04.03.1968
Efri deild: 65. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1489 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)

8. mál, sala Setbergs o.fl.

Frsm. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Landbn. Ed. fékk þetta frv. til athugunar og meðferðar og hefur rætt það á nokkrum fundum, og í nál. á þskj. 333 er að finna flest þau rök, sem við höfðum fram að færa fyrir því að mæla með samþykkt frv. og einnig þeim breyt., sem lagt er til að gera á því. Þó vil ég aðeins fara fáeinum orðum um þær brtt., sem við leggjum til að samþykktar verði. Fyrir n. lá bréf frá dóms- og kirkjumálarn., þar sem rn. fer fram á, að n. flytji brtt. við frv. vegna nokkurra eigna ríkisins, sem óskað er að fá söluheimild fyrir. Það er prestsseturshús á Húsavík, húseignin Melgerði 10 í Kópavogi og prestssetursjörðin Vellir í Svarfaðardal.

Það liggur fyrir, að keypt hefur verið nýtt prestsseturshús á Húsavík, þar sem sá embættisbústaður, sem þar var fyrir, var í því ástandi, að ekki var talið hagkvæmt að kosta til viðgerðar á gamla húsinu, og er því talið rétt að selja þetta hús, og viljum við fallast á það sjónarmið.

Þá er fyrirhugað, að framvegis verði ekki embættisbústaður í Kópavogi. Því er óskað eftir heimild til að selja húseignina Melgerði 10 í Kópavogi, enda hefur sú húseign reynzt talsvert gölluð og viðgerðarkostnaður fyrirsjáanlega mjög mikill, ef ætti að nota hana áfram í þessu skyni.

Í þriðja lagi er svo óskað heimildar til að selja prestssetursjörðina Velli í Svarfaðardal. Þannig stendur á, að byggt hefur verið prestsseturshús á Dalvík og ákveðið, að prestssetrið verði flutt þangað frá Völlum í Svarfaðardal, og því er eðlilegt að hafa heimild til að selja prestssetursjörðina á Völlum, þar sem trúlega yrði nokkuð kostnaðarsamt fyrir eiganda jarðarinnar að koma henni í ábúð, þar sem húsakostur á henni er mjög lélegur. Meiri hl. n. hefur fallizt á þessi sjónarmið og mælir með því, að heimild verði fengin til að selja þessar eignir. En varðandi sölu prestssetursjarðarinnar Valla í Svarfaðardal er þess að geta, að oddviti Svarfaðardalshrepps hefur ritað landbn. Ed. og óskað eftir því, að sú söluheimild, sem fengin yrði vegna Valla í Svarfaðardal, yrði bundin við sölu til Svarfaðardalshrepps. Við höfum litið þannig á, að það væri mjög eðlilegt, að Svarfaðardalshreppur ætti forkaupsrétt að jörðinni, þegar hún yrði boðin til sölu, en á þessu stigi liggur ekki fyrir neitt tilboð frá hreppnum í jörðina né ákveðin ósk um það að fá hana keypta, aðeins ósk um það, að ef hugsað er til að selja jörðina, verði sú sala bundin við það að Svarfaðardalshreppur sé kaupandinn. Kynnti n. sér það, hvernig háttað er ákvæðum laga um forkaupsrétt á jörðum. Um það eru ákvæði í l. nr. 40 1948, en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta, að „sveitarstjórn hvers hrepps skal hafa forkaupsrétt á þeim jörðum innan hreppsins, sem ganga kaupum og sölum og ekki eru opinber eign“.

Það er skýrt fram tekið, að Svarfaðardalshreppur á ekki forkaupsrétt að jörðinni Völlum í Svarfaðardal, en n. þótti rétt, að hreppurinn fengi þann forkaupsrétt og hefur því sett það inn í sína brtt., að heimild til þess að selja prestssetursjörðina Velli í Svarfaðardal yrði veitt, enda hafi Svarfaðardalshreppur forkaupsrétt á jörðinni. Þegar n. gekk frá þessu nál., voru það 3 nm., sem höfðu fyrirvara um samþykkt nál. að því er tók til nokkurra ákveðinna eigna, og munu þeir væntanlega gera grein fyrir afstöðu sinni.

Þá er hér í öðru lagi lagt til, að breytt verði fyrirsögn frv. Segja má, að það sé meira smekksatriði, það er ekki veigamikið, en þykir fara betur, því að eins og fyrirsögn frv. er núna, er hún löng, og ef sama hætti ætti að halda eftir þá breyt., sem n. leggur til, að gerð verði á frv., yrði hún enn lengri. Það virðist vera alger óþarfi. Við leggjum því til, að fyrirsögninni verði breytt þannig að hún verði: Frv. til l. um sölu á prestssetursjörðinni Setberg o.fl.

Ég vil svo leggja til, herra forseti, að frv. verði samþ. með þeim breyt., sem lýst er á þskj. 333.