25.01.1968
Efri deild: 46. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (1358)
8. mál, sala Setbergs o.fl.
Dómsmrh. (Jóhann Hafstein):
Herra forseti. Þetta frv. fer fram á heimild til þess að selja Setberg í Eyrarsveit og svo nokkrar fasteignir, sem nánar er gerð grein fyrir í grg. og ég tel þarflaust að víkja frekar að. En þegar málið fór í nefnd í Nd., fór það einhverra hluta vegna til menntmn. Þar varð ekki ágreiningur um málið nema varðandi 1. liðinn, sölu Setbergs, sem er kirkjujörð eða þjóðjörð, og um slík mál hefur, held ég, landbn. d. jafnan fjallað og væri eðlilegast, að það væri annaðhvort landbn. eða fjhn. Ég held, að ég leggi til, að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og landbn. En ég vildi aðeins biðja n. um að hafa það í huga að afgreiða málið ekki endanlega frá sér nema að viðhöfðu sambandi við dómsmrn., því að til mála gæti komið, að n. yrði beðin að bæta heimild til sölu á öðrum fasteignum, sem verið er að fjalla um nú, inn í þetta frv.