16.04.1968
Efri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1531 í B-deild Alþingistíðinda. (1400)
185. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Einar Ágústsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins leyfa mér að segja hér örfá orð við 2. umr. þessa máls, breyt. á I. um Húsnæðismálastofun ríkisins. Eins og fram hefur komið og ég held að ég hafi getið um í 1. umr., örstuttri ræðu, sem ég hélt þá, er meginefni frv. það að lækka vísitölugreiðslur af húsnæðislánum. Það þarf ekki að eyða löngu máli að því að lýsa stuðningi við það mál, svo mikið óréttlæti sem það hefur verið fram að þessu, að húsbyggjendur eða lántakar úr byggingarsjóði skuli vera því sem næst þeir einu, sem hafa orðið að búa við þessi lánakjör. Og er það sannarlega ómaklegt, eins og hér hefur komið fram, þar sem hér er um að ræða einmitt þá, sem kannske minnsta getu hafa til þess að standa undir slíkum greiðslum. Alveg sérstaklega var þetta ómaklegt eftir að vísitölugreiðslur á laun voru felldar niður, og ég hygg, að það hafi verið einmitt þannig ástatt, þegar ég a.m.k. gerði þá till. hér í þessari hv. d., að vísitölugreiðslur af lánum yrðu algerlega felldar niður. Vitanlega ber að stefna að því að sleppa öllum slíkum vísitölugreiðslum af þessum byggingarlánum, en ég tek undir það með hv. 4. þm. Sunnl., að menn verða að hugsa sér að ger þetta í áföngum, og við munum ekki gera frekari kröfur heldur en það samkomulag, sem gert var við verkalýðssamtökin eftir síðustu vinnudeilu, hljóðar um, en þetta frv. mun vera í samræmi við það.
En það var út af brtt. á þskj. 610 fyrst og fremst, sem mig langaði til þess að segja örfá orð. Það er verið að leggja til í þessari till. að flýta lánum frá húsnæðismálastjórn, að lána þau byggingarmeisturum í upphafi byggingartímabils eða snemma á tímabilinu, til þess að þeir geti byggt húsin fyrr og lendi síður í fjármagns andræðum, eins og hér hefur verið réttilega lýst, að margir þeirra eiga við að stríða. Þessi krafa, hefur verið nokkuð lengi á döfinni hjá byggingarmeisturum. Þeir hafa, að ég hygg, frá því að framkvæmdirnar við Breiðholt voru ákveðnar, verið með hugmyndir um það, að þeir ættu siðferðilega a.m.k. skulum við segja, rétt á því að njóta þessarar fyrirgreiðslu og sitja við sama borð og þeir, sem byggja af opinberri hálfu, og sýna, hvað þeir gætu þeirri samkeppni. Ég verð að segja það fyrir mitt leyti, að mér finnst þessi hugsun ekki röng. Ég hef trú á því, að þessi samkeppni milli framkvæmda á vegum hins opinbera og framkvæmda, sem einstaklingar hafa með höndum, geti átt fullan rétt á sér og orðið til þess að lækka byggingarkostnað, sem mjög mikil þörf er á.
Ég hef oft gagnrýnt það hér úr þessum ræðustól á hv. Alþ., að það hafi verið of lítið gert af því af hálfu hins opinbera að framkvæma. III. kafla laga um húsnæðismálastjórn, þann kaflann, sem fjallar um lækkun byggingarkostnaðar, og þann kaflann, sem einmitt að mínum dómi ætti að leggja höfuðáherzluna á að framkvæma. Og mig minnir, að í sambandi við mál, sem ég flutti hér á þessu þingi um aukna aðstoð við byggingarsamvinnufélög, hafi ég einmitt talað um þessa leið sem hugsanlega til þess að lækka byggingarkostnaðinn og hafi þá viljað hafa byggingarsamvinnufélögin með og gera þau starfhæf á þann hátt að tryggja þeim sölu á ríkistryggðum skuldabréfum, sem er auðvitað meginforsendan fyrir því, að byggingarsamvinnufélögin hafi yfir fjármagni að ráða og geti staðizt samkeppnina vegna þess. Nú er mér ekki alveg ljóst, hvaða hlut byggingarsamvinnufélögum er ætlað að eiga að lánum úr byggingarsjóði eftir þessari brtt. Það er að vísu talað hér um byggingarmeistara og byggingarfyrirtæki. Má vera, að þetta síðara orð tryggi það, að byggingarsamvinnufélögin hafi þarna aðild að eða fái lán jafnskjótt og hér er gert ráð fyrir, að byggingarmeistarar fái þau. Ef svo er, tel ég það vel farið.
Hæstv. félmrh. sagði, að þessi till. væri e.t.v. þannig orðuð, að það mætti koma við á henni einhverjum breytingum og leiðréttingum. Ég held, að það sé full þörf á því að gera það, en satt að segja er mér nú ekki ljóst, hvenær á að gera það, eins og þinghaldi nú er háttað, því að nú eru næturfundir alltíðir og of tíðir. En ég vil gera það að till. minni og taka undir þá till. hæstv. félmrh., að þessari till., svo og annarri till., sem komið hefur hér fram og..ég mun víkja örlítið að síðar, verði á ný vísað til hv. heilbr.- og félmn. og hún fái tóm til þess að semja hana eins og flestir geta fallizt á og þannig, að engum misskilningi valdi, hvað hér er um að tefla.
En það er náttúrlega ekki nóg að samþykkja það að fleiri og fleiri aðilar skuli eiga rétt á lánum úr byggingarsjóði, þegar fyrir liggur, að hann er langt á eftir með allar greiðslur, og þess vegna verð ég að taka undir það, sem hér hefur verið sagt, að ég hygg af hv. 4. þm. Sunnl., að þetta fyrirkomulag muni, ef ekki kemur nýtt fjármagn til, þrengja kost hins almenna húsbyggjanda, þess, sem hefur fengið lán eða á von á láni úr Byggingarsjóði ríkisins og hefur beðið eftir því, sumir nú nokkuð lengi.
Það getur verið, að það sé rétt, sem hæstv. félmrh. sagði áðan, að þegar á líður, þegar þetta fyrirkomulag er búið að vera í gildi í nokkur ár, færist byggingarfyrirkomulagið meira og meira yfir í það horf, að langflestar íbúðir verði byggðar annaðhvort á vegum hins opinbera eða á vegum samtaka byggingarmeistara eða byggingarfyrirtækja og á þann hátt komi allt það fjármagn, sem húsnæðismálastjórn eða byggingarsjóður hefur yfir að ráða, hinum almenna húsbyggjanda að fullu gagni. En þetta bara tekur tíma og meðan verið er að færa málið yfir í þetta horf, eru aðrir einstaklingar, sem komnir eru af stað og bíða eftir lánum, og það er enginn vafi á því, að þetta háa tillag, sem framkvæmdanefndin í Breiðholti hefur fengið úr byggingarsjóði, hefur orðið til þess, að aðrir, sem eru að byggja og voru byrjaðir, hafa orðið að bíða miklu lengur heldur en annars mundi verið hafa. Þessu er ekki hægt að neita, ekki með nokkru móti. Það þýðir ekkert að benda á það, þó að það kunni að verða í framtíðinni þannig, að flest hús verði byggð á vegum slíkra aðila, það er vissulega rétt, með þeirri hugsun, sem í þessari brtt. á þskj. 610 felst, þá er það fyrir þá, sem annars mundu njóta lána hjá húsnæðismálastofnuninni. En það hlýtur að rýra hlut þeirra, sem eru byrjaðir og bíða núna. Þess vegna vil ég mjög eindregið taka undir þá skriflegu brtt., sem hv. 6. þm. Sunnl. hefur borið hér fram og fjallar um það, að þegar sérstakar lánveitingar — eða lánveitingar með sérstökum hætti eru látnar fara fram, sé ríkissjóður skyldugur samkv. lögum til þess að útvega byggingarsjóði aukið fjármagn. Sú krafa hefur oft komið fram að því er varðar framkvæmdirnar í Breiðholti, m.a. að ég hygg við umr. um fsp., sem ég leyfði mér að flytja ásamt fleirum um framkvæmd lána hjá byggingarsjóðnum, að ríkissjóður stæði við það loforð, sem hann gaf verkalýðsfélögunum, þegar byrjað var á framkvæmdunum í Breiðholti, og samningurinn um þær var einn liður í lausn vinnudeilu, að sérstakt fjármagn kæmi til. Það mun vera rétt, að atvinnuleysistryggingasjóður lánaði á s.l. ári 30 millj. til þess að fjármagna þessar framkvæmdir. Það er vafalaust rétt, sem hæstv. félmrh. upplýsir, að atvinnuleysistryggingasjóður ætli sér eða muni lána aðrar 30 millj. á þessu ári til þess að standa undir þessum framkvæmdum, en mig minnir fastlega, að samkv. þeim upplýsingum, sem hæstv. ráðh. gaf sjálfur í febrúarmánuði — ég man ekki alveg hvaða dag það var — sé þetta engan veginn nóg, jafnvel þótt þessar seinni 30 millj. séu komnar til, til þess að byggingarsjóður hefði fengið til baka það fjármagn, sem hann hefur látið umfram það, sem aðrir húsbyggjendur mundu fá, ef þeir hefðu tekið sig saman og byggt þessar blokkir. Þess vegna finnst mér það vera alveg sjálfsögð krafa, að hæstv. ríkisstj. hlutist til um, að þetta fjármagn fáist. Og ég treysti því, að hæstv. ráðh. vilji fallast á það, enda mótmælti hann því ekki hér í ræðu sinni áðan. Hann sagði að vísu, að þessi till. ætti betur heima í sambandi við einhverja allsherjar endurskoðun, sem hæstv. ríkisstj. er alltaf að láta fara fram á þessum málum. Ég minnist þess t.d. og mig langar þá að nota tækifærið til þess að spyrja um það, að áðurnefnt frv. frá mér um byggingarsamvinnufélög var afgreitt til hæstv. ríkisstj. með rökst. dagskrá þann 1. febr. s.l. og rökstuðningur þeirrar dagskrár var, að þessi mál væru öll í athugun hjá hæstv. ríkisstj. og þess vegna væri ótímabært að samþykkja það frv., sem þar var um að ræða. Það er náttúrlega gott að flana ekki að neinu. Ég er alveg samþykkur því, og það mætti athuga málin betur, sum, sem hér eru send til afgreiðslu, eins og t.d. þau mál, sem upplýst er, að ekki stoppi heilan dag í Stjórnarráðinu. Það er ekki mikil athugun, sem slík mál fá þar, ef að líkum lætur. En svo eru aftur önnur mál, sem eru kannske fullt eins aðkallandi, sem eru allt of lengi í Stjórnarráðinu. Væri ekki hægt að hafa eitthvert meðalhóf á þessu?
Um húsnæðismálin má náttúrlega endalaust ræða og hefur raunar oft verið gert hér. Ég skal ekki að þessu sinni lengja þessar umr. Fundartíminn er sjálfsagt að verða liðinn og menn vilja gjarnan fara að afgreiða þetta mál. Ég geri það að till. minni, að þessum brtt. tveim, sem fram hafa verið bornar, bæði á þskj. 610 og eins hinni skrifl. brtt., sem síðar var fram borin, verði á ný vísað til hv. heilbr.- og félmn., svo að þær fái þar athugun og geti orðið þannig orðaðar, að ekki valdi misskilningi.