16.04.1968
Efri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1535 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)
185. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Ég get fyrir hönd okkar flm. till. á þskj. 610, sem hér hefur verið allmikið rædd, algjörlega fallizt á þá breytingu, sem fram kemur í till. hæstv. félmrh., sem hann hefur nú nýlega lýst, og tel, að með þessari breyt. verði greinin í heild skýrari og nái betur því markmiði, sem hún stefndi að. En fyrir utan þetta eru örfá atriði, sem ég vildi gera hér að umtalsefni í sambandi við þær umræður, sem orðið hafa um þetta mál og sérstaklega áðurgreinda till., brtt. á þskj. 610.
Mig minnir, að það væri hv. 6. þm.,Sunnl., sem taldi, að í þessari till. væri sérstaklega verið að bera fyrir brjósti byggingarmeistara. Ég hygg, að þetta sé á misskilningi byggt. Það má segja, að hagsmunir byggingarmeistara af þessari till. felist kannske fyrst og fremst í því, að þeir fái aukna a vinnu, en ég held, að þegar þetta er skoðað niður í kjölinn, sé þessi till. fyrst og fremst til hagsbóta fyrir þá einstaklinga, sem koma til með að kaupa íbúðirnar af þessum byggingarmeisturum. Í fyrsta lagi á þann hátt, að byggingartíminn verður skemmri vegna aukinnar lánafyrirgreiðslu og í öðru lagi vegna þess, að byggingarmeistarinn getur ekki selt þetta á frjálsu verði, heldur verður háður samþykki húsnæðismálastjórnar.
Ég get vel skilið þá hv. andmælendur þessarar till., sem hafa áhyggjur af því, að samþykkt hennar mundi leiða til þess, að aðrir byggingaraðilar eða einstaklingar, sem væru að byggja, mundu e.t.v. verða frekar útundan, ef þarna ætti að fara að veita nýja tegund lána, og það er auðvitað alveg ljóst, að því meiri skyldur, sem lagðar eru á húsnæðismálastjórn, og þeim mun fleiri aðilar, sem eiga rétt á lánum þaðan, því meira fé verður auðvitað að útvega Byggingarsjóði ríkisins, þannig að hægt sé að verulegu leyti að standa við fyrirheit og skuldbindingar, sem sett eru í lög. Undir það get ég alveg tekið. Hitt verðum við að líta á, að í þessari till. felst fyrst og fremst heimildarákvæði, og það er auðvitað matsatriði, þegar ekki er nægilegt fé fyrir hendi til þess að veita öllum lán á réttum tíma, eins og reyndar er ástatt nú og hefur verið nú í nokkra mánuði, þá er auðvitað alltaf matsatriði, hverjum á að veita, hver á sitja fyrir og hver á að bíða. Og það má reyndar segja, að þegar lán eru veitt einhverjum hópi einstaklinga, sem er að byggja, þá verði aðrir að bíða lengur. En lán, sem væri veitt á þann tiltekna hátt til byggingaraðila, byggingarmeistara eða byggingarsamtaka, sem ætluðu að endurselja íbúðirnar, yrði vitanlega til verulegra hagsbóta fyrir þann hóp, sem kaupir þessar íbúðir, þó að það yrði kannske til óhagræðis fyrir aðra, sem yrðu þá að bíða lengur í staðinn. En þó að það sé alveg ljóst, að það verður að gera gangskör að því að útvega byggingarsjóði aukið fé, þá finnst mér samt felast svo mörg mikilvæg nýmæli í þessari brtt., að ég held, að menn eigi ekki að láta sér vaxa í augum eða gera of mikið úr þessum annmarka á henni, að fé sé ekki fyrir hendi eins og stendur. Það ætti ekki að sleppa þessu tækifæri til þess að koma þessari till. í gegn og þeim mikilvægu nýmælum, sem í henni felast.
Það er kannske of mikið að segja, að það sé rangt, en það er a.m.k. mjög vafasöm fullyrðing hjá hv. andmælanda að segja, að byggingarmeistarar eða þeir, sem nytu þessara sérstöku lána, gætu selt íbúðirnar hverjum sem hafa vill, því að það er þó tekið fram í till., að ekki megi selja neinum öðrum en þeim, sem fullnægja úthlutunarskilmálum húsnæðismálastjórnar. Það er tekið fram í till. Og það er eitt, sem menn mega heldur ekki líta fram hjá, þegar þessi till. er rædd og það er þetta: Nú rísa kannske upp margir byggingaraðilar, nokkrir stórir aðilar, og vilja fá lán samkv. þessari grein, ef þetta verður lögfest. Það getur bæði verið hér í Rvík, Hafnarfirði, Kópavogi og Akureyri og öðrum þéttbýlisstöðum. Væntanlega hefur húsnæðismálastjórn ekki peninga til að lána þessum aðilum öllum, en hún getur látið þá sitja fyrir, sem vilja byggja ódýrast. Þeir koma og leggja sínar teikningar fyrir og segja: Við skulum byggja íbúðina og selja hana á þessu verði, miðað við byggingarvísitöluna í dag, og áskiljum okkur rétt til að hækka, ef byggingarvísitalan hækkar. Það er út af fyrir sig ekkert óeðlilegt eða þarf ekki að vera það. En þarna gæti húsnæðismálastjórn látið þá sitja fyrir, sem byggja ódýrast, og þarna gæti hún komið á, ég vil segja, heilbrigðri samkeppni, annars vegar innbyrðis milli þessara aðila, hins vegar samkeppni þessara aðila í heild við byggingaráætlunina í Breiðholti og aðrar slíkar framkvæmdir, sem eru unnar á vegum hins opinbera og þess vegna má ekki horfa fram hjá þessum mikilvægu atriðum.
Þá held ég líka, að það sé of mikið sagt, að með þessu sé verið að brjóta niður lánakerfið, þetta sé einhver grundvallarbreyting að lána til slíkra aðila. En það er þegar í lögum um Húsnæðismálastjórn ríkisins, að hægt sé að lána á þann hátt, eða ef ekki á þennan hátt, þá skulum við segja á hliðstæðan hátt. Svo segir í lögunum, að ef byggingarfélag sé lántakandi, þá skuli skipt láninu á hlutaðeigandi íbúðir að byggingu lokinni, eftir ákvörðun húsnæðismálastjórnar, og það segir líka í núgildandi lögum, að sé um að ræða byggingarfélag, sem nýtur ríkisábyrgðar, en það eru byggingarsamvinnufélögin, þá geti húsnæðismálastjórn veitt því bráðabirgðalán gegn ríkisábyrgð af fé byggingasjóðs, enda verði láninu skipt að byggingu lokinni á eigendur hlutaðeigandi íbúða gegn 1. veðrétti, og fellur þá ríkisábyrgð niður, þannig að hér er í raun og veru verið að fara inn á svipaða braut og þegar hefur verið mörkuð með byggingarsamvinnufélögunum. Ég sé reyndar ekkert því til fyrirstöðu, að þar sem segir í till., „byggingarmeistarar og byggingarfyrirtæki,“ þá sé hægt að túlka það nokkuð víðtækt.
Ég vil svo að lokum undirstrika það, að við, sem flytjum þessa till. og stöndum að henni, við föllumst á þá brtt., sem hæstv. félmrh. hefur lagt fram, enda er það sannast mála, að þessi tilmæli og álitsgerð þessarar n., sem ég vitnaði til í minni fyrri ræðu, hárust okkur með stuttum fyrirvara, og ég get fúslega viðurkennt, að það hefði verið æskilegt að hafa lengri tíma til þess að semja þessa till., svo að hún yrði vel úr garði gerð.