29.03.1968
Efri deild: 77. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1268)

67. mál, bókhald

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Þetta mál, sem hér er til umr., frv. til l. um bókhald, er mjög sérfræðilegs eðlis og því varð þn., er fékk mál þetta til athugunar, að treysta mjög á skýringar og röksemdir þeirra sérfræðinga, sem hafa samið þetta frv. Þeir eru allir mjög færir menn í bókhaldsfræðum.

Gildandi lög um bókhald eru nú 30 ára gömul og talin úrelt á ýmsan hátt. Á síðustu þremur áratugum hafa atvinnu- og viðskiptahættir hér tekið allmiklum breytingum. Skattalöggjöfin hefur gerbreytzt. Nýjar bókhaldsaðferðir og ný bókhaldstækni hefur rutt sér til rúms. Af öllu þessu leiðir, að það er brýn þörf á setningu nýrrar bókhaldslöggjafar, sem fullnægir kröfum tímans.

Grundvallarstefnan í því frv. til bókhaldslaga, sem hér liggur fyrir til umr., kemur fram í 5. gr. frv., en þar segir, að bókhaldið skuli veita svo sundurliðaðar upplýsingar um rekstur og efnahag eins og þarfir eigenda, lánardrottna og hins opinbera krefjist. Með frv. er lagt til, að bókhaldsskyldir séu allir þeir, sem sjálfstæðan atvinnurekstur stunda, að undanskildum bændum, svo og þeir, sem hafa undir höndum eða fara með annarra manna fé. Með þessu frv. eru gerðar meiri kröfur en áður til þeirra, sem bókhaldsskyldir eru. Hins vegar er vægilega farið í það í frv. að láta bókhaldsskyldu ná til fleiri aðila en samkv. gildandi l., en þá verður líka að hafa hugfast, að lagaákvæði um bókhald er víðar að finna en í bókhaldsl. frá 1938, því að í l. um söluskatt frá 1960, 27. gr. 2. mgr., segir:

„Fjmrh. getur með reglugerð sett nánari fyrirmæli um framkvæmd þessara laga, þar á meðal fyrirskipað sérstakt bókhald, þar með talið birgðabókhald, fyrir alla söluskattsskylda aðila, svo og um löggildingu þess, færslu og geymslu,“ en í reglugerð nr. 15 frá 1960 eru svo settar ýtarlegar reglur um bókhald söluskattsskyldra aðila.

Þessu frv. var vísað til allshn. N. kvaddi á sinn fund höfunda þessa frv. og ræddi við þá um málið og fékk skýringar. Enn fremur aflaði n. sér umsagna um frv. frá Verzlunarráði Íslands, Sambandi ísl. sveitarfélaga, Félagi löggiltra endurskoðenda og ríkisskattstjóra. Umsagnir þessara aðila voru yfirleitt jákvæðar, en því komu þar fram ýmsar ábendingar um sitt hvað, sem betur mætti fara. Niðurstaðan af þessari athugun n. varð svo sú að mæla með því, að frv. verði samþ., en þó með tilteknum breytingum, sem koma fram á þskj. 442, sama skjali og nál.

1. brtt. er við 11. gr. 1. málsgr. hljóði svo: Sjóðbók, sjóðdagbók og dagbók sé lokað eigi sjaldnar en ársfjórðungslega. Niðurstöður hinna einstöku reikninga skulu þá færast í aðalbók. Þarna er á ferðinni breyting frá ákvæðum frv., sem segja, að þessum bókum skuli lokað mánaðarlega og niðurstöður mánaðarlega færðar inn í aðalbók. Það komu fram um það ábendingar bæði frá Félagi löggiltra endurskoðenda og svo ríkisskattstjóra, að það væri heldur strangt að krefjast þess, að þetta væri fært mánaðarlega og varð n. við þeim ábendingum og breytti þessu, gerði till. um, að þarna ýrði miðað við ársfjórðung í staðinn fyrir mánuð.

2. brtt. á þessu þskj. er við 12. gr., en í 12. gr. segir, að þau útgjöld, sem færð eru í bækurnar, skuli vera samkv. áreiðanlegum og fullnægjandi skjölum. Það sama gildir um tekjur eftir því, sem við verður komið. Ríkisskattstjóri lagði til, að þessi gr. yrði miklu lengri og ýtarlegri, en í till. hans fólust ærið flóknar forskriftir um það, hvernig ætti sérstaklega að hafa eftirlit með, að tekjurnar kæmu fram hjá fyrirtækjunum, hvaða fskj. og sannanir þar ættu að liggja fyrir. Og n. vildi koma til móts við sjónarmið ríkisskattstjóra í þessum efnum með því að undirstrika, að um þessi atriði skyldi sérstaklega kveðið á nánar í reglugerð.

3. brtt.,sem er einna veigamest, er á þá leið, að 23. gr. frv. falli niður. Það var einnig gert eftir till. ríkisskattstjóra að fella þessa gr. úr frv., en hann segir í sinni umsögn, að rétt þyki að fella þessa gr. niður í heild og segir enn fremur, að varhugavert sé að hvetja menn með þessu ákvæði til að framkvæma e.t.v. árlega endurmat eigna sinna og skulda. Hætt er við, að erfitt reynist að setja um þetta reglur, sem reynast raunhæfar, þar sem raunvirði eigna í atvinnurekstri þarf ekki að fylgja almennum verðbreytingum. Enn fremur vísar ríkisskattstjóri til þess, að það eigi að vera nægilegar heimildir til endurmats í 25. gr. frv. og þurfi ekki lengra að fara. En í þessari 23. gr., sem n. leggur til, að sé felld niður, segir m.a., að hafi orðið almenn og veruleg verðbreyting fasteigna, skipa, véla, áhalda og annarra eigna, sem ætlaðar eru til stöðugrar notkunar í rekstrinum frá því að þeirra var aflað, sé heimilt að endurmeta þær til samræmis við verðbreytingu slíkra eigna, metna á almennan og viðurkenndan mælikvarða. En það var skoðun okkar nm., að það væri ærið erfitt að finna nokkurn almennan og viðurkenndan mælikvarða í þessu efni. Auk þess væri það mjög á reiki með þessar breytingar, ef mönnum væri þetta alveg í sjálfsvald sett, hvort þeir endurmeta eignir sínar jafnvel árlega eftir þessu ákvæði. Að vísu getur það verið alveg rétt, að þegar verðlag breytist og verðbólga ríkir, geti, þegar frá líður, mat á eignum orðið nokkuð ranglátt og þá væri eðlilegra að setja sérstök lagaákvæði, t.d. á 10 ára fresti, um almenna heimild til þess að leiðrétta þetta heldur en það sé á valdi hvers og eins að gera það eiginlega hvenær sem honum sýnist, þannig að þetta væri allt of reikult til þess að hægt væri á þessu að byggja eða treysta á það, að þessari gr. yrði framfylgt í reynd, ef hún yrði samþ. Að öllu þessu athuguðu og sérstaklega með tilvísun til umsagnar ríkisskattstjóra, lagði n. til, að þessi gr. yrði felld niður.

Síðasta brtt. er á þá lund, að lagt er til, að l. öðlist ekki gildi fyrr en 1. jan. 1969, og er þar farið eftir ábendingum frá Verzlunarráði Íslands, enda verður það að teljast eðlilegt, að bókhaldslög taki yfirleitt gildi um áramót, þar sem reikningsárið miðast yfirleitt við áramót og það væri óeðlilegt að krefjast breytinga á bókhaldsskipan fyrirtækja og bókhaldsskyldra aðila á miðju ári, og þess vegna leggur n. til, að l. öðlist ekki gildi fyrr en 1. jan. 1969.

Að lokum vil ég svo undirstrika, að við afgreiðslu þessa máls í n. áskildu einstakir nm. sér rétt til þess að flytja nýjar brtt. við þetta frv. eða fylgja öðrum brtt., er fram kynnu að koma, og kemur þessi fyrirvari fram á nál. á þskj. 442.