09.04.1968
Efri deild: 85. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1540 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)

177. mál, verslun með ópíum o.fl.

Frsm. (Jón Þorsteinsson):

Herra forseti. Í 4. gr. l. um tilbúning og verzlun með ópíum o.fl. frá 20. júní 1923 segir, að dómsmrn. geti úrskurðað, að ákvæði l. þessara gildi um öll ný efni, sem afleidd eru af morfíni, kókaíni eða söltum þeirra, eða hvert annað ópíumsalkaloid, enda hafi það sannazt við vísindalega rannsókn, að misbrúka megi þau á líkan hátt eða að þau hafi lík skaðvænleg áhrif sem efni þau, er nefnd eru í 2. gr.

Með þessu frv., sem hér liggur fyrir til umr., er ráðgert að breyta áðurgreindri 4. gr. l. á þann hátt að rýmka hana, og hljóðar 4. gr. l. samkv. frv. á þá lund, að „dómsmrn. getur úrskurðað, að ákvæði laga þessara gildi um öll efni, hvort sem þau eru afleidd af morfíni, kókaíni eða söltum þeirra eða ekki, enda hafi sannazt við vísindalega rannsókn, að misnota megi þau á líkan hátt o. s. frv.“

Ástæðan til þess, að þetta frv. er flutt, er sú, að á síðari árum hefur í nágrannalöndum okkar aukizt notkun ýmissa efna, sem ekki verða talin til lyfja, en geta valdið ávana og fíkn líkt og þekkist við notkun eða misnotkun efna eins og morfíns og kókaíns. Misnotkun þessara nýju efna er að vísu ekki þekkt hér á landi, en eins og í grg. frv. segir, skiptir mestu máli, að gera megi sérhverjar tiltækar ráðstafanir til varnar í tíma og er það tilgangur frv. Þessu frv. var vísað til heilbr.- og félmn., og mælir n. einróma með, að frv. verði samþ., svo sem fram kemur í nál. á þskj. 548.