27.11.1967
Neðri deild: 27. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 181 í B-deild Alþingistíðinda. (113)

65. mál, verðlagsuppbót á laun og vísitala framfærslukostnaðar

Sigurvin Einarsson:

Herra forseti. Það er svo með mig eins og suma aðra, að mig langar til að fá svör hjá hæstv. ráðh., þótt ekki væri nema fátt eitt, sem snertir þetta frv. Mér skilst, að það sé eiginlega útilokað að fá ráðh. til þess að svara, nema maður hafi með sér Alþýðublaðið og lesi eitthvað upp úr því. Nú hafði ég það ekki við hendina, svo að það getur farið svo, að ég fái engin svör. Samt hefur hæstv. viðskmrh. oft verið lipur í því að svara, þegar við höfum spurt hann. En núna er það ófrávíkjanlegt, að þeir vilja ekki svara. Ég held, að það væri þá einfaldara fyrir þá að hengja upp skilti á hurðina og segja: „Við svörum ykkur ekki,“ svo að menn séu ekki að ómaka sig til að spyrja.

Það er orðinn dálítið sérkennilegur aðdragandi að hinni nýju vísitölu, sem á að taka gildi núna 1. des. Fyrst er framkvæmd neyzlurannsókn, sem stóð yfir í tvö ár, 1964 og 1965, miklu kostað til og mikil vinna lögð af mörkum. Síðan er hún loksins tilbúin og í haust vill hæstv. ríkisstj. fara að taka hana í gildi. Hún hefur orð á því við forustumenn launþegasamtakanna, að þetta sé mjög góð vísitala, vandlega reiknuð og miklu réttari en sú eldri. Forustumenn launþegasamtakanna taka vel í það, að þessi vísitala muni hafa kosti fram yfir hina, og eru ekki á móti því, að það geti komið til greina að lögfesta hana, þó að sá mikli ágalli sé við hana, ef hún eigi að taka gildi, áður en verðhækkanirnar í okt. komi til, að launafólk fái ekki nema svona helming af þeim verðlagsuppbótum, sem þeim annars bæri samkv. l. En þeir vilja samt vinna þetta til, til þess að fá réttari vísitölu í gang, og þetta frv. mælir svo fyrir, að nú skuli hin margumtalaða nýja vísitala taka gildi næsta laugardag, svo að þar með er fullnægt öllu réttlæti. En svo segir frv., að hún skuli líka falla úr gildi sama daginn, og það er vel að verið, kalla ég, eftir allt, sem á undan er gengið. Annars er það orðinn broslegur leikur, sem hæstv. ríkisstj. hefur leikið með vísitöluna gömlu alla tíð síðan ríkisstj. kom til valda. Hún byrjaði á því að taka inn fjölskyldubætur, sem aldrei hefur verið gert áður, og voru þó fjölskyldubætur greiddar, áður en þessi ríkisstj. kom til. Það var nefnilega hægt að lækka svolítið, eða réttara sagt, halda meira í skefjum framfærsluvísitölunni á pappírnum með því. En þegar kom fram á árið 1960, sá ríkisstj., að þetta dugði ekki. Vísitalan fór að hækka þó nokkuð. Þá fann ríkisstj. annað ráð. Það var að taka skattana inn í reikninginn, sem aldrei hafði verið gert áður. Hvorugt hafði verið í nokkurri neyzlurannsókn, og þetta verkaði þó nokkuð, því að sömu mánuðina og neyzluvöruvísitalan hækkaði um mörg stig, lækkaði framfærsluvísitalan með þessari „kúnst“. Svona hefur það gengið til um vísitöluna, enda hefur tekizt á ferli núv. hæstv. ríkisstj. að halda henni svo niðri á pappírnum, þessari framfærsluvísitölu, að hún er ekki nema 195 stig núna, þegar neyzluvísitalan er komin upp undir 230 stig. Áður fylgdust þær alltaf að. Ég held, að ef launafólk hefði fengið verðlagsuppbót samkv. hinni raunverulegu neyzluvísitölu, hefði hún orðið ríflegri en raun varð á.

En þá kem ég að því, sem mig langaði til að spyrja um, þó að það sé kannske til einskis. Þó trúi ég því ekki, að hæstv. viðskmrh. svari ekki, því að hann hefur alltaf reynzt mér vel í þeim efnum. Ég heyrði því haldið fram hér í ræðu áðan, ég held hjá hv. 4. þm. Austf., að sérfræðingar ríkisstj. hafi fundið það út, að verðlag mundi ekki hækka nema um 7%, þegar áhrif gengislækkunarinnar verða komin í algleyming. Ég á ákaflega erfitt með að koma því inn í mitt höfuð, að þetta geti átt sér stað, ef litið er á þá raunverulegu hækkun, sem er á erlendum gjaldeyri. Nú er búið að birta hið nýja gengi, og það er þannig, að enskt pund er nú selt á 138,09 kr. í staðinn fyrir 119,85 kr., sem var. Hækkunin á því er þá 15.2%. 100 danskar kr. eru seldar á 763,72 kr., en voru 621,30. Hækkunin á dönsku krónunni er þá 22.9%. Og Bandaríkjadollar er nú seldur á 57,07 kr., en var seldur á 43,06 kr. Þar er hækkunin 32.6%. Mér finnst, að þessi hækkun á erlendum gjaldeyri hljóti að koma fram í verðlaginu á innfluttum vörum og nokkurn veginn í sömu hlutföllum, að innflutt vara eigi að hækka að cif-verði, þ.e.a.s. komin hingað í höfn, eins og hækkunin er á erlenda gjaldeyrinum, þ.e.a.s. ef flutningsgjöld eru látin fylgja gjaldeyrinum. Nú hef ég fengið nýlega upplýsingar um það, að Eimskip hefur innheimt flutningsgjöld skv. hinu nýja gengi, og verði það reglan, gildir þetta líka um flutningsgjöld yfirleitt. Ekki þarf að spyrja um vátryggingargjöldin á vörunni á leið til landsins, þau fara eftir verðinu. Mér sýnist því allt benda til þess, meðan ekki er annað upplýst um flutningsgjöldin, að cif-verð varanna hækki í sama hlutfalli og erlendur gjaldeyrir. Það, sem ekki hækkar í sama hlutfalli, er kostnaður hér innanlands, svo sem uppskipun, vörugjöld, heimflutningur og svo álagning á vörurnar. Þó að þetta hækki ekki neitt, — og er ég reyndar í vafa um, að ekkert af því hækki, — hljóta þessar miklu hækkanir á erlendum gjaldeyri að valda að mínum dómi 25–30% hækkun á cif-verði vörunnar eða mjög nálægt því. Það er auðvitað erfitt að reikna þetta út nema fá alla kostnaðarliðina. Ef cif-verðið hækkar raunverulega í sama hlutfalli og erlendi gjaldeyririnn, verður það ekki langt frá þessu. En þetta er misjafnt eftir því, frá hvaða landi varan er. Hækkunin verður náttúrlega mest frá þeim löndum, sem ekki hafa breytt sínu gengi. Nú held ég, að það séu nokkur lönd, mig minnir í Evrópu ein 3–4, sem hafa breytt genginu auk Bretlands, t.d. Írland og Spánn, en önnur hafa ekki breytt sínu gengi. Danmörk hefur breytt því hér um bil að hálfu við Breta.

Til þess að geta gert sér grein fyrir því, hvað þessi hækkun gæti orðið á öllum innflutningnum, verður að finna út, hve mikill hluti innflutningsins er frá þeim löndum, þar sem gjaldeyririnn hækkar um 32.6%, hve mikill hann hefur verið frá þeim löndum, þar sem gjaldeyririnn hækkar um 22.9% og hve mikill frá þeim, þar sem hann hækkar ekki nema um 15.2%. Ég leit á þetta að gamni í verzlunarskýrslum síðasta árs, og ég sé, að á því ári hafa u.þ.b. 14% af innflutningnum verið frá þeim löndum, sem hafa lækkað sitt gengi, að Danmörk undanskilinni. 8% af innflutningnum hefur verið frá Danmörku, en 78% af innflutningnum frá þeim löndum, sem hafa ekki lækkað gengið. M.ö.o., ef hlutföllin yrðu þau sömu á næsta ári, mundu 78% af innflutningi Íslendinga hækka sem svarar gengislækkuninni utan Bretlands og þeirra landa, eða einhvers staðar á milli 25–30% miðað við cifverð eftir því, sem ég get komizt næst. Ég held, að það hljóti því að vera einhver ónákvæmni vægast sagt í þeim útreikningi, að hækkanir verði ekki nema 7%, jafnvel þótt miðað sé við framfærslukostnað. Nú verður auðvitað að taka það með í reikninginn, hve mikið er í framfærslukostnaðinum af innlendum vörum, sem munu væntanlega ekki hækka vegna gengisbreytingar. Ég held, að ég muni það rétt, að landbúnaðarvörurnar eiga samkv. nýju vísitölunni, sem nú á að taka gildi og falla úr gildi, ekki að verka nema 29%. En það er ekki upptalinn innlendur kostnaður í framfærslukostnaðinum, þó að teknar séu landbúnaðarvörurnar. Það er erfitt að gera sér grein fyrir því, hve mikill hluti af framfærslukostnaðinum samkv. nýja vísitölugrundvellinum er innlent og hve mikið erlent, því að þetta blandast saman í ýmsum efnum. En eftir því, sem ég get séð bezt miðað við plaggið, sem við fengum hér útbýtt á Alþ. um nýju vísitöluna, held ég, að það hljóti að vera eitthvað nálægt 60% af framfærslukostnaðinum, sem er háð erlendu verðlagi eða erlendum innflutningi, mjög nálægt 60%. Og þá er ég hræddur um, að komi meira en 7% út, ef það reynist svo, að erlendu vörurnar hækka kannske um 25–30%.

Nú langar mig til að spyrja að því, hvaða árangur sem það kann nú að bera, hvort hæstv. viðskmrh. hafi ekki í sínum fórum einhverjar upplýsingar um það: Í fyrsta lagi, hvað er búizt við, að erlendu vörurnar hækki mikið, þegar gengislækkunin er komin til skjalanna? Í öðru lagi, hve mikill hluti af framfærslukostnaðinum er háður þessum erlendu vörum? Og í þriðja lagi, hvernig þá eru fengin út þessi 7%, sem núna er verið að tala um? Ég skal játa það, að ég hef ekki gögn í höndunum til þess að geta gert mér nægilega grein fyrir því, hvað þessar hækkanir geta orðið miklar. Ég fékk út einkennilega tölu, en það má líta á hana sem áætlunartölu, ég skal játa það. Ég fékk út töluna 14.3%, nákvæmlega sama og Bretar felldu gengið. Ég skal endurtaka það, ég hafði ekki nógu góð gögn í höndunum til að finna þetta út, en ég fékk þetta út. Þá miða ég við sömu skiptingu á innflutningnum milli landa og var í fyrra og mjög nálægt því, að 60% af framfærslukostnaðinum væri háð innfluttum vörum. Ég tek það ekkert nærri mér, þó að þetta verði hrakið, mér þykir vænt um að fá betri upplýsingar um þetta. En þegar ekki er hægt að fá þessar upplýsingar, er þm. vorkunn, þótt þeir verði að reyna að áætla það sjálfir. Það er ekki önnur leið til út úr því en sú.

Ég vil þó aðeins víkja að einu atriði í hinum nýja vísitölugrundvelli, sem þykir nú svo góður, og ég skal ekki vefengja að hafi ýmsa kosti fram yfir þann gamla. En það er mjög stór útgjaldaliður í framfærslukostnaði allra manna, það er húsnæðiskostnaðurinn. Menn hafa kannske tekið eftir því, hvernig hann er í þessum nýja vísitölugrundvelli. Það stendur nefnilega í skjalinu, sem við fengum, að hann hefði verið hækkaður upp á „slump“. Það er ekki samkvæmt neinni neyzlurannsókn, sem þar er sett, að húsnæðiskostnaðurinn sé 16% af útgjöldum fjölskyldunnar. Nei, það er ekki þannig. Það er ekki samkv. neyzlurannsókn. Hann er bara látinn hækka svona upp á „slump“ svipað og hann hækkaði undanfarin 2–3 ár. Nú halda menn kannske, að þarna sé húsnæðisliðurinn orðinn réttur í hinni nýju vísitölu. En hann er ekki réttari en það, að fyrir nokkrum árum var hann 15.4%, þó að hann sé núna kominn niður í 10–11. Það er því ósköp hægur vandi, ef nokkur vísitala ætti að vera til lengur, sem á þó ekki að vera til, að hagræða þessum húsnæðislið í vísitölunni áfram, alveg eins og hefur verið gert á undanförnum árum, segja, að menn geti búið fyrir 1000 kr. á mánuði eða 1200 kr. á mánuði. Það er hægt eftir sem áður. Ég held, að það væri þess vert, ef verkalýðssamtökin fara að semja við vinnuveitendur um nýja vísitölu, eins og þeim er vísað á að gera núna, að þeir leiðrétti svona hluti, svo að vísitalan gæti orðið nokkurn veginn réttur mælikvarði á það, sem hún á að mæla.

Ég skal ekki orðlengja þetta meira, en endurtek nú tilmæli mín til hæstv. viðskmrh., af því að ég treysti honum einna bezt af þeim öllum til þess að svara, — þau tilmæli mín að láta okkur í té einhverjar upplýsingar um það, hvernig ríkisstj. og trúnaðarmenn hennar hafa fengið það út, að framfærslukostnaður hækki ekki nema um 7% við allar þær afleiðingar, sem af þessari gengislækkun hljótast.