem stafar að sumu leyti af því, að einhverjar yfirborganir kunna að hafa átt sér stað og eftirvinna hefur verið talsvert mikil. Og auk þess hafa náttúrlega ýmsir fjölskyldumeðlimir unnið inn ýmsar tekjur, sem reiknast verkamanninum í framtali.

Nú er hins vegar þannig orðið ástatt hjá okkur, vegna þess að lánsstefnan í peningamálunum, lánsfjárstefna Seðlabankans, hefur átt þátt í því að draga mjög úr atvinnulífinu, þrengja kost atvinnufyrirtækjanna, að yfirborganir eru að mestu að falla niður og eftirvinna er víðast hvar orðin mjög lítil og jafnvel engin, þannig að það, sem þessir menn hafa að byggja á, er fyrst og fremst það, sem dagvinnutaxtarnir gefa, og ég hef nú lýst því, hvað það er, sem þeir fá samkv. þessum gildandi kauptöxtum.

Og nú skulum við athuga í framhaldi af þessum tölum það frv. um hliðarráðstafanir, sem hér liggur fyrir. Ég sagði áðan, að hliðarráðstafanir í sambandi við gengislækkun ættu fyrst og fremst að miða að því að bæta aðstöðu þeirra, sem taka á sig tiltölulega þyngstu byrðarnar. Ég held, að það dragi enginn í efa eða geti mótmælt því, að þeir, sem taka á sig þyngstu byrðarnar í sambandi við gengisfall, eru þeir, sem hafa lægstu launin og verst eiga þess vegna með að verjast þeim áföllum, sem af gengisfellingunni verða. Hvað er það, sem þetta frv. býður þessum mönnum upp á til að bæta aðstöðu þeirra í sambandi við gengisfellinguna? Þetta frv. býður þeim upp á það að taka á sig alla þá kjaraskerðingu, sem af gengisfellingu hlýzt án þess að fá nokkrar bætur í staðinn. Þessir menn, sem hafa í árslaun samkvæmt kauptöxtum 102–120 þús. kr., eiga að taka á sig alla kjaraskerðingu, sem af gengisfellingunni verður, án nokkurra bóta. Það er þetta, sem fyrst og fremst felst í þessu frv. Ég segi því um þetta mál alveg hiklaust, og ég held, að allir hljóti að taka undir það, sem athugað hafa það af nokkurri sanngirni: Það er ósvífni að bjóða verkamönnum upp á þetta. Það eru rangindi að bjóða verkamönnum upp á þetta. Og það mun hefna sín að bjóða láglaunastéttunum upp á þetta. Þess vegna hika ég ekki við að segja, að það mál, sem hér liggur fyrir, er eitthvert hið ósvífnasta og ranglátasta mál, sem hefur verið borið fram á Alþ. Og það mega líka þeir vita, sem ætla að koma fram slíkum rangindum eins og þessum, að þeim á eftir að verða fullkomlega mætt.

Því hefur stundum verið haldið fram af stjórnarsinnum, að ég og ýmsir aðrir, sem þeir telja, að hafi átt þátt í því, að orðið hafi nokkur hækkun á kauptöxtum á undanförnum árum,eigi meginsök á því, að nú sé komið í atvinnumálum þjóðarinnar eins og raun ber vitni um. Ég mótmæli því, að kauptaxtar, sem ekki tryggja verkamönnum hærri laun en frá 102 þús. til 121 þús. kr. á ári, séu orsök þess, hvernig nú er komið í efnahagsmálum íslenzku þjóðarinnar. Það er fullkomlega rangt, að þessir kauptaxtar eigi nokkurn þátt í því. Það eru allt aðrar ástæður, sem því valda, að þannig er nú ástatt en það, að kauptaxtar verkafólksins séu of háir. Og það sem veldur meira um það en nokkuð annað er það, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur haldið á málum atvinnuveganna á undanförnum árum. Ég held, að það sé alveg óhætt að fullyrða það, að þegar undan er skilin sú nýja tækni, sem hefur komið til sögunnar í sambandi við síldveiðarnar, hafi orðið minni framleiðniaukning í íslenzkum atvinnuvegum á undanförnum áratug en í atvinnuvegum nokkurrar annarrar nálægrar þjóðar. Hjá öllum öðrum þjóðum hafa á seinasta áratug orðið stórstígari framfarir í framleiðniaukningu en nokkru sinni fyrr. Hér hefur framleiðniaukningin, þegar síldveiðarnar eru undanskildar, svo að segja staðið í stað. Það er meira að segja játað í skýrslum, sem Efnahagsstofnunin sendi hagráði á síðasta ári. Það er þetta, sem er meginorsök þess, hvernig ástatt er nú í íslenzkum at vinnumálum. Það hefur átt sér stað svo að segja algjör stöðvun á seinasta áratug, hvað framleiðniaukninguna snertir í íslenzkum atvinnuvegum, í stað þess að stórstígar framfarir hafa átt sér stað í öðrum löndum í þessum efnum. Og þó hefur aðstaðan til þess að koma fram stórfelldri framleiðniaukningu aldrei verið betri hér á landi en einmitt á þessum áratug. Aldrei hafa þjóðartekjurnar verið meiri og því aldrei betri aðstaða til að veita fjármagninu til að auka framleiðnina í atvinnuvegunum, en það hefur verið vanrækt að langsamlega mestu leyti. Og þó að syndir ríkisstj. séu margar, tel ég það höfuðsynd hennar, hve illa hefur til tekizt í þessum efnum. Þetta stafar af því, að ríkisstj. hefur algjörlega vanrækt það, sem á að vera höfuðhlutverk hverrar ríkisstj., og það er að leitast við að beina fjármagninu fyrst og fremst til þeirra framkvæmda, sem nauðsynlegastar verða að teljast og miða að því að auka framleiðni atvinnuveganna.

Í öðru lagi og engu síður stafar það svo af þeirri peningastefnu, sem ríkisstj. hefur framfylgt. Í staðinn fyrir það, að í flestum öðrum löndum er keppt að því að tryggja atvinnuvegunum nægilegt rekstrarfé og nægilegt stofnfé til framkvæmda, hefur verið tekin upp sú stefna hér á landi á þessum góðærisárum að undanförnu að skera þetta allt saman sem mest við nögl. Seðlabankinn hefur tekið upp hin stórfelldustu skerðingarákvæði gagnvart viðskiptabönkunum og komið þannig í veg fyrir, að þeir gætu veitt atvinnuvegunum eðlilega þjónustu. Lánsfjárhöftin, sem ríkisstj. hefur fylgt, hafa átt sinn stóra þátt í því, að hér hefur stefnt í allt aðra og öfuga átt við það, sem hefur átt sér stað í öðrum löndum, hvað framleiðniaukningu í atvinnuvegunum snertir. Þetta er höfuðástæðan til þess, hvernig nú er komið í íslenzkum atvinnumálum, að við höfum ekki fylgzt með öðrum þjóðum í þessum efnum, heldur verið að dragast aftur úr.

Við sjáum það líka, ef við berum saman kaupgjald hér og í öðrum löndum, að það eru ekki kauptaxtarnir, sem eiga sök á því, hvernig komið er í íslenzkum efnahagsmálum. Ég hef hér í dönsku fjármálatíðindunum tölur um það, hvert var tímakaup ófaglærðra iðnaðarmanna í Danmörku á síðasta ársfjórðungi ársins 1966. Þess má geta, að síðan hefur átt sér stað nokkur grunnkaupshækkun í Danmörku, a.m.k. á lægstu laununum, og auk þess hafa dýrtíðaruppbætur þar aukizt, svo að tímakaupið í iðnaðinum danska er nokkru hærra nú en það var á þriðja ársfjórðungi í fyrra. En þá var meðaltal tímakaupsins hjá dönskum iðnaðarmönnum samkv. þessari heimild 10.50 kr. danskar, sem láta mun nærri, að hafi numið 66 ísl. kr. miðað við fyrrv. gengi, en rúmum 80 kr. miðað við núv. gengi.

En hvert er svo kaup iðnverkamanna á Íslandi, sem er ekki ósanngjarnt eða óeðlilegt að bera saman við þetta? Í dag er dagvinnukaupið hjá Iðjuverkamönnum 46 kr. á fyrsta ári, en eftir það er það 49 kr. Sem sagt, í dag er sá munur hér og í Danmörku, að danskur iðnverkamaður hefur 80–90 ísl. kr. í tímakaup, en íslenzkur iðnverkamaður hefur innan við 50 kr. Og þessi munur var um 20 kr., áður en gengið var fellt, eins og ég skýrði frá áðan, þar sem tímakaup iðnverkamanns í Danmörku hefur þá verið 66 kr., en 46 kr. hér. Ég held, að það sé ekki með neinum rétti hægt að halda því fram, þegar litið er á þennan samanburð, og hliðstæðan samanburð mætti gera við önnur lönd, að það séu kauptaxtarnir, sem valdi því, hvernig komið er í íslenzkum atvinnumálum. Þar er um allt aðra ástæðu að ræða.

Það hefur komið greinilega fram í þessum umr., að það hefur verið stefna verkalýðssamtakanna allt síðan 1939, að Alþfl. fékk það lögfest, að greiddar væru dýrtíðaruppbætur á kaup. Það er áreiðanlega eindregnari stefna verkalýðssamtakanna í dag en nokkru sinni fyrr, þegar sú dýrtíðarholskefla er fram undan, sem menn eygja í dag. Ríkisstj. má þess vegna eiga það víst, að ef þetta frv. hennar verður að lögum, mun það til einskis annars frekar leiða en nýrra átaka á vinnumarkaði. Verkalýðssamtökin sýndu það fyrir fáum dögum, að þau ætla ekki að láta bjóða sér það, að teknar séu af þeim þær vísitöluuppbætur, sem þau áttu að fá um næstu mánaðamót, og þau munu einnig sýna það eftirleiðis, að þau munu ekki láta bjóða sér upp á slíkt. Með því að nema úr lögum dýrtíðaruppbót á kaup er ríkisstj. að bjóða vinnuófriði heim, það má hún gera sér fullkomlega ljóst. Og ef rétt nafn væri á þessu frv., ætti það í raun og veru að heita frv. til laga um að rjúfa vinnufrið, því að með þessu gerir ríkisstj. ekkert annað en að rjúfa vinnufrið. Það hlýtur henni að vera fullkomlega ljóst, eins og hefur komið svo greinilega fram í þeim átökum og viðræðum, sem hafa farið fram milli hennar og fulltrúa verkalýðssamtakanna á undanförnum vikum og dögum. Ég held þess vegna, að hæstv. ríkisstj. eigi ekki að hraða sér of mikið í þessu máli, heldur hugsa sig vel um og hæstv. forsrh. mundi áreiðanlega gera bezt, ef hann snerist nú einu sinni enn í þessu máli og léti þau lög óbreytt standa, sem hann samdi um við verkalýðshreyfinguna í júní 1964.

Það skiptir miklu máli á erfiðum tímum, eins og eru víssulega nú, að þeir menn, sem hafa valizt til forustu hjá þjóðinni, leitist við að gera sitt bezta og séu sem beztum hæfileikum og mannkostum búnir. Af þeim hæfileikum, sem kannske ríður mest á undir slíkum kringumstæðum, er það, að forustumennirnir sýni góðvilja og drengskap. Það er ekki að sýna góðvilja að leggja til, þegar stórfelld dýrtíðarholskefla er fram undan, að þeir, sem búa við langsamlega verstu kjörin eins og verkamennirnir, skuli engar bætur fá vegna þeirrar kjaraskerðingar, sem af þessu hlýtur að leiða. Það er ekki drengskapur að koma þannig fram við þessar stéttir. Þess vegna vil ég treysta því, þótt það geti jafnvel orðið til þess að auka eitthvað langlífi þessarar ríkisstj., — ég met hag þjóðarinnar meira — að hæstv. forsrh. íhugi þetta mál einu sinni enn, íhugi það mjög vandlega áður en það er afgreitt frá þinginu og sjái það við nánari athugun, að hið eina rétta, sem hann getur gert, er að snúast einu sinni enn og láta júní-samkomulagið frá 1964 halda sínu fulla gildi, hvað þetta snertir.