19.04.1968
Neðri deild: 102. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1552 í B-deild Alþingistíðinda. (1459)
170. mál, eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum
Frsm. (Birgir Finnsson):
Herra forseti. Frv. því til 1. um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum, sem hér liggur fyrir til umr., var vísað til sjútvn. þessarar hv. d. á síðasta degi fyrir páskahléið, og hefur því eingöngu gefizt tóm til að athuga frv. á þeim dögum, sem liðnir eru síðan páskahléi lauk. Frv. hafði áður verið til meðferðar í Ed., sem hafði gert nokkrar breytingar á upphaflega frv. Það er auðsætt af grg. frv., að það hefur verið lengi í undirbúningi, en þrátt fyrir það kemur fram í umsögnum, sem Ed. bárust, — sem reyndar hafa borizt til sjútvn. þessarar hv. d. líka, — að skoðanir eru skiptar um ýmis atriði frv. Sjútvn. hefði kosið að ræða efni frv. ýtarlegar við ýmsa aðila, sem gert hafa aths. við það og komið með ábendingar um breytingar, en til þess hefur ekki gefizt tími. N. kvaddi aðeins á sinn fund þá dr. Þórð Þorbjarnarson, formann fiskmatsráðs, og Sigurð B. Haraldsson, efnaverkfræðing, sem er annar af tveim framkvæmdastjórum Ferskfiskeftirlitsins, en ég, sem formaður sjútvn., ræddi þetta mál við Bergstein Á. Bergsteinsson fiskmatsstjóra og þá aðallega þær brtt., sem n. flytur á sérstöku þskj. Það er hins vegar lögð mikil áherzla á, að þetta frv. nái fram að ganga á þessu þingi, aðallega af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess, að þörf er talin á að endurskoða ýmsar reglugerðir í sambandi við fiskmatið, og þessi lög heimila að sjálfsögðu slíka endurskoðun, og í öðru lagi vegna þess, að gert er ráð fyrir, að reynt verði að koma við nokkrum sparnaði í þessari starfsemi, sparnaði, sem talið hefur verið, að gæti numið 4—6 millj. kr. Þessum sparnaði á að ná fram með því að sameina undir eina stjórn Fiskmat ríkisins og Ferskfiskeftirlitið, og er talið, að með því móti geti starfskraftar þessara stofnana, sem nú eru aðskildar, notazt betur heldur en nú á sér stað. Eftir atvikum hefur sjútvn. talið rétt, að á þetta reyndi, hvort hægt væri að koma þeirri hagræðingu, sem þarna er gert ráð fyrir, í framkvæmd, og þess vegna varð það niðurstaða n., þrátt fyrir þann nauma tíma, sem hún hafði til athugunar á frv., að mæla með samþykkt þess, en þó með nokkrum breytingum, sem ég skal gera lauslega grein fyrir hér á eftir.
Um sjálft frv. er það að segja, að í 1. gr. þess eru skilgreiningar á því, hvað sé fiskur og hvað séu fiskafurðir, í hverju eftirlit með vinnslu fiskafurða sé fólgið og í hverju mat á fiski og fiskafurðum. Í 2. gr. þess er svo kveðið á, að allur fiskur, sem landað er, skuli háður eftirliti, þar til hann hefur verið unninn eða honum ráðstafað á annan hátt. Einnig eru þar ákvæði um, að fiskur eða fiskafurðir, sem fluttar eru út, skuli háðar eftirliti eða vera metnar, nema hvort tveggja sé. Í 3. gr. frv. er kveðið á um, að settar skuli reglugerðir og erindisbréf um framkvæmd laganna og nánari ákvæði, er að því lúta. Í 4. gr. er ákvæði um það, að Fiskmat ríkisins annist eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum samkv. þessum lögum, en að sjútvmrh. hafi yfirstjórn þeirra mála á hendi. Ég vil geta þess, í sambandi við till. sjútvn. um að fella niður 17. gr. frv., þar sem gert var ráð fyrir, að yfirstjórn Fiskmatsins hefði ráðgjafanefnd sér til halds og trausts, sem væri fyrst og fremst skipuð fulltrúum framleiðenda, að hugsunin á bak við þá till. er sú, að viðskiptamenn okkar á erlendum mörkuðum leggja a.m.k. í sumum tilfellum mikið upp úr því, að það eftirlit og mat, sem þarna um ræðir, sé framkvæmt af hlutlausum og óvilhöllum aðila. Það er talið, fyrst og fremst vegna kaupendanna, að ekki sé æskilegt að hafa þá skipan á, sem gert var ráð fyrir í 17. gr. frv. Vík ég e.t.v. nokkru nánar að því hér á eftir.
Í 5. gr. er kveðið á um skiptingu verkefna milli ferskfisk- og freðfiskdeildar, og í 7. gr. eru ákvæði um það, að Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins skuli framkvæma, í samráði við Fiskmat ríkisins og helztu samtök framleiðenda í hinum ýmsu framleiðslugreinum, þær rannsóknir og tilraunir, sem gera þarf vegna eftirlits og mats á fiski og fiskafurðum.
Ég vil leggja áherzlu á það fyrir mitt leyti, að ég tel þetta mjög mikilvægt atriði, því að allt eftirlit með hreinlæti og góðri meðferð á fiski, sem verið er að vinna úr vörur til manneldis, er orðið það hárnákvæmt og vísindalegt í mörgum greinum, að það er alveg nauðsynlegt, að Fiskmatið geti stuðzt við rannsóknastofnun eins og þá, sem íslenzki fiskiðnaðurinn nýtur nú góðs af, en Fiskifélagið upphaflega kom á fót og nú heitir Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Samkv. 8. gr. skipar sjútvmrh. fiskmatsstjóra, deildarstjóra og yfirfiskmatsmenn, að fenginni umsögn samtaka hinna ýmsu framleiðslugreina. Þessari gr. var breytt í meðferð hv. Ed. og leggur sjútvn. til, að henni verði aftur breytt, og kem ég að því hér á eftir.
Samkv. 9. gr. er fiskmatsstjóra falin á hendur yfirstjórn Fiskmats ríkisins og yfirumsjón með öllu eftirliti og mati á fiski og fiskafurðum í landinu. Ég vil geta þess, að í álitsgerð frá fiskmatsráði, sem vann mikið að undirbúningi þessa máls, kom það fram, að þar höfðu þeir, sem að því áliti stóðu, óskað eftir, að inn í lögin kæmu fyrirmæli um það, hvaða menntunar væri krafizt af fiskmatsstjóra sem æðsta yfirmanni þessara mála. Þau ákvæði hafa ekki verið tekin upp í frv. Ég vil láta það í ljós sem mína skoðun, að ég álít, að í framtíðinni beri að stefna að því að fá sérmenntaðan og sérhæfðan mann í þetta starf, og vil ég þó ekki með þeim orðum kasta neinni rýrð á þann mann, sem þessu starfi gegnir nú. En, eins og ég gat um áðan, eru mörg af þessum störfum orðin flókin og sérhæfð og þarf að vinna að þeim á vísindalega vísu og með meiri nákvæmni en menn með venjulega starfsreynslu hafa yfir að ráða í þeim efnum. Eins og vikið er að í nál. sjútvn., þá gerir n. ráð fyrir, að þessi lög þurfi ef til vill innan tíðar að koma til endurskoðunar, og má þá taka þetta atriði til nánari yfirvegunar.
Í 9. gr. er kveðið á um deildaskiptingu innan Fiskmatsins, og í 10. gr. er svo kveðið á, að fiskmatsmenn er starfa á vegum Fiskmats ríkisins skuli framkvæma undir umsjón yfirmatsmanna eftirlit það og mat, sem þessi lög gera ráð fyrir. Fiskmatsmenn skulu vera löggiltir af lögreglustjóra. Í 11. gr. eru ákvæði um það, hvernig haga skuli ráðningarkjörum fiskmatsstjóra, deildarstjóra og yfirfiskmatsmanna. Hv. Ed. gerði breytingu á þeirri grein, sem við leggjum til, að verði felld niður, þannig að greinin færist aftur í sama horf og hún er í upphaflega frv.
Samkv. 12. gr. er starfsmönnum Fiskmatsins bannað að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um brot í opinberu starfi að skýra óviðkomandi mönnum nokkuð frá því, sem leynt á að fara, en þeir hafa fengið vitneskju um í starfi sínu. Þetta er sjálfsagt ákvæði í lögum eins og þessum, því að þarna getur í mörgum tilfellum verið um að ræða mjög mikil trúnaðarstörf, sem ekki er sama, hvernig á er haldið. Í 12. gr. er kveðið á um, að þeir, sem ætla sér að flytja úr landi fisk eða fiskafurðir, skuli tilkynna það hlutaðeigandi deildarstjóra í Fiskmatinu eða yfirfiskmatsmanni, með hæfilegum fyrirvara og að hleðsla vörunnar í skip fari fram undir umsjón starfsmanna Fiskmats ríksins. Í síðari hluta þessarar greinar var upphaflega ákvæði um það, að lögreglustjórar löggiltu hleðslustjóra skv. tilnefningu fiskmatsstjóra og sæju um, að þeir rituðu undir eiðstaf um, að þeir vildu rækja með alúð og kostgæfni skyldur þær, sem á þeim hvíla í starfi þeirra. Þetta ákvæði hefur hv. Ed. fellt niður, en sjútvn. þessarar d. leggur til, að það verði tekið upp aftur, vegna þess að ákvæði um það, að lögreglustjóri skuli löggilda hleðslustjóra er ekki hægt að setja í reglugerð, en sá hafði verið skilningur sjútvn. Ed., og þess vegna hafði hún fellt þetta atriði niður.
Í 14. gr. er hverjum þeim, sem veiði verkar, eða verzlar með fisk eða fiskafurðir, sem lög þessi ná til, gert að skyldu að gefa starfsmönnum Fiskmats ríkisins allar nauðsynlegar upplýsingar og veita þeim aðstoð við framkvæmd eftirlits og mats. Og í framhaldi af því er starfsmönnum Fiskmats ríkisins heimilaður aðgangur að hverjum þeim stað, þar sem fiskur eða fiskafurðir, sem lög þessi taka til, eru unnar eða geymdar. Einnig er í gr. kveðið á um sýnishornatöku. Í 15. gr. eru svo nánari ákvæði um valdsvið fiskmatsstjóra, deildarstjóra og yfirfiskmatsmanna, en fiskmatsstjóri skal úrskurða, ef ágreiningur rís vegna fiskmats eða eftirlits, en skjóta má úrskurði hans um skilning á lögum þessum og reglum settum skv. þeim til sjútvmrn.
17. gr. frv., eins og hún var upphaflega, var heimildargrein fyrir sjútvmrh. til þess að skipa 5 manna ráðgjafanefnd við Fiskmat ríkisins, og átti að tilnefna í hana fulltrúa frá Landssambandi ísl. útvegsmanna og Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Alþýðusambandi Íslands o.s.frv. Þessari gr. breytti hv. Ed. í það horf, að í staðinn fyrir að í henni fólst heimild fyrir ráðh. til að tilnefna þessa ráðgjafanefnd, þá segir frv., eins og það liggur fyrir nú, að n. skuli skipuð. En eins og ég vék að áðan, þá er það mat okkar í sjútvn. þessarar d., að þessa grein beri að fella niður, og af því leiðir, að gera þarf nokkrar aðrar breytingar á frv.
Ég vil geta þess, að eftir afgreiðslu Ed. á málinu bárust sjútvn. þessarar d. ýmsar aths. um frv. og þá fyrst og fremst svo hljóðandi aths. frá sjútvmrn., með leyfi hæstv. forseta:
„Við afgreiðslu frv. til l. um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum lagði sjútvn. Ed. til ýmsar breytingar á frv., sem allar voru samþ. við afgr. í d. Þar sem nokkrar af þeim breytingum, sem gerðar voru, eru á misskilningi byggðar, skal eftirfarandi tekið fram:
1) Breytingar, sem gerðar hafa verið á 8. og 11. gr. frv., fela það í sér, að yfirfiskmatsmenn eigi að vera ráðnir starfsmenn. Í nál. sjútvn. segir: „Þá telur n. eðlilegt, að yfirfiskmatsmenn séu ráðnir eins og hefur verið til þessa.“ Hér er um misskilning að ræða, þar sem fleiri fiskmatsmenn, sem starfað hafa hjá Fiskmati ríkisins, eru ýmist skipaðir eða settir í sín embætti. Skv. l. nr. 46 1948 um fiskmat, skipar rn. fiskmatsmenn, að fengnum till. fiskmatsstjóra (5. gr.), og í 6. gr. segir, að yfirfiskmatsmenn skuli vera 8 að tölu. Yfirfiskmatsmenn eru nú 15 talsins og eru 8 af þeim skipaðir, en hinir settir. Þeir matsmenn, sem starfað hafa hjá Ferskfiskeftirlitinu, eru aftur á móti ráðnir starfsmenn. Þessi breyting Ed. hefði í för með sér skerðingu á réttindum yfirfiskmatsmanna, því stöður þeirra allra yrðu lagðar niður.
2) Á 10. gr. frv. eru gerðar tvær breytingar. Fjórða málsgr. hljóðaði svo í frv.: „Kaup fiskmatsmanna fyrir störf þeirra og annan kostnað af störfum þeirra við fiskmatið greiði eigendur fisksins þeim, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð um störf fiskmatsmanna.“ Sú breyting var gerð, að í stað orðanna: „Kaup fiskmatsmanna“ komi orðin „kaup saltfisks- og skreiðarmatsmanna.“ Breyting þessi gefur tilefni til þess skilnings, að ríkissjóður eigi að greiða kaup fiskmatsmanna við freðfiskeftirlitið. Hins vegar mun tilgangurinn ekki vera sá, og er því æskilegt að frvgr. verði óbreytt, en þar er ráðgert, að þessum málum verði skipað með reglugerð. Eftirfarandi málsgr. er bætt við 10. gr. frv.: „Fiskmatsmenn, sem starfa við ferskfiskeftirlit, skulu vera ráðnir starfsmenn, og verða laun þeirra greidd samkv. samningi, sem við þá verður gerður.“ Að vísu hefur sá háttur verið á, að þessum fiskmatsmönnum hefur verið greidd þóknun skv. sérstökum samningi, en vafasamt virðist að setja sérstök lagaákvæði um greiðslur til þeirra, enda verður að gæta samræmis í kjörum allra fiskmatsmanna.
3) Í 9. og 13. gr. eru felld niður ákvæði á þeim forsendum, eins og segir í nál., að n. finnist eðlilegra, að um þessi atriði sé fjallað í reglugerð. Sum þessara ákvæða verða hins vegar ekki sett með reglugerð, t.d. getur rn. ekki með reglugerð skyldað lögreglustjóra til að löggilda hleðslustjóra. Lögreglustjórar eru stjórnvaldsaðilar, sem heyra undir annað rn. Önnur ákvæði fela í sér heimildir til nánari og sveigjanlegri framkvæmdar laganna.“
Þetta voru aths. sjútvmrn. við frv., eins og það kom frá Ed. Sömuleiðis barst n. svo hljóðandi aths. frá fundi saltfisks- og skreiðarmatsmanna sem ég tel rétt að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Undirritaðir löggiltir saltfisks- og skreiðarmatsmenn hafa kynnt sér frv. til l. um eftirlit og mat á fiski og fiskafurðum, sem nú liggur fyrir hæstv. Alþ. Við höfum í þessu sambandi borið saman frv., eins og það var lagt fyrir Alþ. af hæstv. sjútvmrh., við þá breytingu, sem Ed. Alþ. hefur nú gert við 10. gr. frv. sem hljóðar svo: „Fiskmatsmenn, sem starfa við ferskfiskeftirlit, skulu vera ráðnir starfsmenn og laun þeirra greidd með sérstökum samningi, er við þá verður gerður.“ Í 6-7 undanfarin ár hafa saltfisks- og skreiðarmatsmenn búið við það misrétti, miðað við mat á saltfiski og skreið annars vegar og eftirlit á ferskum fiski hins vegar, að hinum síðarnefndu hafa verið tryggð og greidd föst laun meðan við höfum haft stopula vinnu við mat til útflutnings á tveimur aðalgreinum sjávarútvegsframleiðslunnar. Við höfum vonað, að þetta misrétti mundi verða leiðrétt við endurskoðun fiskmatslaganna, en verði þetta misrétti staðfest með l. frá Alþ. skv. áður nefndri breytingu sjútvn. Ed. Alþ., hljótum við saltfisks- og skreiðarmatsmenn að krefjast sama réttar og þar er lagt til um matsmenn við eftirlit á ferskum fiski, en að öðrum kosti að endurskoða, hvort við gegnum áfram störfum við mat á saltfiski og skreið til útflutnings. Um 17. gr. frv. ásamt þeirri breytingu, sem Ed. Alþ. hefur gert á 8. gr. í því sambandi, fáum við ekki betur séð, en að um óháð opinbert fiskmat til útflutnings sé þá ekki lengur að ræða. Samkv. framansögðu ber að fella 17. gr. niður. Erum við þegar þess vissir, að afstaða stéttarbræðra okkar annars staðar á landinu er sú sama og hér greinir. Virðingarfyllst . . . Til hv. sjútvn. Nd. Alþ.“
Undir þetta skrifa 14 fiskmatsmenn.
Í framhaldi af þessum aths. við frv., og eftir viðræður við aðila um það, eftir því sem tími gafst til, flytur svo sjútvn. 5 brtt. á þskj. 650. Fyrsta breytingin er við 8. gr. Hún er sú, að gr. orðist svo:
„Sjútvmrh. skipar fiskmatsstjóra, deildarstjóra og yfirfiskmatsmenn að fengnum umsóknum og meðmælum.
Við skipun deildarstjóra, yfirfiskmatsmanna og ráðningu annarra starfsmanna við Fiskmat ríkisins skal leitað álits væntanlegs yfirmanns starfsmanns þess, sem hlut á að máli.“
Breyt. á þessari gr. leiðir af því, að lagt er til í 5. brtt. n., að 17. gr. verði felld niður, en meðan hún var inni í frv., var gert ráð fyrir að sjútvmrh. skyldi leita álits viðkomandi starfsgreina og ráðgjafanefndarinnar samkv. 17. gr., áður en hann skipaði í þær stöður, sem gr. fjallar um.
2. brtt. n. er við 10. gr., og hún er um það, að greinin orðist eins og hún var í upphaflega frv. Verður síðasta mgr. hennar þá þannig:
„Kaup fiskmatsmanna fyrir störf þeirra og annan kostnað af störfum þeirra við fiskmatið greiða eigendur fisksins þeim, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð um störf fiskmatsmanna.“
Ég vil taka fram í sambandi við þetta, að samkv. þessari breytingu greiða fiskeigendur ekki kostnað við eftirlit og mat á nýjum fiski.
Brtt., sem lögð er til við 11. gr., er borin fram vegna fram kominnar aths. frá rn. um það, að ef greinin væri látin standa eins og hún nú er í frv., mundu störf yfirfiskmatsmanna, þ.e. þeirra 8 yfirfiskmatsmanna, sem nú eru skipaðir í þau störf, raunverulega vera felld niður og er greininni breytt í upphaflegt horf.
4. brtt. hef ég áður minnzt á. Hún er fyrst og fremst um það að gera það mögulegt að fá löggilta hleðslustjóra.
Ég hef þá lauslega farið yfir efni frv. og þær breyt., sem n. leggur til, að gerðar verði á því. Þær eru, eins og hv. dm. sjá, flestar um það að færa frv. í upphaflegt horf, að öðru leyti en því, að lagt er til, að 17. gr. verði alveg felld niður.
Tveir hv. nm. skrifuðu undir nál. sjútvn. með fyrirvara, þeir hv. 4. þm. Austf. og hv. 2. þm. Reykn., og hafa þeir flutt sérstaka brtt. við 19. gr. frv., um það, að síðari málsgr. falli niður. Samkv. þeirri mgr. skal greiða 1 1/2 0/00 gjald til þess að standa undir kostnaði við ferskfiskmatið. Ég vil geta þess, að erindi barst um það frá SÍF, að þetta ákvæði yrði fellt út úr l., en samstaða varð ekki um það í n., og standa þeir hv. 4. þm. Austf. og hv. 2. þm. Reykn. einir að þeirri till., sem flutt er á þskj. 648 um þetta atriði.
Ég vil taka það fram, að sjútvn. er ljóst, að það er engan veginn víst, að tekizt hefði að eyða öllum skoðanamun um einstök atriði þessa frv., þótt n. hefði haft lengri tíma til þess að fjalla um málið. Eftirlit með vöruvöndun fiskafurða og fiskmat eru þannig í eðli sínu, að ekki er að furða, þótt ólíkra sjónarmiða gæti, og ný viðhorf eru sífellt að skapast. Þess vegna eiga ýmis atriði varðandi þessa starfsemi fremur heima í reglugerð en í l., eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., sem setur mjög rúmar heimildir til þess að skipa þessum málum með reglugerðum. Jafnframt má búast við því, að áður en langt líður þurfi að endurskoða þessi lög, eða þær reglugerðir, sem kunna að verða settar samkv. þeim, ef frv. verður samþykkt. Bæði Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Sjávarafurðadeild SÍS hafa skýrt svo frá, að í Bandaríkjunum sé verið að setja lög og reglur um strangara eftirlit með fiskmeti en þar hefur gilt til þessa. Bæði þessi samtök óskuðu raunar eftir því, að afgreiðslu þessa máls yrði frestað til hausts, með hliðsjón af fréttum frá Bandaríkjunum um þessi mál. Ekki hefur þótt ástæða til að fallast á þá frestun, m.a. vegna þess, að alltaf er opin leið til endurskoðunar l., þó að hún kunni að taka lengri tíma en endurskoðun reglugerða.
Sjútvn. undirstrikar það í áliti sínu, að þrátt fyrir það að hún mælir með samþykkt frv., m.a. í sparnaðarskyni, sem er út af fyrir sig lofsverður hlutur, leggi hún á það ríka áherzlu, að sá sparnaður megi hvergi leiða til þess, að slakað verði á kröfum um vandaða og þrifalega meðferð fisks og fiskmetis á öllum stigum framleiðslunnar. Eftirlitið og fiskmatið getur ráðið úrslitum um það, hvort Íslendingar halda þeirri fótfestu, sem þeir hafa náð á beztu mörkuðum fyrir fiskafurðir. Það er þess vegna mikilvægt, að þetta kerfi sé þannig upp byggt og framkvæmt, að viðskiptavinir okkar geti viðurkennt það og treyst því.
Ég vil geta þess, að einn nm., hv. 4. þm. Norðurl. e., var fjarverandi, þegar n. fjallaði um þetta mál á þeim fundi, sem hún afgreiddi það.
Ég vil svo að lokum leggja alveg sérstaka áherzlu á það sem mína skoðun, og ég hygg, að það sé einnig skoðun allrar sjútvn., að ef unnt reynist að framkvæma þann sparnað við fiskmatið og fiskeftirlitið, sem gert hefur verið ráð fyrir, verði það ekki látið ganga út yfir Ferskfiskeftirlitið. Ferskfiskeftirlitið er yngri þáttur í starfsemi Fiskmatsins en sjálft útflutningsmatið. En að mínu áliti hefur Ferskfiskeftirlitið á þeim fáu árum, sem það hefur starfað, unnið ómetanlegt starf fyrir fiskiðnaðinn. Ég held, að það fari ekkert á milli mála, að öllum þrifnaði í sambandi við meðferð á fiski hefur stórfleygt fram, eftir að Ferskfiskeftirlitið fór að hafa eftirlit með þessum hlutum. Það á bæði við um bátana og útbúnað þeirra. Það er ekki lengur um að ræða, að það komi fram í hraðfrysta fiskinum svokallaðar slagvatnsskemmdir, sem áður voru algengar og stöfuðu heinlínis af skorti á þrifum í bátum og frystihúsum, og fleira mætti telja, sem Ferskfiskeftirlitið hefur komið til leiðar. Það hefur haft eftirlit með því, að notað væri ómengað vatn við fiskþvott og annað þess háttar, og sú starfsemi hefur borið mjög góðan árangur. Sömuleiðis hefur Ferskfiskeftirlitið haft á hendi nokkra fræðslu- og leiðbeiningastarfsemi. Sú fræðslu- og leiðbeiningastarfsemi hefur því miður legið niðri nú um nokkurt skeið, en að mínum dómi ber að halda henni áfram.
Ég vil að lokum aðeins nefna það atriði, að vegna þess árangurs, sem Ferskfiskeftirlitið hefur náð í sínum störfum, hefur það á seinni árum iðulega komið fyrir, að bankar hafa leitað álits um ásigkomulag á bátum og fiskmóttökum, og það hefur komið fyrir, að bankar hafa neitað um rekstrarlán, nema hæfnisvottorð lægi fyrir frá Ferskfiskeftirlitinu. Þetta álít ég, að sé engin tilviljun og beri vott um, að þarna hafi náðst góður árangur. Þess vegna vil ég láta það verða mín síðustu orð í sambandi við þetta mál að þessu sinni, að vara eindregið við því, að dregið verði úr þjónustustarfsemi Ferskfiskeftirlitsins. Þvert á móti álít ég, að hana beri að auka.