04.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)
20. mál, kosningar til Alþingis
Eysteinn Jónsson:
Herra forseti. Ég álít að undirbúningur þessa máls hefði þurft að vera með öðrum hætti en orðið hefur, og skynsamlegast hefði verið að setja n. þegar s.l. sumar og þá með þátttöku frá öllum flokkunum til þess að skoða kosningalögin, því að sannleikurinn er sá, að ég hygg, að margir hafi séð, að þeim þurfti að breyta. M.a. þurfti vitanlega að endurskoða þau ákvæði þeirra, sem brtt. hæstv. dómsmrh. tvær fjalla um. En það gat verið eðlilegt að skoða fleira í sambandi við það og skoða þau mál nánar en gert hefur verið, áður en endanlega var ráðið til lykta þessum atriðum sérstaklega t.d. hvort það kæmi til mála að setja ákvæði í kosningal. um flokkana, skyldur þeirra og réttindi og ýmislegt fleira í því sambandi, nánari en koma fram í þeirri brtt., sem hæstv. dómsmrh. hefur lagt fram. Ýmislegt af því tagi gat komið til álita, þegar farið var að skoða stöðu flokkanna til þess að bjóða fram og stöðu þeirra til þess að starfa og til þess að vera sá grundvöllur lýðræðis og þingræðis, sem byggt er á. En auðvitað eru það stjórnmálaflokkarnir fyrst og fremst, sem eru sá grundvöllur, sem reist er á.
Ég var ekki ánægður með fyrri brtt. hæstv. dómsmrh., og þannig hygg ég, að fleirum hafi verið farið m.a. vegna þess, eins og hann raunar útlistaði sjálfur, að flokksstjórnum, þ.e.a.s. yfirstjórnum flokkanna, var þar gefinn rétturinn til þess að ákveða hvort listi skyldi talinn fyrir flokk eða ekki, og enn fremur var numinn úr lögum réttur til þess, að flokkur gæti haft tvo framboðslista í sama kjördæmi. Það er einmitt þannig ástatt a.m.k. í sumum flokkum eins og Framsfl. t.d., að þar er vald á framboðsmálum í höndum kjördæmaþinganna og á aldrei að koma til álita flokksstjórnarinnar um framboðin og þarf því ekki að sækja neina staðfestingu til hennar á eina eða aðra lund um þau efni. En það mátti kannske líta svo á, ef þessi till. hefði verið samþ., að þarna hefði verið fært vald til miðstjórna flokkanna, sem þær í sumum flokkunum alls ekki höfðu áður, og að dregið væri úr sjálfræði flokksmanna í héruðunum. Að vísu efast ég um, að þannig hefði orðið um framkvæmdirnar, að þetta hefði nokkru breytt í þessu tilliti, en það var a.m.k. ekki að mínu viti og ýmissa fleiri hyggilegt að setja þetta í lög. Vægast sagt gat þetta valdið miklum misskilningi, og kom strax fram nokkur óánægja víða og ásakanir um að hér væri verið að kreppa að sjálfræði flokksmanna í héruðum. Eins mátti segja, að það væri kannske nokkur söknuður að því, að banna það, að stjórnmálaflokkar gætu haft fleiri en einn lista í sama kjördæmi. Ég hygg, að það sé skynsamlegra, eins og nú er gert ráð fyrir, að það sé leyfilegt áfram. Eftir þær viðræður, sem hæstv. dómsmrh. átti við ýmsa forráðamenn flokkanna, hefur hann breytt till., eins og hann gerði sjálfur grein fyrir, og er hún nú þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Ef sá aðili, sem samkvæmt reglum flokks er ætlað að ákveða framboðslista eða staðfesta framboðslista endanlega, ber fram mótmæli gegn því, að, listi sé í framboði fyrir flokkinn, skal yfirkjörstjórn úrskurða slíkan lista utan flokka og landskjörstjórn úthluta uppbótarþingsætum í samræmi við það.“ Ég vil lýsa því yfir, að ég mun greiða þessari till. atkv. og felli mig við hana til þess að leysa úr þessu vandamáli. Mér finnst þessi tilhögun eðlileg. Í því sambandi vil ég aðeins minna á, að ég hygg, að það mundi verða talinn alveg sjálfsagður hlutur varðandi hvaða félagsskap sem er í landinu, að hann réði því sjálfur og þá eftir eðlilegum lýðræðisreglum, hverjir koma fram fyrir hönd félagsins, en ekki aðrir. Og því skyldu stjórnmálaflokkarnir, sem fyrst og fremst eru félagssamtök, ekki hafa sömu réttindi og öll önnur félagssamtök í landinu, og hví skyldi, eins og nú virðist vera mögulegt, óviðkomandi mönnum vera heimilt að nota nafn stjórnmálaflokks til stuðnings framboði sínu til Alþ. án þess að taka á sig nokkrar félagslegar skyldur í þeim félagsskap á eina eða aðra lund eða vinna nokkuð í félagsskapnum með eðlilegum hætti? Mundi það vera talið hugsanlegt, að þannig væri búið að nokkrum félagsskap í landinu, nema þetta, að sumum dettur í hug, að þannig eigi að búa að stjórnmálaflokkunum? Ég vil biðja menn að íhuga þetta hleypidómalaust. Ef þetta á að byggjast t.d. á þeim hugsunarhætti, að stjórnmálaflokkarnir séu hættulegri félagsstofnanir en annar félagsskapur í landinu, þá er stutt yfir í meiri öfgar í þessa grein, sem gætu sannarlega orðið lýðræðinu hættulegar. Ég lít þannig á, að stjórnmálaflokkar eigi að hafa í þessu tilliti samskonar rétt og annar frjáls félagsskapur.
Nú hefur það heyrzt á stöku stað og komið fyrir, að maður hefur heyrt því haldið fram í þessu sambandi, að lýðræðið væri ekki nægilega tryggt með því, að stjórnmálaflokkarnir fái að starfa eins og annar félagsskapur frjálsra manna, en verði að hafa um þá einhverja sérreglu. Ég get ekki verið sammála þessu, vegna þess að þeir, sem vilja ekki starfa eftir venjulegum félagsreglum í stjórnmálaflokki, hafa þá einföldu leið, sem þeim er tryggð í stjórnarskránni og löggjöfinni, að bjóða fram til Alþingis utan flokka, koma þá hreinlega fram og bjóða fram utan flokka, enda hygg ég, að með því móti mundi þetta verða skýrast fyrir kjósendurna og alla, sem hér eiga hlut að máli, og mest í sönnum lýðræðisanda. Ég held, að menn megi ekki láta rugla sig í þessum hugsunargangi, þó að þeim kannske líki ekki allt, sem gert hefur verið á vegum eins eða annars stjórnmálaflokks.
Ég er ekki þeirrar trúar eða skoðunar, að það styrki lýðræðið í landinu að grafa í sundur stjórnmálaflokkana, því fer alls fjarri. Ég álít, að sé óskipulega starfað að stjórnmálunum og stjórnmálaflokkunum í raun og veru gert ómögulegt að starfa hliðstætt og öðrum frjálsum félögum í landinu, geti orðið stutt í það, að stór óhöpp hendi einmitt í sambandi við eðlilega framkvæmd þingræðis og lýðræðis, t.d. ef menn lentu í því að stuðla með kosningalagaákvæðum að margklofningi stjórnmálaflokkanna í alþingiskosningum, þar sem fjöldi minnihlutaframboða og utanflokksframboða í nafni flokkanna, — raunverulega utanflokksframboð — en í nafni flokkanna, kæmu til eftir alls konar sérsjónarmiðum og persónulegum viðhorfum. En á slíku sýnist mér hreinlega mikil hætta, eins og ákvæðin hafa nú verið túlkuð, — eins og okkur er sagt, að kosningalögin séu nú.
Það á að heita svo, að ég sé framarlega í stjórnmálastarfi, en ég hafði ekki gert mér grein fyrir því, þangað til á s.l. ári, að þessi möguleiki væri til. Þess vegna vil ég eiga hlut að því að setja um þetta betri og eðlilegri reglu en er í kosningalögum okkar. En mér finnst, eins og ég sagði, sá ágalli, að það hefði átt að endurskoða fleira og byrja strax í sumar að skoða málið. En þó að það hafi ekki verið gert, vil ég samt stuðla að þessari miðlun, sem hæstv. dómsmrh. hefur gert með sinni síðari brtt., því að mér sýnist satt að segja ekki mega vera minni vernd í löggjöfinni fyrir stjórnmálafélagsskap, hliðstætt öðrum félagsskap, en sú, sem þar er gert ráð fyrir.
Ef menn vilja tortryggja stjórnmálaflokkana og telja að ekki séu nægilega tryggðar lýðræðislegar ákvarðanir innan þeirra, t.d. um framboð, sem vel má vera, ég skal ekkert fullyrða um slíkt, ættu menn að beita sér fyrir einhvers konar lagasetningu um stjórnmálaflokkana og skyldur þeirra í þessu tilliti ásamt réttindum. En þó vil ég segja, að það verður að fara mjög varlega í þessu, mjög varlega og hugsa sig vel um, áður en sterk eða ýtarleg ákvæði eru sett um þetta, því að það getur verið stutt yfir í það að setja þennan félagsskap í einhvers konar spennitreyju, sem ekki gæti samrýmzt eðlilegu og frjálsu pólitísku starfi. Það þarf að fara mjög gætilega í þessu. En ef menn óttast þetta, finnst mér þó, að athyglin eigi að beinast að því að tryggja lýðræðið innan flokkanna, en hitt mundi ekki til bóta og engu geta bjargað, en þvert á móti orðið mjög til tjóns, ef stjórnmálaflokkarnir eru hreinlega ofurseldir öllum, sem í skrokk á þeim vilja ganga, hvaðan sem þeir koma, sem hlýtur að verða gert ef óviðkomandi fólk getur notfært sér nöfn og þá aðstöðu flokkanna sem þeir hafa skapað sér. Flokkarnir hafa nöfn og aðstöðu meðal þjóðarinnar sem þeir gjalda eða njóta eftir því, hvernig þeim hefur tekizt. Og þetta er réttur, sem þeir eiga og ekki má að mínu viti leyfa hverjum sem er að hrifsa til sín, kannski stundum með fölskum forsendum.
Ég vil taka fram, að ég er ekki að dæma um það, sem gerðist hér í fyrra. Ég er aðeins að ræða um það, sem komið hefur í ljós, sem sé, að kosningalögin eru gölluð að þessu leyti. Ég tel því, að það þurfi að breyta þeim. Ég álít, að í sambandi við það komi til greina ýmsar almennar íhuganir af því tagi, sem ég er að flytja, og eigi fullan rétt á sér og samkvæmt því eigi menn að taka afstöðu til þessa að sumu leyti vandasama máls. En eins og ég sagði áðan, er ég fyrir mitt leyti ánægður með þá brtt., sem nú liggur fyrir, sem miðlun. Með því er engu raskað í því að fullt lýðræði eigi sér stað innan flokkanna. Það er ekki á nokkurn hátt dregið úr valdi hins einstaka kjósanda innan þeirra. Það er ekkert dregið úr valdi héraðanna í flokkssamtökunum. Það á aðeins að fyrirbyggja að þeir, sem ekki vilja starfa í flokkunum eftir venjulegum lýðræðislegum og félagslegum reglum, geti að flokkunum þvernauðugum notfært sér nöfn þeirra og aðstöðu.
Fyrst ég er nú kominn hingað og farinn að ræða á þennan hátt fram og aftur um flokkana og lýðræðið og ýmislegt í sambandi við það, langar mig að bæta við örfáum orðum um hlutverk flokkanna og um Alþingi, þessa stofnun, sem við störfum í.
Þingræðið, lýðræðið hlýtur að byggjast á starfsemi stjórnmálaflokka, og ef þeir eru tættir í sundur, er stutt að endalokum lýðræðisins. Menn verða að gera sér grein fyrir þessu. Þess vegna verða menn að venja sig á að vinna í slíkum félagsheildum. Það kann að vera, að sumum finnist þetta of bindandi, en þá er sá möguleiki, sem gert er ráð fyrir í stjórnarskrá og kosningalögum, að starfa utan flokka. En án stjórnmálaflokka verður lýðræðið áreiðanlega ekki framkvæmt.
Þingflokkarnir eru beinlínis hluti af Alþingi. Það er skrýtið, að þegar menn tala um Alþ. og störf þess, þá tala menn stundum eins og þeir geri sér ekki grein fyrir því, að Alþ. er ekki aðeins fundur í Sþ. og deildunum og nefndarfundir, heldur eru þingflokkarnir hluti af Alþingi. Ekki vil ég neita því, að ýmsar hættur steðji hér að lýðræði og þingræði. En þær hættur eru ekki að mínu viti fyrst og fremst fólgnar í því, að stjórnmálaflokkarnir íslenzku séu of sterkar stofnanir. Þær hættur, sem steðja að þingræði og lýðræði hér, stafa ekki af því, t.d. sú hætta, sem óneitanlega er fyrir hendi, að Alþ. missi þau tök í þjóðfélaginu, sem það á með réttu móti að hafa. Sú hætta kemur ekki frá stjórnmálaflokkunum, t.d. því, að þeir séu of sterkar stofnanir. Að mínu viti er hætta sú, sem steðjar hér að þingræði og lýðræði, allt annars eðlis og þveröfugt farið. Hættan stafar sem sé að verulegu leyti af því, að þingflokkarnir eru of veikar stofnanir og Alþ. er þar af leiðandi of veik stofnun til þess að vega á móti öðrum öflum í þjóðfélaginu, sem nálega vélrænt, eins og nú er komið draga til sín það vald, sem að réttu lagi á að vera hjá Alþingi.
Það mætti segja margt í þessu sambandi, og það eru fleiri en eitt afl, sem eru þarna að verki og Alþ., sem mjög byggist á þingflokkunum, hefur ekki í fullu tré við. En ég nefni núna embættiskerfið og þar með talið peningakerfið hér í okkar landi, sem er hluti af embættiskerfinu. Sú hætta er yfirvofandi í sífellt ríkara mæli, að það vald, sem með réttu á að vera hjá Alþ., dragist yfir í embættiskerfið með öllum sérfræðingunum, og þar með talið, eins og ég sagði áðan, peningakerfið.
Ég má ekki eyða mjög löngum tíma í þetta, því að það má segja, að það sé nokkuð langsótt að ræða þetta vandamál í sambandi við kosningalögin, en ég tel, að eitt þýðingarmesta úrræðið, sem hægt væri að grípa til, til þess að koma þessu aftur í betra horf, færa þetta í réttara horf, tryggja eðlilegt jafnvægi í þessu tilliti, tryggja hér í framtíðinni sterkara þingræði — og ég vil segja lýðræði — en við búum við nú, að eitt aðalúræðið í því ætti að vera að efla aðstöðu þingflokkanna stórlega frá því, sem hún er nú, og hervæða þá til mótvægis gegn öðrum þjóðfélagsöflum.
Ekki dettur mér í hug að halda því fram, að þetta afl, sem fer vaxandi, embættiskerfið, sé hættulegt, ef vel er fyrir öðru séð. Síður en svo. Því fer fjarri. Það er margt afbragðsmanna, sem í því kerfi starfa, en þeir eru embættismenn og þeir eru sumir sérfræðingar í einstökum greinum í því flókna samfélagi, sem við lifum í og verður alltaf flóknara og flóknara. Þeir eru ekki kosnir til starfa sinna. Þeir eiga ekki að standa frammi fyrir þjóðinni með vissu millibili og bera ábyrgð á gerðum sínum. Þeir þurfa þess ekki, og þeir eru vitanlega ekki nema menn, og þetta setur með eðlilegu móti sitt svipmót á allt þeirra viðhorf og allt þeirra starf.
Þar, sem lýðræði á að ríkja og þingræði, eins og hér hjá okkur, má ekki of mikið af valdinu dragast yfir í embættis- og peningakerfi, heldur á það að vera hjá þeim, sem eru kosnir af þjóðinni til þess að fara með málefni hennar á löggjafarsamkomunni og þurfa að standa reikningsskap á gerðum sínum, sem verða að standa eða falla með verkum sínum. Ef þetta hnikast þannig til í okkar þjóðfélagi, að valdið dregst um of úr höndum þessara kjörnu fulltrúa þjóðarinnar og yfir til annarra, hverjir sem þeir eru, er sjálfur grundvöllurinn í stórkostlegri hættu. Og það leikur enginn vafi á því, að það er vaxandi háski yfirvofandi í þessu efni, sem stafar af því annars vegar, hversu þjóðfélagið verður sífellt flóknara og flóknara og embættiskerfið sífellt öflugra og öflugra, m. a. í skjóli sérfræðinnar í fleiri og fleiri greinum, hins vegar af því, að gagnvart þessu standa þingflokkarnir, sem mörgum finnst að séu svo óskaplega voldugir og jafnvel óskaplega hættulegir, en eru of veikir. Sumir telja, að þeir séu hin stórkostlega þjóðfélagshætta, sem yfir vofi, og af þeim stafi margvísleg óhöpp til tjóns fyrir þjóðina og þeir sölsi allt undir sig. En gagnvart þessu vaxandi valdi annarra standa þessir flokkar, eftir því sem ég lít á, eins og risar á leirfótum, eins og nú er komið málum. Skal ég færa fram örfá atriði því til stuðnings, svo að menn skilji betur, hvað ég á við.
Hvers er krafizt af þingflokkunum, og hver er starfsaðstaða þeirra? Þess er auðvitað með réttu krafizt af þingflokkunum, að þeir kunni skil á þjóðmálunum í öllum greinum, þ. á m. mörgum hásérfræðilegum efnum og mjög erfiðum viðfangs. En hver er svo aðstaða þingflokkanna til þess að sinna þessum skyldum? Hún er þannig, að þeir hafa hreinlega engu starfsliði á að skipa. Alþm. eru þannig launaðir, að þingstörfin verða að vera þeim aukastörf. Flestir þeirra eru þm. fyrir nokkra tugi hreppa og fleiri en einn kaupstað. Málefnum allra þessara byggðarlaga eiga þeir að sinna og þar að auki eiga þeir að vera svo vel að sér, að þeir kunni a.m.k. skil á ýmsum þýðingarmiklum þáttum almennt í þjóðarbúskapnum þar fyrir utan. Við skulum segja, að menn reyni að skipta með sér verkum, þannig að allir þurfi ekki að vita allt, en allir verða að vera vel að sér í nokkrum þýðingarmiklum greinum þjóðarbúsins, auk þess að vera þm. fyrir sín héruð. En þeim er þannig launað, þm., að þeir verða að hafa þetta starf, sem ég var að lýsa og mætti lýsa í miklu lengra máli og ýtarlegar, verða að hafa þetta nálega sem aukastarf. Og við bætist að þingflokkarnir hafa enga aðstoð, enga málefnalega aðstoð. Þeir hafa t.d. engum sérfræðingum á að skipa til þess að hjálpa til þess að byggja upp sjálfstæða skoðun eða viðhorf í hinum flóknustu viðfangsefnum, enga sérfræðilega aðstoð í því tilliti, ekki einu sinni starfsmenn til þess að afla upplýsinga eða draga saman staðreyndir. Hér við bætast svo vinnuskilyrði stjórnarandstöðunnar. Henni er auðvitað ætlað að vita allt eins vel og stjórnin um alla meginþætti þjóðarbúskaparins. Henni er einnig ætlað að byggja upp og endurskoða látlaust, miðað við breytt viðhorf, stefnu sína og úrræði í öllum þýðingarmestu málum og hafa afstöðu til alls þess, sem kemur fram frá stjórninni, og loks að kunna full skil á því sem stjórnarandstöðunni þykir nauðsyn bera til að hreyfa af sinni hendi. Stjórnarandstaðan á að geta gefið út afstöður látlaust eins og nú er komið með fjölmiðlunartæki og hraða í meðferð mála og þarf því sífellt að sinna þessum verkefnum. Þetta er stjórnarandstöðuflokkunum ætlað að vinna sérstaklega, en aðbúnaðurinn á þá lund, sem ég hef verið að lýsa.
Nú mættu menn halda, að stjórnarflokkarnir væru mjög vel settir að þessu leyti og ólíkt betur en þingflokkar stjórnarandstöðunnar, og ég veit, að ráðh. hafa náttúrlega menn á hverjum fingri og geta haft menn til þess að draga að sér upplýsingar o.s.frv. En ég held, að í sjálfum þingflokkum stjórnarliðsins, hverjir sem þeir eru, sé ákaflega lítið betur ástatt í þessu efni en hjá stjórnarandstöðunni, og sannarlega þarf á vegum þingflokkanna, ekkert síður stjórnarflokkanna en þingflokka stjórnarandstöðunnar, að fara fram sjálfstætt starf, sjálfstætt mat á því, sem er að gerast, og því, sem þarf að gerast, til þess að þingræðið raunverulega fái notið sín, því að ég mundi segja það af langri reynslu sjálfs mín og enn fremur af því að horfa á aðra starfa í ráðherrastólum, að það sé veruleg hætta á því, að ráðherrar — og ég vil segja það þannig, svo að tekið verði eftir því, — að ráðherrar verði að meira eða minna leyti fangar embættiskerfisins. Þeir þurfa a.m.k. að vera talsverðir fyrir sér og allvel í stakk búnir, þegar þeir ganga inn í kerfið, ef þeir eiga ekki að verða að meira eða minna leyti fangar þess. Og hvaðan eiga ráðherrar að koma hervæddir inn í þetta kerfi, t.d. ungur maður, sem verður ráðherra í fyrsta skipti? Hvaðan á hann að koma hér væddur inn í þetta kerfi, þannig að hann eigi í fullu tré við það og geti unnið þar sjálfstætt og ekki orðið of háður því, en geti notfært sér það? Hvaðan á hann að koma? Jú, úr stjórnmálaflokkunum, úr þingflokkunum, sem eru svona settir eins og ég hef verið að lýsa. Eru þingflokkarnir líklegir eins og að þeim er búið, til þess að „framleiða“ eða leggja til ráðh., sem geta raunveruleg á haft í fullu tré við embættiskerfið og geta komið í framkvæmd því, sem þeir vilja sjálfir, eða því, sem meiri hluti Alþ. raunverulega vill, eða því, sem þeirra eigin flokkar vilja, hvernig sem menn vilja orða það? Ég held, að hér sé um atriði að ræða, sem þarf að gefa meiri gaum en við höfum gert, og sannarlega þurfi hér stórkostlegra endurbóta við. Og endurbæturnar verða alltaf nauðsynlegri og nauðsynlegri, eftir því sem þjóðfélagið verður flóknara og flóknara.
Fyrir 30 árum var kannske hægt að segja, að hættan í þessu tilliti, hættan á því, að Alþ. missti
tökin af málunum yfir til annarra, væri ekki mjög stórfelld. Ég fullyrði, að hún er margfalt meiri nú. Það er margfalt meiri nauðsyn nú en þá á því, að taka þetta verkefni föstum tökum, að búa þingflokkana þannig í stakk, að það stuðli ekki aðeins að sóma og virðingu Alþ., heldur tryggi hreinlega, að Alþingi haldi því valdi sem það með réttu móti á að hafa, og geri flokkunum mögulegt að búa ráðherraefni framtíðarinnar þannig að heiman, það þau hafi í fullu tré.
Við tölum talsvert um, að við höfum hér aðskilið framkvæmdavald og löggjafarvald. En eins og þetta er hér hjá okkur, grautast þetta mjög mikið saman og hlýtur raunar að gera það, þegar þingræði er framfylgt, því að ráðherrar eru eins konar umboðsmenn þingmeirihluta eða framkvæmdastjórar hans á þjóðarbúinu. En ég held, að þróunin gangi og hafi gengið hratt í þá átt, að framkvæmdavaldið, og þáttur í því er embættisvaldið, sem ráðh. vinna með, verði óðfluga allt of sterkt og vald Alþ. minnki að sama skapi.
Þetta höfuðmein, sem að mínu viti er orðið mjög umfangsmikið í okkar þjóðarbúskap, verður ekki læknað með því að veikja stjórnmálaflokkana. Hættan stafar ekki frá þeim. Hún mundi stafa frá þeim, ef þeir tækju upp ólýðræðislegar vinnuaðferðir eða kæmu ólýðræðislega fyrir starfi innan flokkanna. Þá gætu flokkar orðið hættulegir. En hættan fyrir skynsamlega og eðlilega framkvæmd þingræðis og lýðræðis kemur ekki frá stjórnmálaflokkunum eins og nú er ástatt, og það er allra sízt ástæða til þess að gera nokkuð það, sem gæti grafið þá í sundur. Hættan kemur annars staðar frá. Ég tel, að helzta læknislyfið í þessu tilliti sé einmitt það að snúa sér að því að gera stjórnmálaflokkunum kleift að sinna lýðræðis- og þingræðisskyldum sínum málefnalega í starfinu á Alþingi, gera flokkunum mögulegt að vinna sjálfstætt og t.d. að ala upp sjálfstæða þjóðmálamenn, sem hafa þá þekkingu, sem þarf til þess að geta notið sín. Slíkt verður að mínu viti gert m.a. með því að gefa þingflokkunum tækifæri á því að hafa hæfilegu starfsliði á að skipa, til þess að kleift reynist að byggja upp sjálfstætt starf og eðlilegt mótvægi í þjóðfélaginu. Þá þarf að gera betur við alþm. en nú er gert og gera þeim mögulegt að leggja meiri vinnu í starfið en nú tíðkast. Alþ. nær ekki að mínum dómi að starfa eins vasklega og það þyrfti að gera á meðan alþm. hafa jafn lélega aðstöðu og nú til þess að vinna að þeim stórfelldu verkefnum, sem þeim er ætlað að sinna. Enginn skyldi halda, að verk alþm. geti, án þess að stórslys verði af, eingöngu verið fólgið í því að koma til þings óundirbúinn sama daginn og Alþingi er kallað til fundar og fara síðan strax þegar setu þess lýkur til þess að starfa að allt öðru allan þann tíma, sem þingið ekki situr. Það getur ekki góðri lukku stýrt, ef þannig er haldið á. Það er alveg víst.
Það er náttúrlega margt, sem hér kemur til greina, en mér sýnist, að eitt af því sé þetta, að þingflokkarnir fái starfsaðstöðu ekki síður en aðrar greinar í þjóðarbúskapnum, aðrar greinar í stjórnkerfinu til þess að sinna þeim verkefnum, sem hér verður að vinna. Það verður að gera alþm. mögulegt að vera þm. meira en að nafninu til, og gera Alþ. þannig fært að framkvæma það vald, löggjafarvaldið, sem því er ætlað að hafa með höndum.
Það væri ástæða til, fyrst ég er farinn að ræða um þetta almennt, að tala um ýmsar aðrar hættur, sem óneitanlega steðja að í þessu sambandi. Og án þess að ég vilji fara út í kappræður um þetta núna, nefni ég eina hættu, sem þarna kemur til greina, þó að hún snerti ekki beinlínis þetta, sem hér á að afgreiða. En það er sú hætta, að ríkisstj. og stjórnarflokkar hafa öðlazt stórkostleg sérréttindi, eins og nú er komið málum, varðandi notkun þeirra fjölmiðlunartækja, sem nú eru sífellt að verða áhrifameiri og áhrifameiri, þ.e. útvarps og sjónvarps. Og þessi hætta er svo gífurleg, að ég álít, að fulltrúar flokkanna á Alþ. ættu að setjast niður og bera saman bækur sínar í þessu tilliti. Eins og þetta horfir núna, er náttúrlega óhugsandi, — ég tek svo djúpt í árinni, — alveg óhugsandi, að hér geti staðizt eðlilegt lýðræði framvegis, ef því á að fara fram sem nú er að gerast í þessu efni. Ég er ekki að segja, að verið sé að framkvæma einhverja áætlun í þessu eða þetta sé gert af ásettu ráði, en nú er þetta þannig, að fulltrúar þeirra, sem standa að ríkisstj., ráðh. og aðrir, eru nálega daglega að skýra fyrir þjóðinni, hvað þeir eru að gera, auðvitað frá sínu sjónarmiði, og greina frá framkvæmdum sínum, en stjórnarandstaðan hefur sáralitla möguleika til þess að greina frá sínum viðhorfum eða gera grein fyrir, hvað hún mundi vilja gera.
Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að hér sé unnið eftir áætlun að því að skapa skakka í þessu efni. Samt er þetta svona og þetta er eitt af því, sem mér finnst, að fulltrúar þingflokkánna allra, ekkert síður stjórnarflokkanna en stjórnarandstöðuflokkanna, þyrftu að taka til athugunar sameiginlega, og þá án þess að metast nokkuð um það, sem orðið er í þessu tilliti, og þá til þess að finna fyrir þessu eðlilegar og skynsamlegar reglur.
Niðurstaða mín af þessu tali er sú, að ég mun greiða atkv. með síðari brtt. hæstv. dómsmrh. og tel hana skynsamlega og hóflega lausn á því vandamáli, sem fyrir liggur.