08.04.1968
Efri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1258 í B-deild Alþingistíðinda. (1126)

176. mál, vernd barna og ungmenna

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá hv. Nd. og var þar samþ. með shlj. atkv. eftir að hv. menntmn. d. hafði einróma mælt með samþykkt þess. Hér er um mjög einfalt mál að ræða. Á s.l. ári breytti borgarstjórn Reykjavíkur skipulagi félagsmála hér í höfuðstaðnum og kom á fót félagsmálaráði, sem hefur með höndum yfirstjórn allra félagsmála á vegum borgarinnar. Í gildandi barnaverndarlögum er auðvitað ekki gert ráð fyrir þessari stofnun, sem komið var á fót eftir að barnaverndarlög voru sett, en í l. er gert ráð fyrir vissum samskiptum ríkisvaldsins og barnaverndarnefndar Reykjavíkur.

Það, sem felst í þessu frv., ef að lögum verður, er það, að menntmrh. er heimilað að fela félagsmálaráði Reykjavíkur störf barnaverndarnefndar í Reykjavík að nokkru eða öllu leyti, og er gert ráð fyrir nánari ákvæðum í reglugerð. Þetta frv. er flutt samkv. ósk Reykjavíkurborgar, og taldi ríkisstj. sjálfsagt að verða við óskum höfuðborgarinnar í þessu efni, eðlilegt að hún ráði sjálf, hvaða skipun hún hefur á félagsmálum innan sinna vébanda og sjálfsagt, að löggjafinn taki tillit til þeirrar skipunar, sem höfuðborgin óskar eftir að hafa á málum eins og þessum. Þess vegna vona ég, að hv. Ed. líti eins á málið og hv. Nd., að samhugur skapist um málið og það nái fram að ganga þegar á þessu þingi.

Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að leggja til, að málinu verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.