17.01.1968
Neðri deild: 50. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (1350)
8. mál, sala Setbergs o.fl.
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. í þessu máli og vil aðeins fara um þetta nokkrum orðum og segja frá afstöðu minni til þess. Í menntmn. urðu mestar umr. um prestssetursjörðina Setberg, eins og fram hefur komið, en Setberg er ríkisjörð og hefur lengi, sjálfsagt um aldaraðir, verið prestssetur, en er það ekki lengur, því að presturinn í þessum sóknum að því er mér skilst, er fluttur í Grundarfjarðarkauptún og mun verða þar til frambúðar, þannig að það er augljóst, að Setberg verður ekki prestssetursjörð á næstunni og sennilega aldrei. Hins vegar er þarna um að ræða allgóða bújörð og það er æskilegt, að jörðin haldist áfram sem slík og þar verði rekinn búskapur. Nú situr þar á jörðinni bóndi, sem verið hefur þar nokkur ár, og eftir þeim beztu upplýsingum, sem ég hef um það, situr hann þessa jörð vel, og hann hefur í huga að kaupa jörðina. Við höfum, þm., árlega haft til meðferðar svipuð mál, þannig að ábúendur jarða óska eftir að kaupa ábúðarjarðir sínar og yfirleitt hefur ekki verið mikil fyrirstaða fyrir því, að alþm. samþykktu slíkt.
Hins vegar hefur annað sjónarmið komið fram hér, einkum hjá einum stjórnmálaflokki. Áður fyrr var það einkum Einar Olgeirsson, sem lengi var forystumaður í Alþb. og Sósfl., sem af prinsipástæðum var andvígur því að selja ríkisjarðir, en ég heyri nú, að hv. 3. þm. Reykv., Magnús Kjartansson, er einnig af prinsipástæðum andvígur því að selja ríkisjarðir og er þetta út af fyrir sig vel skiljanlegt sjónarmið og þarf engum að koma á óvart. Aftur á móti er ég þess sinnis, að ég hef engan rétttrúnað um eignaryfirráð á jörðum og er miklu fremur fylgjandi sjálfsábúð, og ég tel það eðlilegra og heppilegra fyrir þessa jörð, að hún verði rekin af bónda, sem á hana, og þar sem ég þykist hafa spurnir af því, að þar sé um að ræða hæfan og góðan mann, sem muni sitja jörðina vel og hafi setið hana vel, sé ég enga ástæðu til þess að neita honum um að eignast þessa jörð, og á því er afstaða mín til þessa máls byggð. Hitt er auðvitað saknaðarefni út af fyrir sig, að Setberg skuli ekki lengur vera prestssetur og það höfuðból, sem hún hefur verið í þessari sveit um aldaraðir, en við því er ekkert að segja. Það þýðir ekkert að vera að gráta þá þróun hér, heldur bara taka því eins og það er, og ég sé ekki, að það verði jörðinni til neins gagns, þó að ríkið eigi hana áfram og selji hana á leigu, ef hægt er að koma henni í hendur góðs ábúanda, selja hana góðum ábúanda, sem líklegur er til þess að bæta jörðina og hafa þar góðan búskap. Þess vegna er það mín skoðun, eins og fram kemur í nál., að jörðin skuli seld þessum ábúanda, sem þar er nú.
Um hin atriðin skal ég ekki ræða, þessar húseignir, sem hér er um fjallað. Við vorum yfirleitt sammála um það í menntmn., að það væri eðlilegt að fara þannig að eins og frv. gerir ráð fyrir og ég held, að enginn hafi verið því andvígur að leggja það til; að þessar húseignir yrðu seldar. En sem sagt, ég vil undirstrika það, sem raunar kemur hér fram í áliti frá landnámsstjóra, Pálma Einarssyni, þar sem hann segir, að hann telji, að það mundi betur en nokkuð annað tryggja ábúð jarðarinnar, að hún kæmist í sjálfsábúð. Ég er sama sinnis og Pálmi Einarsson um þetta atriði og því legg ég til, að jörðin verði seld núverandi ábúanda með þeim hætti, sem lagt er til af meiri hl. menntmn.