04.04.1968
Neðri deild: 89. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í B-deild Alþingistíðinda. (1222)

20. mál, kosningar til Alþingis

Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):

Herra forseti. Ég skal ekki teygja þessar umr. fram á nýjan dag, enda er nú orðin allmikil værð yfir þingsölunum og ástæðulaust að ýfa upp deilur að nýju.

En það er þá fyrst aðeins, að ég vildi segja nokkur orð um meðferð málsins, því að það hefur verið ítrekuð ósk til mín um, að frestað yrði afgreiðslu brtt. minnar, og aðallega rökstutt með því, að hún kæmi þá til athugunar í sambandi við heildarendurskoðun, sem fram hefðu komið óskir um að færi fram á stjórnarskránni. Ég tók afstöðu til þessarar frestunar í dag og þarf ekki við það að bæta, og þá sagði ég m.a., eins og réttilega hefur verið tekið fram, að aðalástæðan fyrir því, að ég vildi ekki fresta þessu máli nú, væri sú, að það vissi enginn, hvenær kosningar gætu farið fram, og við í stjórnarflokkunum a.m.k. vildum ekki, að kosningar færu fram aftur eftir þeirri löggjöf, sem nú gildir, með þeim glundroða, sem því fylgdi. Og það hljóta hv. þm., að sjá, að ef á að fara fram heildarendurskoðun á stjórnarskránni, þá getur það ekki orðið að mínum dómi öðruvísi en kosningar verði aftur að fara fram eftir þeim kosningal., sem nú eru, því að ég tel það alveg óhugsandi, að heildarendurskoðun fari fram á kosningal., nema það séu teknar með langveigamestu breytingarnar, sem snerta ákvæði stjórnarskrárinnar og verður ekki breytt, fyrr en búið er að breyta stjórnarskránni, og til þess þarf kosningar. Þetta leiðir af hlutarins eðli. Það hefur verið talað um ýmis minni háttar mál í sambandi við endurskoðun á kosningal., sem ekki snerta stjórnarskrána, en heildarendurskoðun getur ekki farið fram að mínum dómi, og ég held, að við hljótum að verða sammála um það, þegar menn hugsa um það, með öðrum hætti en að það séu þá um leið endurskoðuð ákvæði þau, sem veigamest eru og eru bundin í sjálfri stjórnarskránni.

Um hina löngu ræðu hv. 9. þm. Reykv. skal ég ekki annað segja en það, að hún byggist að langsamlega mestu leyti á grundvallarmisskilningi, og ég held, að það komi skýrast fram með því að vitna til þess, að hann taldi sig ekki skilja tilgang minn með því að gera grein fyrir álitsgerðum umboðsmanna G-listans fyrir kosningarnar í vor, og taldi, að ég hefði vitnað í ályktun stjórnar Alþb., sem ég gerði í dag, til stuðnings brtt. minni. Þetta er mikill misskilningur. Ég dró fram í dagsljósið álitsgerð umboðsmanna G-listans, sem töldu að listi sá, sem kenndur var við Hannibal Valdimarsson, væri Alþb. algerlega óviðkomandi, og einnig vitnaði ég í ályktun Alþb.-stjórnarinnar, sem sagði hið sama. Alþb.-stjórnin sagði: „Þessi listi er okkur algerlega óviðkomandi, þetta er klofningslisti, borinn fram af mönnum óviðkomandi okkur.“ Og svo merkir yfirkjörstjórnin listann I-lista, sem utan flokka, og það er á þessum grundvelli, enda þótt komið hafi fram yfirlýsing, sem öllum er kunnugt um, frá formanni landskjörstjórnar og úrskurður hennar, en það er á þessum grundvelli, sem gengið er til kosninga. Og ég tók einmitt ekki afstöðu til þess og skal þess vegna ekkert fara inn á hinar löngu umr. um það, hvort þessi ákvæði kosningal. hafi verið rétt skilin af Hannibal Valdimarssyni eða andstæðingum hans, eða réttara sagt flokksmönnum hans, sem skildu kosningal. öðruvísi, heldur aðeins það, að úr því að kosningal. eru það óljós, að listi er merktur utan flokka, sem óskað er eftir að sé þó listi tiltekins flokks, og þessi tiltekni flokkur og flokksstjórn og umboðsmenn flokksins telja listann óviðkomandi, þá er, þegar kjósendur ganga að kjörborði, raunverulega gert svo mikið til þess að villa um fyrir þeim í kosningunum, að það er miklu ósennilegra, að menn hafi ekki ruglazt við kosninguna, og ég sagði að ég þekkti þess dæmi, að menn hefðu kosið á röngum forsendum í þessum kosningum, af því að þeir héldu, að Hannibal Valdimarsson byði sig raunverulega fram í andstöðu við kommúnista í Alþb. og vildi ekki láta þá njóta síns stuðnings, heldur skyldu þeir mæta hans andstöðu. Þetta er meginástæðan til þess, að við höfum talið, sem að þessum till. stöndum, að nauðsynlegt sé, eins og ég sagði, að setja undir þennan leka eða gera það skýrt, að til kosninga verði gengið þannig, að kjósendur fari ekki í neinar grafgötur með það, hvaða lista þeir eiga að kjósa, þennan eða hinn. Alþ. hefur ekki kveðið upp neinn úrskurð um þetta atriði, þetta gæti endurtekið sig við næstu kosningar. Hv. 9. þm. Reykv. veit, að hann er hér með kjörbréf sem I-listamaður, og það er það kjörbréf, sem hefur verið samþ. hér á Alþ. Hitt er svo rétt, að Alþ. hafnaði ekki kjörbréfi hv. 8. landsk., en stjórnarflokkarnir tóku ekki afstöðu til þessa máls þá, og mátti segja, að grundvöllurinn undir því væri að taka ekki afstöðu til hinnar lögfræðilegu deilu, sem uppi var. Og ég sagði það í dag, og hef sagt það áður, að menn hljóti að skilja það, að Alþ. er í sjálfu sér ekki stofnun til þess að kveða upp lögfræðilega úrskurði, þótt hins vegar samkvæmt stjórnarskránni heri Alþ. valdið til að úrskurða kjörbréf, og þess vegna var það okkar ráð að láta það afskiptalaust, en boða, að við mundum gera af okkar hálfu það, sem við teldum nauðsynlegt, til þess að slíkur glundroði gæti ekki skapazt og með öllu væri girt fyrir, að það endurtæki sig, að til kosninga væri gengið á þeim forsendum, að það væri mjög sennilegt — það getur enginn fullyrt nokkuð um þetta, en mjög sennilegt, að sumir kjósendur hefðu greitt atkv. öðruvísi en þeir hefðu gert, ef þessi mál hefðu legið alveg ljóst fyrir. — Ég skal, eins og ég sagði áðan, svo ekki lengja þessar umr. og læt nú máli mínu lokið.