11.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í B-deild Alþingistíðinda. (12)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Í 46. gr. stjórnarskrárinnar segir, að Alþingi skeri sjálft úr um það, hvort þm. séu löglega kosnir. Þar er Alþ. gefið mikið vald, sem þm. ber að nota af réttsýni og drenglund, og það er vægast sagt undarlegt, þegar hæstv. dómsmrh. lýsir því yfir hér úr þessum ræðustóli, að Alþ. sé í rauninni stofnun, sem ekki sé bær til að beita þessu valdi, sem ákveðið er í stjórnarskránni. Og allur málatilbúnaður sá, sem hér hefur verið lagður fyrir okkur af hálfu stjórnarflokkanna, er afar einkennilegur. Þeir gera ekki aths. við kjörbréf það, sem hér er til umr., heldur nota þeir þetta tækifæri eingöngu til þess að vekja áróðursræðuhöld, einkanlega hæstv. dómsmrh. að vísu.

Hann vék í ræðu sinni nokkuð að ummælum, sem fram höfðu komið frá mér og öðrum í sambandi við ágreining, sem varð hér í Reykjavík innan Alþb. í vor, og mér er að sjálfsögðu bæði ljúft og skylt að gera grein fyrir viðhorfi mínu til þessa kjörbréfs. Tal manna hér og í blöðum um, að afstaða mín hafi verið eitthvað á reiki ein fyrir kosningar og kunni kannske að reynast önnur nú, er byggð á algerum misskilningi eða vísvitandi rangfærslu, nema hvort tveggja sé. Þar er blandað saman tvennum forsendum kosninga á Íslandi, annars vegar lögum stjórnmálaflokka, hins vegar landslögum. Allir stjórnmálaflokkar á Íslandi hafa í lögum sínum ákvæði um það, hvernig framboð skuli ákveðin. Þessi ákvæði eru á ýmsa lund í ýmsum flokkum að sjálfsögðu, en eitt er þó sameiginlegt í þeim öllum. Það er gert ráð fyrir, að ákvörðun sé að lokum tekin á lýðræðislegan hátt í einhverri stofnun flokksins. Allir stjórnmálaflokkar á Íslandi gera ráð fyrir því, að ákvörðun meiri hl. sé endanleg, að minni hl. beygi sig undir það, sem meiri hl. ákveður. Engin stjórnmálasamtök á Íslandi hafa ákvæði í lögum sínum um það, að minni hl. sé heimilt að bjóða fram í nafni flokksins við hlið meiri hl.

Þessu er einnig þannig háttað um lög Alþb., og hér í Reykjavík er ákvörðunarvaldið eins viðtækt og hugsazt getur. Ákvörðun er tekin á almennum fundi í Alþb., þar sem allir félagsmenn þess eiga þátttökurétt. En þrátt fyrir ákvæði í l. stjórnmálaflokks kemur það auðvitað fyrir, að minni hl. neita að beygja sig fyrir ákvörðunum meiri hl., og það hefur gerzt í öllum stjórnmálaflokkum á Íslandi. Slíkur ágreiningur kom upp innan Alþb. hér í Reykjavík, eins og allir vita. Það framboð, sem þá kom fram, var að sjálfsögðu í fullu ósamræmi við lög og reglur Alþb. sjálfs. Því var réttilega lýst yfir, að það væri Alþb. í Reykjavík óviðkomandi með öllu samkv. lögum og reglum þeirra samtaka.

Að þeim deilumálum, sem um það hafa spunnizt innan Alþb., er Alþingi Íslendinga enginn aðili. Alþ. hefur ekkert vald til að segja stjórnmálasamtökum, hvernig þau eigi að velja frambjóðendur né heldur hvernig þau eigi að meta framboð. Þar er um að ræða hrein innanflokksmál, sem öldungis ekki eru á dagskrá hér. Úrskurður um uppbótarsæti og þar með kjörbréf hv. þm. Steingríms Pálssonar er auðvitað enginn dómur um vandamál Alþb. í Reykjavík. Það vandamál mun Alþb. sjálft verða að leysa.

En auk laga stjórnmálasamtaka kveða landslög á um framboð. Og í kosningalögum eru ákvæði, sem óvefengjanlega virðast hafa þann tilgang að heimila minni hlutum að bjóða fram í nafni flokks, enda þótt flokkurinn gefi ekki heimild til þess og eins þótt hann mótmæli því. Ákvæðin eru raunar svo rúm, að þau virðast gefa Pétri og Páli heimild til að bjóða fram í nafni hvaða flokks sem er. Þessi ákvæði skylda auðvitað ekki stjórnmálaflokka til að viðurkenna slík framboð og láta af andstöðu við þau. Þau mæla aðeins fyrir um það, hvernig meta skuli atkvæði listanna, þegar kemur að úthlutun uppbótarsæta. Ekki ætti að þurfa að eyða orðum að því, að landslög eru æðri en lög flokka, og úthlutun uppbótarsæta samkv. þessum ákvæðum kosningalaga hefði naumast orðið deilumál, ef ekki hefði komið til sú staðreynd, að löggjafanum virðist hafa fatazt illilega, þegar síðast var gengið frá þessum lögum. Gagnstæðir úrskurðir bárust frá yfirkjörstjórninni í Reykjavík og landskjörstjórn, en alger einhugur var í hvorri kjörstjórn um sig. Í því sambandi er vert að minna á, að kjörstjórnir þessar báðar eru valdar af Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl., en Alþb. átti þar enga fulltrúa. Ágreiningur þessi varð til þess, að líklegt mátti telja, að úthlutun uppbótarsæta yrði kærð og endanlegur dómur yrði kveðinn upp af fulltrúum stjórnmálaflokkanna hér á þingi.

Afstaða mín til þessa máls byggist ekki á neinu formlegu mati á lagagreinum. Svo er að sjá, sem hinir færustu lögfræðingar telji sig geta rökstutt gagnstæð sjónarmið af miklum lærdómi, sem mig skortir. Það, sem mér finnst skera úr, er það meginatriði, að kjósendur eiga heimtingu á því að fá að vita það fyrir fram, hvað þeir eru að gera í kjörklefanum, hverjum atkv. þeirra koma að gagni. Þar er um að ræða lýðræðislegt grundvallarsjónarmið. Og um það atriði skortir sannarlega ekki yfirlýsingar frá þeim aðilum, sem fara með endanlegt úrskurðarvald, meiri hl. Alþingis þegar er fulltrúar Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl. í landskjörstjórn höfðu lýst yfir þeim ásetningi sinum, að úthlutun uppbótarsæta yrði þannig framkvæmd, að atkv. I-listans yrði bætt við atkv. Alþb., kom málið til kasta flokkanna á margvíslegan hátt. Fljótlega þurfti útvarpsráð t.d. að ákveða, hvernig haga skyldi stjórnmálaumr. í hljóðvarpi og sjónvarpi. Þá ákváðu fulltrúar þeirra þriggja flokka, sem ég nefndi, að I-listinn gæti ekki fengið neinn sjálfstæðan tíma, vegna þess að á hann bæri að líta sem lista Alþb. Þessi meiri hl. útvarpsráðs samþykkti sem sé úrskurð landskjörstjórnar, og þar var ekki um að ræða neina ómerkinga, heldur landskunna forustumenn, t.d. Þórarin Þórarinsson, hv. þm. Framsfl., Sigurð Bjarnason, hv. þm. Sjálfstfl., og sjálfan formann útvarpsráðs, hv. þm. Benedikt Gröndal.

Þessi afstaða útvarpsráðs varð fljótlega deiluefni í blöðum, og öll blöð þessara þriggja flokka, Alþýðublaðið, Morgunblaðið, Tíminn og Vísir lýstu í ritstjórnargreinum stuðningi við þessa ákvörðun útvarpsráðs. Fylgi við stefnu landskjörstjórnar var sem sé lýst yfir í ritstjórnargreinum í málgögnum þeirra þriggja flokka, sem fara með yfirgnæfandi meiri hl. hér á þingi, og senn tóku blöðin að hefja áróðursskrif í sama dúr. Þau lögðu sterka áherzlu á það í kosningabaráttunni, að I-listinn væri einvörðungu borinn fram til þess að safna fylgi handa Alþb. Bent var á tiltekna frambjóðendur úti um land og sagt, að hv. þm. Hannibal Valdimarsson vildi fleyta þeim á þing, og menn voru varaðir við að aðstoða hann við svo skuggalega iðju. Allt er þetta svo nýliðið, að ég hef ekki talið ástæðu til að fara í tilvitnanaleit. Hv. þm. á að vera þessi málflutningur í fersku minni. Þó tók ég með mér Morgunblaðið frá 9. júní, tveim dögum fyrir kosningar, en það er til marks um þessa afstöðu alla. Þar er á 2. og 3. síðu einhver stærsti rammi, sem ég hef séð. Hann nær yfir 9 dálka og er allur feitletraður og ákaflega mikið af hástöfum í honum. Sem sýnishorn vildi ég lesa nokkrar glefsur úr þessari grein, með leyfi hæstv. forseta. Fyrirsögnin er svo hljóðandi:

„Atkvæði greitt Hannibal er atkvæði greitt kommúnistum.“

Svo hefst greinin:

„Nú þegar senn líður að kjördegi, er nauðsynlegt, að kjósendur geri sér alveg ljósa grein fyrir nokkrum staðreyndum í sambandi við framboðsmál Hannibals Valdimarssonar. Kjarni málsins er skv. úrskurði landskjörstjórnar, að atkvæði greitt Hannibal er atkvæði greitt kommúnistum. Það er yfirlýstur tilgangur þessa framboðs að bjarga atkvæðum Alþb. í Rvík, þannig að þau komi frambjóðendum þess úti um land til góða við úthlutun uppbótarsæta. En langflestir frambjóðendur Alþb. úti um land eru hreinræktaðir kommúnistar. Þessi björgunarstarfsemi Hannibals miðar því að því einu að koma fleiri kommúnistum inn á þing.“

Og enn segir svo í greininni:

„Þessar staðreyndir í sambandi við framboð Hannibals sýna glögglega, að þrátt fyrir allt tal hans um uppgjör við kommúnista, eru áhrifin af framboði hans þau ein að hjálpa fleiri kommúnistum inn á þing. Atkvæði greitt Hannibal er atkvæði greitt kommúnistum. Þeir, sem vilja stuðla að því að minnka áhrif kommúnista í íslenzkum þjóðmálum, gera það því ekki með því að kjósa lista Hannibals, þvert á móti stuðla þeir að því að fleiri kommúnistar komist inn á þing, ef þeir kasta atkvæði sínu á lista hans.“

Og lok greinarinnar eru þessi:

„En þrátt fyrir þennan skollaleik, verða kjósendur að hafa þetta hugfast, að atkvæði greitt Hannibal er atkvæði greitt kommúnistum. Hvaða lýðræðissinnaðir kjósendur vilja stuðla að því, að kommúnistum sé beinlínis smyglað inn á þing?“

Ekki veit ég, hver hefur skrifað þetta, hvort það er hv. þm. Sigurður Bjarnason eða hv. varaþm. Eyjólfur Konráð Jónsson, eða sá hv. þm., sem gegnir sjálfboðaliðaritstjórn Morgunblaðsins og aðsetur hefur í forsrn., enda skiptir það ekki máli. Hitt er aðalatriðið, að flokkarnir þrír, Alþfl., Framsfl. og Sjálfstfl., höfðu allir fyrir kosningar og á margvíslegan hátt lýst eindregnum stuðningi við niðurstöðu landskjörstjórnar. Kjósendum hafði verið sagt á hinn ótvíræðasta hátt af þeim, sem valdið hafa, að ef þeir greiddu Ilistanum atkvæði, væru þeir að kjósa Alþb. Kjósendur eiga skýlausa heimtingu á því, að þm. þessara þriggja flokka standi við þessa afstöðu sína, það er siðferðilegur og lýðræðislegur réttur. Þær yfirlýsingar, sem hér hafa komið fram frá fulltrúum stjórnarflokkanna um að þeir ætli að sitja hjá við atkvæðagreiðsluna, eru því til marks um heldur bágt siðferði.

Umtal, sem fram hefur komið um það, að ég hafi skipt um skoðun frá því fyrir kosningar, er raunar harla einkennilegt, því fyrir kosningar var einmitt kvartað sérstaklega undan því í blöðum, að ég hefði ekki fengizt til að svara spurningum um afstöðu mína. T.d. segir svo í Morgunblaðsgreininni, sem ég var áðan að lesa upp úr, með leyfi hæstv. forseta:

„Hafa forsvarsmenn Alþb. algjörlega neitað að lýsa því yfir, aðspurðir í útvarpi og sjónvarpi, að þeir muni ekki þiggja atkvæði Hannibals eftir kosningar, þegar Alþ. kemur saman til fundar. En það hefur svo sem kunnugt er úrslitavald í þessu máli.“

Þegar ég var um þetta spurður fyrir kosningar af málsvörum þeirra þriggja flokka, sem fara með algjöran meiri hluta hér á þingi, benti ég á þá einföldu staðreynd, að með slíkum fyrirspurnum til mín væri aðeins verið að flækja málið. Hið endanlega vald væri í höndum fyrirspyrjendanna sjálfra. Og ég varaði kjósendur mjög við því að treysta því, að flokkar þessir stæðu við þá afstöðu, sem þeir létu uppi fyrir kosningar. Ef á þyrfti að halda, mundu þeir afgreiða málið einvörðungu í samræmi við einkahagsmuni sína. Ég er enn sömu skoðunar. Þetta mál hefði verið flutt hér í þingbyrjun á annan hátt, ef starfhæfur meiri hluti stjórnarflokkanna hefði oltið á atkvæðum I-listans. Þá hefði nýr maður vafalaust verið úrskurðaður inn á þing, þrátt fyrir hinar ótvíræðu yfirlýsingar forsvarsmanna stjórnarflokkanna í sjálfri kosningabaráttunni.

Ég fæ sem sé ekki séð, að hér sé um að ræða neitt vandamál fyrir Alþ. sjálft. Menn geta sagt, að það sé um að ræða vandamál innan Alþb. og það er rétt, en það er ekki mál Alþ. Vandamálið, sem liggur fyrir Alþ., er ekki flókið, og umræður um það á þessum forsendum, þegar engin kæra er borin fram um þetta kjörbréf, eru aðeins málfundur, sem þm. geta að vísu skemmt sér við, ef þeir vilja.

Hins vegar vil ég taka undir það sjónarmið, sem fram hefur komið hjá fulltrúum allra hinna flokkanna hér í ræðunum á undan, að eftir að málfundi um þetta lýkur, þá verðum við að horfast í augu við vandamál, sem varðar kosningalögin sjálf. Það kemur auðvitað ekki til mála, að til kosninga verði gengið á nýjan leik með jafn óljós kosningalög og þau, sem nú eru í gildi. Það mega ekki vera nein langsótt lögfræðileg túlkunaratriði, hvernig meta beri lista, sem fram eru bornir. Þeir, sem bjóða fram lista, verða að hafa um það örugga vitneskju fyrirfram, hvað þeir eru að gera. Það má ekki vera neitt happdrætti eða pólitískt sérhagsmunasjónarmið, hverjir ná kjöri á þing. Ég mundi telja það mjög eðlilegt, að fljótlega yrði skipuð nefnd með fulltrúum frá öllum stjórnmálaflokkum til þess að endurskoða kosningalögin og gera þessi atriði ótvíræð með öllu. Og ég vænti, að um það verði naumast ágreiningur.