16.04.1968
Efri deild: 92. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1406)

185. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson ):

Herra forseti. Við 2. umr. málsins var á það bent undir lokin, að sú brtt., sem ég bar fram og samþ. var við þessa nýju gr. frv., sem nú er orðin 3. gr., væri ekki rétt vel orðuð. Ég hef við athugun fallizt á, að svo er. Það er víst dálítið klúðurslegt, þó að lesa hefði mátt þar í málið með velvilja, en ég tel rétt, áður en málið fer úr d., að bera hér fram aðra brtt., sem inniheldur nákvæmlega það sama og hin gr. gerir nú, en ég tel, að fari betur í máli og með leyfi hæstv. forseta vil ég hér með lesa hana upp. En gr. yrði þá svo:

„Húsnæðismálastjórn er heimilt, á meðan á byggingartíma stendur, að veita lán til byggingarmeistara og byggingarfyrirtækja, er byggja íbúðir, sem fyrirhugað er að selja fullgerðar til einstaklinga, sem fullnægja útlánareglum húsnæðismálastjórnar. Lán þessi skiptist síðan milli væntanlegra íbúðarkaupenda.

Það er skilyrði fyrir slíkum lánum, að íbúðirnar verði eigi seldar, nema húsnæðismálastjórn samþykki söluverð þeirra fullgerðra. Við verðlagningu íbúðanna skal höfð hliðsjón af byggingarvísitölu.“