06.04.1968
Efri deild: 84. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1381 í B-deild Alþingistíðinda. (1254)
13. mál, vörumerki
Forsrh. (Bjarni Benediktsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir þessu máli einnig í umboði hæstv. dómsmrh. sökum fjarveru hans. Hér á landi gilda lög um vörumerki, sem voru sett 1903, en voru þá sniðin eftir eldri vörumerkjalögum frá Norðurlöndum. Það gefur auga leið, að síðan hefur ákaflega margt breytzt, ekki sízt í þeim viðskiptum, þar sem vörumerki einkum hafa þýðingu. Þess vegna var það að á árinu 1958 voru þeir Sigurgeir Sigurjónsson hrl., Páll Pálmason ráðuneytisstjóri og Theódór Líndal skipaðir í n. til þess að endurskoða lögin frá 1903. Páll Pálmason hefur marga áratugi farið með þessi mál í rn. og er þeim allra manna kunnugastur. Það er af sömu ástæðum, eins og ég gat um áðan, að þó að málið hafi heyrt undir annað rn., hefur það lengi svo til viljað, að þessi tegund mála hefur verið lögð undir þann mann, sem hefur gegnt starfi dómsmrh., að dómsmrh. ber formlega ábyrgð á meðferð málsins. Í þessari löggjöf er tekið tillit til þeirra breytinga, sem hafa orðið á Norðurlöndum í meðferð þessara mála, og alþjóðasamþykkta, sem síðan hafa verið gerðar. Þetta er hreint tæknilegt mál, sem ég geri ráð fyrir, að þm. hvorki hafi ákaflega mikla þekkingu á né geti vel dæmt um. Eins og ég segi, það er tæknilegt annars vegar, hvernig þessu verði bezt komið fyrir innanlands og hins vegar sniðið eftir alþjóðasamningum og framkvæmd hjá okkar nágrönnum eða helztu viðskiptaþjóðum.
Ég vil leyfa mér að leggja til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. allshn., sem ég hygg, að hafi farið með málið í Nd.