27.11.1967
Neðri deild: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (112)
65. mál, verðlagsuppbót á laun og vísitala framfærslukostnaðar
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Út af yfirlýsingum hæstv. viðskmrh. vildi ég nú segja það, að það fer að verða erfitt að skilja yfirlýsingar hæstv. ráðh. og sennilega læra þm. að fara að taka þær með mikilli varúð. Við hvað átti hæstv. viðskmrh. í sjónvarpsviðtalinu, sem Alþýðublaðið sagði frá 26. ágúst, þegar hann sagði: „Hins vegar gæti hann fullyrt, að gengislækkun væri ekki rétta ráðið.“
Hafði hæstv. viðskmrh. ekkert gert sér grein fyrir, hvaða afleiðingar gengislækkun gæti haft á atvinnulíf Íslendinga? Nú er því hins vegar haldið fram, að það leysi allan vandann, og eigum við hv. alþm. að trúa því, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki gert sér grein fyrir eða leitað eftir að kanna aðrar leiðir heldur en þá, sem fólst í frv. því, sem hún lagði fyrir í upphafi þings? Ég hef aldrei látið mér detta það í hug, að það illa hafi verið að málum unnið, að ekki hafi verið kannaðar fleiri leiðir heldur en sú ein, sem öllum er nú ljóst, að engan vanda leysti. Og við hvað átti hæstv. forsrh. 16. okt., þegar hann segir: „Hér er um allt annars eðlis vandamál að ræða heldur en gengisbreyting getur leyst?“
Svo koma hæstv. ráðh. og segja, að það eigi ekki að taka alvarlega sínar frásagnir. Annars má það um ritstjóra Alþýðublaðsins segja, hv. 5. þm. Vesturl., að hann hefur marga góða kosti, sem ég hef oft kynnzt, og m.a. þá kosti, að hann skýrir oft rétt frá, hvað hefur gerzt í hans flokki. Ég minnist þess, þegar landhelgismálið var á döfinni og afgreiðsla málsins, þá sagði hv. 5. þm. Vesturl. sem ritstjóri Alþýðublaðsins frá því, að það hefði verið samið um málið í veizlu, sem hann og þáv. utanrrh. Íslands og Bretlands sátu saman úti í London í des. Ég minnist þess líka, að hér á hv. Alþ. í febr. gaf hæstv. þáv. utanrrh. yfirlýsingu um það, að ekkert nýtt hefði gerzt í því máli frá því, að hann hafði gefið skýrslu í okt. eða nóv. Þannig er svo framhaldið af þessu, að í gær skýrir hv. 5. þm. Vesturl. sem ritstjóri Alþýðublaðsins frá því, að ríkisstj. hafi fyrir löngu gert sér grein fyrir því, að gengið þyrfti að falla, og þegar hv. 5. þm. Vesturl. fór á tólf fundi í Vesturlandskjördæmi s.l. vor, þá gerði hann sér auðvitað líka grein fyrir því, að gengi krónunnar yrði fellt með haustinu, vegna þess að ríkisstj., sem hann hældi þá á hvert reipi, var búin að koma efnahagsmálum þjóðarinnar í það óstand, að fram hjá því varð ekki komizt. Nú segir hann frómt frá þessu, að þetta hafi verið ljóst, en vegna þess að ábyrgðartilfinningin sé nú alltaf uppi á stjórnarheimilinu, hafi ekki mátt skýra frá þessu. Og þá hafi verið gefnar út yfirlýsingar í gagnstæða átt. Þess vegna ættu nú hv. þm. og þjóðin öll að átta sig á því, að þegar ríkisstj. hæstv. segir já, meinar hún nei og svo öfugt.
Það var fleira gagnlegt og skemmtilegt í Alþýðublaðinu í gær. Það var mælzt til þess við hv. þm. úr stjórnarandstöðunni, þegar ríkisstj. lagði fyrsta númerið af gengisbreytingunum fram hér á föstudaginn, að dregið yrði úr umr. til þess að málið næði fram að ganga, svo að afgreiðsla gjaldeyrisbankanna gæti hafizt í morgun. Og auðvitað var öllum hv. þm. það ljóst, að það var satt að segja nóg að hafa heila viku til umráða til innkaupa í sambandi við gengisbreytingu, eins og gert var núna. Og sá tími var að sjálfsögðu orðinn allt of langur. En þá sagði hv. 5. þm. Vesturl.: Það var dauft yfir þessum umr. Það var munur, þegar minkurinn var á ferðinni. Það var miklu hvassari umr. En þá tók hv. 5. þm. Vesturl. einn þátt í umræðu auk 1. flm. Þannig fór það, þegar stjórnarandstaðan fór að draga við sig, þá líkaði það ekki frekar vel en þegar hún heldur ræður hér á hv. Alþ.
En í sambandi við það frv., sem hér liggur fyrir til 1. umr., vil ég nú undirstrika það, sem fram hefur komið í þessum umr., að hér er verið að kveðja veigamesta þáttinn úr júní-samkomulaginu. Og ég hygg, að það hafi sjaldan verið gerðir samningar á Íslandi milli vinnuveitenda og launþega, sem hefur verið gert jafnmikið stáss með eins og júní-samkomulagið. Ég minnist þess, að í hátíðarræðum 17. júní var það talinn einn af merkilegustu viðburðum, sem þá hefðu lengi skeð í stjórnmálum þjóðarinnar og mundi lengi í minnum hafður. En aðalatriðið í júní-samkomulaginu var fyrirheit um, að vísitalan skyldi tekin í lög aftur, og því var haldið fram, að hún mundi koma í veg fyrir tíð verkföll, sem þá höfðu átt sér stað lengi, og skapa meiri festu í kaupgjaldsmálum og vera einnig aðhald fyrir ríkisvaldið og aðra þá, sem vildu ganga of langt í því að hækka verðlagið. Nú er þetta hins vegar talið jafnnauðsynlegt og jafngott, þegar þetta atriði er kvatt. Og ég vil vekja athygli á því, að þegar vísitalan á kaup er tekin út úr l., eins og hér er gert ráð fyrir og stefnt er að, er í raun og veru eftir eitt atriði úr júní-samkomulaginu, sem máli skiptir, og það er vísitalan á lánum þeirra, sem hafa fengið lán hjá Húsnæðismálastofnuninni. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ríkisstj.: Er ekki gert ráð fyrir því nú, þegar vísitalan á laun er tekin út úr lögum, að þessu atriði skuli einnig breytt? Eiga launþegarnir í landinu að sitja eftir með þetta atriði eitt nú, eftir að þetta frv. verður samþ.? Það eru kaldar kveðjur til almennings í landinu, ef svo á að fara að, og ég á bágt með að skilja það, ef þeir menn, sem notið hafa trúnaðar þessa fólks, sætta sig við slíkt.
Ég vil endurtaka það, sem ég drap á hér áðan, að einmitt það, að vísitala var í lög tekin 1964, hefur haft þau áhrif á kaupgjaldssamninga hér í landinu síðan, að verkföll hafa ekki verið, svo að teljandi sé a.m.k. Og ég held, að það sé öllum ljóst, að það hefur verið verulegt aðhald í verðlagsmálunum einnig. Að vísu má á það benda, að með álögum sínum og ráðstöfunum í árslok 1965 og í byrjun árs 1966, átti hæstv. ríkisstj. verulegan þátt í því að kynda undir verðbólgunni. Með rafmagnsskattinum og fleiri sköttum, sem þá voru á lagðir, og með því að draga úr niðurgreiðslum á vöruverði framan af ári 1966 átti hún verulegan þátt í því að auka dýrtíðina, en hún sá sig um hönd, þegar leið á árið 1966, og var það ástæðan fyrir því, að hún kom á verðstöðvuninni, að vísitalan eða verðlagið í landinu var þá að ganga úr hófi fram. Ég held, að það sé mikill misskilningur, ef hæstv. ríkisstj. heldur, að hún sé með þessu frv. að vinna atvinnuvegunum gagn. Ég held, að það muni sýna sig, að atvinnuvegunum í landinu væri það fyrir beztu, að vísitalan yrði áfram mælistika á verðlagið í landinu. Ég er sannfærður um, að það mundi verða öllum fyrir beztu, að vísitalan væri enn þá í gildi og þetta frv., ef það nær fram að ganga óbreytt, eins og það liggur hér fyrir, mun eiga verulegan þátt í því að eyða þeim áhrifum til góðs fyrir atvinnulífið, sem gengislækkunin kynni að hafa gert.