27.11.1967
Neðri deild: 28. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í B-deild Alþingistíðinda. (120)
65. mál, verðlagsuppbót á laun og vísitala framfærslukostnaðar
Frsm. meiri hl. (Guðlaugur Gíslason):
Herra forseti. Af því að frsm. minni hl. fór að vitna í þær viðræður, sem áttu sér stað við forstjóra Efnahagsstofnunarinnar á fundi fjhn., hygg ég,
að ekki hafi verið um slíkar fullyrðingar frá hans hendi að ræða, að hann hafi ætlazt til, að það yrði gert hér að staðhæfingum af hans munni, því að hann hafði á því ýmsan fyrirvara. M.a. benti hann á það í sambandi við verðhækkunina, að þetta færi vissulega eftir því, hvort breyting yrði á því, hvaðan vörur yrðu keyptar til landsins. Ef meira magn yrði eftirleiðis flutt inn frá þeim löndum, sem fylgt hafa sterlingspundinu einvörðungu, kæmi það að vísu til álita líka og hefði sín áhrif. En ég skildi þetta þannig, að þarna væri ekki um neinar fullyrðingar eða yfirlýsingar frá hans hendi að ræða, heldur væru þetta aðeins almennar umr., sem ýmislegt gat haft áhrif á, eftir því sem orð féllu þarna, bæði þetta og annað fleira. Ég gat þess einnig, að ég hefði átt viðræður við fjmrh. varðandi efnahagsfrv. og framkvæmd þess og gat þess, að hann hefði tjáð mér, að það mál væri allt í athugun og ekkert hægt um það að segja á þessu stigi. Þetta kom einnig fram á fundi nefndarinnar.