26.03.1968
Efri deild: 75. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1542 í B-deild Alþingistíðinda. (1439)

170. mál, eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum

Félmrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Meginmarkmið þessa frv., sem hér er nú lagt fyrir Alþ., er sameining tveggja stofnana, Fiskmats ríkisins og Ferskfiskeftirlitsins, í eina stofnun, sem nefnd verði Fiskmat ríkisins. Með þessari sameiningu er ætlunin, að skipulag þessara mála verði betra. Sömu eða svipuð störf eru unnin í báðum þessum stofnunum og er talið, að eðli málsins samkv. sé eðlilegra og æskilegra, að þau störf séu unnin í einni og sömu stofnun. Við sameininguna nýtast betur starfskraftar beggja stofnananna, meira samstarf næst á milli einstakra aðila og eru af þeim sökum bundnar vonir um nokkurn sparnað við þessa sameiningu. Þróun fiskmats og eftirlits á Íslandi er ýtarlega rakin í grg. þeirri, sem frv. fylgir, og er óþarft að rekja þá sögu út af fyrir sig hér.

Ef frv. þetta verður að l., koma þau í stað heildarlaga um fiskmat, meðferð, verkun og útflutning á fiski, sem sett voru árið 1948, og laga um ferskfiskeftirlit, sem sett voru árið 1960. Lög þessi hafa reynzt vel miðað við það skipulag, sem þau gera ráð fyrir, og eru mörg eldri ákvæði tekin efnislega óbreytt í hið nýja frv. Eins og áður segir, er meginmarkmið þessa lagafrv. skipulagsbreyting. Lög um ferskfiskeftirlit voru sett á árinu 1960, eftir að ferskfisknefnd hafði unnið að undirbúningi ferskfiskeftirlitsins. Ekki voru menn þá sammála um, að ferskfiskeftirlitið yrði lagt undir fiskmatsstjóra, þótt sumir teldu það eðlilega lausn málsins. Það varð því að ráði, að Ferskfiskeftirlitið var gert að sérstakri stofnun, undir yfirstjórn fiskmatsráðs. Ekki var þó til þess ætlazt, að þessi lausn yrði til frambúðar, og var gert ráð fyrir því í l. um ferskfiskeftirlit, að fiskmatsráð endurskoðaði lög og reglur um fiskmat. Á næstu árum aflaði ráðið upplýsinga og gagna um lög og reglur varðandi eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum í nágrannalöndum okkar, eins og fram kemur í grg. frv.

Eftir þá gagnasöfnun samdi ráðið frv. til l. um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum, sem afhent var sjútvmrh. í árslok 1965. Till. fiskmatsráðs hafa verið til athugunar í rn., og hafa till. verið ræddar við fulltrúa hinna ýmsu framleiðslugreina, svo og þá starfsmenn hins opinbera, er málið varðar. Í þessum viðræðum kom í Ijós, að hinir ýmsu aðilar höfðu mjög ólíkar skoðanir á því, hvernig eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum skyldi skipulagt og framkvæmt. Frv. það, sem hér er lagt fram, er að meginstofni til eins og fiskmatsráð gekk frá því upphaflega. Þó hafa verið gerðar á því nokkrar breytingar og hefur verið reynt, eftir því sem frekast er unnt, að samræma hin ólíku sjónarmið, sem fram hafa komið. Fram hefur farið athugun á því, að hve miklu leyti framkvæmd frv. þessa, ef að lögum yrði, gæti haft sparnað í för með sér fyrir ríkissjóð ef framkvæmdin tækist vel. Frv., eins og núgildandi lög, mótar aðeins í stórum dráttum hið nýja skipulag, en leggur á herðar framkvæmdavaldsins að móta framkvæmdina í smærri atriðum. Mikið veltur því á, hvernig framkvæmdin tekst í þessum málum sem og flestum öðrum. Í þessu sambandi er sérstaklega vert að minnast á, að á Bandaríkjaþingi hefur verið lagt fram frv. til l. um eftirlit með fiski og fiskafurðum, sem flutt er inn til Bandaríkjanna eða framleitt þar. Líklegt er talið, að frv. þetta verði að l. Gerir frv. ráð fyrir miklu strangari kröfum og eftirliti með þessum afurðum en hingað til hefur verið. Ekki verður séð á þessu stigi málsins, hvaða ráðstafanir við Íslendingar þurfum að gera til að standast þessar kröfur, en þó er vitað, að ákveðnar ráðstafanir eru óhjákvæmilegar og munu þær hafa nokkurn kostnað í för með sér. Hér er alvörumál á ferðinni, mál, sem við verðum að fylgjast gaumgæfilega með og fylgja fast eftir með þeim aðgerðum, sem nauðsynlegar teljast.

Eins og áður segir, er meginmarkmið þessa lagafrv. sameining Fiskmats ríkisins og Ferskfiskeftirlitsins í eina stofnun, er nefnd verði Fiskmat ríkisins. Hin nýja stofnun skiptist í ferskfisk- og freðfiskdeild annars vegar og saltfisk- og skreiðardeild hins vegar. Er gert ráð fyrir, að ferskfiskeftirlitið og sá hluti af starfsemi Fiskmats ríkisins, sem lýtur að eftirliti og mati á freðfiski, renni saman í eina heild, er nefnist ferskfisk- og freðfiskdeild. Verkaskipting milli þessara tveggja aðila hefur frá byrjun verið tilviljunarkennd, enda erfitt að skilja þar á milli á rökréttan hátt, jafnnátengd og störfin eru. Er það því talið heppilegt, að störf þessi séu í einni og sömu deild. Með því móti munu starfskraftar nýtast betur og minni hætta ætti að verða á árekstrum. Enn fremur er gert ráð fyrir því, að saltfisk- og skreiðarmat verði í einni og sömu deild. Mat á saltfiski og skreið er að mestu framkvæmt af sömu fiskmatsmönnum og hentar það vel, þar sem saltfiskmat fer að mestu fram mánuðina marz-júlí, en skreiðarmatið einkum mánuðina september-febrúar. Með því að skipa saltfisk- og skreiðarmati í eina deild, verður að ætla, að starfskraftar innan deildarinnar nýtist vel og störf verði samstillt. Verkefni þessara tveggja deilda verða svipuð eða sömu og þessar stofnanir hafa nú á hendi. Þó skal sérstaklega tekið fram, að ráðh. hefur óskorað vald til ákvörðunar um framkvæmd gæða og stærðarflokkunar á ferskum og frystum fiski. Fer það eftir aðstæðum á hverjum tíma, að hve miklu leyti flokkun er framkvæmd, hvaða fyrirkomulag telst heppilegt í þessum efnum eða hvert framlag ríkið leggur í té. Nægir í þessu sambandi að vísa til þess, sem áður er rakið um breytingar þær, sem í aðsigi eru á kröfum Bandaríkjanna til freðfiskeftirlits.

Frv. gerir ákveðnari og skýrari grein fyrir deildaskiptingu, stjórn og starfsliði Fiskmats ríkisins en hin eldri lög gerðu. Auk forstjórans er þar fiskmatsstjóri og áfram er gert ráð fyrir tveimur deildarstjórum, er veita forstöðu hvor sinni deild. Þessir þrír forstöðumenn fiskmatsins koma í stað eftirtalinna manna, sem starfa samkv. gildandi lögum, en stöður þessara manna eru lagðar niður: fiskmatsstjóra, þriggja yfirfiskmatsmanna, sem í samningi um laun ríkisstarfsmanna nefnast yfirfiskmatsmenn með sérþekkingu á skreið, saltfiski og freðfiski, svo og tveggja framkvæmdastjóra ferskfiskeftirlitsins. Auk þess sem þannig er gert ráð fyrir fækkun forstöðumanna, er einnig gert ráð fyrir, að núv. skrifstofa Fiskmats ríkisins yfirtaki störf þeirrar skrifstofu, er rekin hefur verið á vegum Ferskfiskeftirlitsins. Er þannig gert ráð fyrir, að húsakostur sparist og að starfslið á skrifstofu verði minna en áður. Kostnaður við yfirstjórn og skrifstofuhald ætti þannig að minnka. Yfirfiskmatsmenn skulu vera svo margir sem þörf krefur og ákveðið er í fjárl. hverju sinni, en þeir eru fulltrúar fiskmatsstjóra og deildarstjóra í einstökum landshlutum og hafa umsjón með eftirliti og mati í umdæmi sínu. Gildandi lög ákveða, að yfirfiskmatsmenn skuli vera 8 alls og hvar þeir skuli vera staðsettir. Þessu lagaboði hefur ekki verið framfylgt bókstaflega. Aukin útgjöld, fjölbreyttari útflutningur hefur krafizt fjölgunar yfirfiskmatsmanna. Það þykir því ekki æskilegt eða heppilegt að binda fjölda yfirfiskmatsmanna í lögum.

Í frv. er gert ráð fyrir, að yfirfiskmatsmenn geti annazt fiskmat og eftirlit fyrir tvær deildir eða fleiri, og enn fremur getur fiskmatsstjóri kvatt yfirfiskmatsmenn til starfa utan umdæmis þeirra, þegar sérstaklega stendur á og þörf krefur. Með bættu skipulagi fiskmatsins verður að vænta, að starfskraftar yfirfiskmatsmanna nýtist betur en verið hefur. Um réttarstöðu matsmanna skal sagt, að staða þeirra verður svipuð og söm og verið hefur. Með sameiningunni verður þó að vænta, að starfskraftar þeirra notist einnig mun betur en áður og minna þurfi að kosta til starfsbindingar. Það er t.d. ekkert því til fyrirstöðu, að sömu matsmenn annist mat á saltfiski, skreið og ferskfiski, sem ekki hefur tíðkazt hingað til. Staða Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins gagnvart Fiskmati ríkisins verður svipuð og verið hefur. Þó má ætla, að áhrif hennar á starfsemi Fiskmatsins verði meiri. Leita skal álits rannsóknastofnunarinnar, áður en settar eru reglugerðir um framkvæmd laganna. Rannsóknastofnunin hefur enn fremur mikilvægu hlutverki að gegna í ráðgjafarnefnd við Fiskmat ríkisins, sem ráðh. getur skipað. Þess skal getið í þessu sambandi, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins hefur eftirlit með niðursuðuvörum og meðalalýsi eins og verið hefur. Þessi störf byggjast að verulegu leyti á rannsóknum og hefur Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins í framkvæmd annast þær. Felld eru úr gildi lög nr. 42 frá 1933 um vinnslu, verkun og mat meðalalýsis, sem orðin eru úrelt og nánast dauður bókstafur.

Óþarft er að rekja hér einstök ákvæði frv., en mörg þeirra eru nær efnislega samhljóða gildandi lagaákvæðum. Má þar til nefna 2., 10. og 15. gr. frv. 16. gr. er nýmæli, en þar segir, að sýnishorn af öðrum sjávarafurðum en beinlínis heyra undir Fiskmat ríkisins, eins og t.d. niðursuðuvörum, fiskmjöli og lýsi, skuli taka, þegar nauðsyn ber til, og skal sýnishornatakan framkvæmd samkv. fyrirmælum fiskmatsstjóra. Öllum, sem til þekkja, er ljóst, að lengi hefur vantað löggiltan aðila, sem gæti tekið sýnishorn af útfluttum sjávarafurðum og hefur það verið til mikils óhagræðis og verulegs tjóns fyrir sjávarútveginn. Vegna dreifbýlisins er erfitt að koma á sérstakri þjónustu við töku sýnishorna, nema með ærnum tilkostnaði. Fiskmat ríkisins mun hins vegar hafa starfsmenn á flestum höfnum landsins, og er það án efa heppilegasti aðilinn til þess að taka þetta starf að sér.

3. gr. frv. fjallar um útgáfu reglugerða og framkvæmd þeirra. Í gildandi reglugerðum og fyrirmælum er kveðið á um nær öll þau atriði, sem gr. mælir fyrir um, að skipa skuli með reglugerð. Halda þær reglugerðir gildi sínu eftir því, sem við á, þar til nýjar hafa verið settar. Greinin gefur enn fremur fiskmatsstjóra heimild til útgáfu fyrirmæla um framkvæmdaatriði, ef þurfa þykir og ráðh. samþykkir.

Í framhaldi af þessu má minna á, að í 17. gr. er gert ráð fyrir, að hægt sé að skipa ráðgjafanefnd, ef hagkvæmt þykir. Skal sú n. skipuð fulltrúum hinna ýmsu greina sjávarútvegsins, svo og fulltrúa frá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Við gildistöku þessara l. hættir fiskmatsráð störfum og þykir þá e.t.v. æskilegt, að starfandi sé n., sem væri tengiliður Fiskmats ríkisins og sjávarútvegsins. N. þessi yrði til ráðuneytis bæði að því er varðar framkvæmdaatriði og til að koma á framfæri æskilegum nýmælum.

Af afnámi l. nr. 42 frá 1960 um ferskfiskeftirlit leiðir, að sjóðurinn, sem stofnaður var með 7. gr. þeirra l. til að standa straum af framkvæmd ferskfiskeftirlitsins, fellur niður. Tekjur sjóðsins hafa verið 1 1/2% af fob-andvirði útfluttra sjávarafurða. Svo sem öllum er ljóst, verður á engan hátt talið fært að leggja þennan kostnað á ríkissjóð. Eðlilegt er, að útflutningsframleiðslan beri þennan kostnað, enda er starfsemi ferskfiskeftirlitsins fyrst og fremst í þágu útgerðar og fiskvinnslu, einkum til að tryggja hagsmuni þessara aðila innbyrðis. Er því gert ráð fyrir óbreyttu útflutningsgjaldi til að standa straum af kostnaði við framkvæmd ferskfiskeftirlits. Á s.l. ári varð kostnaður við framkvæmd ferskfiskeftirlits meiri en sem nam tekjum af gjaldinu. Endurtaki sú saga sig, er gert ráð fyrir, að ríkissjóður hlaupi undir bagga.

Í síðustu gr. frv. segir, að l. öðlist gildi 1. júli 1968. Nauðsynlegt er, að lög þessi öðlist gildi sem fyrst, til þess að hugsanlegur sparnaður komi svo fljótt til framkvæmda sem kostur er. Lögin eru það umfangsmikil, að hagkvæmt virðist, að þau taki gildi á fyrirfram ráðgerðu tímamarki. Gerir það allan undirbúning að framkvæmd þeirra auðveldari.

Að lokum skal sérstaklega tekið fram, að tilgangur opinbers mats og eftirlits á fiski og fiskafurðum er einkum sá að tryggja eftir föngum, að flutt sé út vara, sem stenzt tilskildar gæðakröfur. Eftirlit eða mat felur ekki í sér neina lagalega tryggingu fyrir gæðum vörunnar. Hin fjárhagslega og viðskiptalega ábyrgð er eftir sem áður hjá framleiðanda eða útflytjanda, svo sem verið hefur.

Ég tel ekki þörf á því, herra forseti, að hafa um frv. á þessu stigi fleiri orð, en legg áherzlu á það, sem ég hélt fram í upphafi máls míns, að nauðsynlegt er að mínu áliti, að frv. nái fram að ganga á yfirstandandi þingi, og þar sem verulega er áliðið þingtímans, mundi ég vilja beina þeirri ósk til hv. n., sem málið fær til meðferðar, að hún hraði svo störfum sem kostur er, enda tel ég, að að öllum undirbúningi málsins, sem hefur tekið langan tíma, hafi verið svo vel unnið, að ekki þurfi langrar athugunar við a.m.k. ekki meðal utanþingsmanna. Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.