16.04.1968
Efri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1590 í B-deild Alþingistíðinda. (1481)

188. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Frsm. minni hl. (Gils Guðmundsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. og hv. frsm. meiri hl. sjútvn. gerði grein fyrir, þá varð n. ekki sammála um afgreiðslu þessa frv. Það kom berlega fram í n., eins og hv. frsm. meiri hl. undirstrikaði raunar, að það var enginn nm. sérstaklega hrifinn af þessu frv., svo að vægilega sé til orða tekið. Það kom mjög greinilega fram, að jafnvel þeim hv. þm. stjórnarflokkanna, sem töldu sér ekki annað fært heldur en fallast á þetta frv., þeim lízt ekki sérlega vel á þá lausn, sem þar er um að ræða og telja hana tvímælalaust algera bráðabirgðalausn og raunar nokkra vandræðalausn, að ég hygg. Og það er líka mála sannast, að hér er ekki um að ræða neina frambúðarlausn á þeim vanda, sem hér er vissulega á ferðinni að því er varðar öll tryggingarmál bátaflotans, og það er hætt við, að þessi takmarkaða bráðabirgðalausn leiði aftur af sér ný og e.t.v. býsna erfið vandamál, og gæti því svo farið, að hún yrði sjávarútveginum helzt til dýr.

Það sem hér er um að ræða, er í stuttu máli það að hækka útflutningsgjöld á ákveðnum tegundum sjávarafurða, þrem tegundum sjávarafurða, um samtals 42 millj. kr. Útflutningsgjöld eru, að ég hygg, alltaf hálfgert vandræðafyrirkomulag. Það er hálfgerður vandræðatekjustofn, og því hærri sem útflutningsgjöld af afurðum eru, því varhugaverðari hljóta þau að vera og valda því, að erfiðara verður um alla samkeppni við aðra, þar sem slík útflutningsgjöld eru annaðhvort mjög lág eða alls ekki til og í sumum tilfellum jafnvel fá þeir, sem framleiða til útflutnings, stuðning til slíkrar framleiðslu.

Hækkun útflutningsgjalda á sjávarafurðum á þeim tíma, þegar útvegurinn á í sérstökum erfiðleikum, er alveg sérstaklega varhugaverð. Það er vitað, að nú þegar nálgast venjulega síldarvertíð, hrannast upp vandamál í sambandi við það, hvernig útgerðarmenn og sjómenn koma til með að standa að næstu vertíð. Það er vitað, að þannig hefur gengið hjá þeim hluta bátaflotans, sem nú stundar aðallega síldveiðar, hinum stærstu vélbátum, þannig hefur gengið nú síðustu mánuðina, að ég hygg, að varla nokkur síldarbátur hefur á þeim tíma fiskað neitt nándar nærri fyrir kostnaði. Það mun hafa verið tap á þeim öllum og það mun varla finnast sá síldarbátur, sem undanfarna mánuði hefur fiskað fyrir tryggingu, sem kallað er, þ.e. að hlutur sjómanna hafi náð kauptryggingunni, sem þó er aðeins 12 þús. kr. á mánuði. Það mun því reynast svo, að eftir að sjómennirnir hafa á svona heldur misheppnaðri loðnuvertíð og við alls konar skrap annað orðið að vinna oft býsna langan vinnutíma fyrir 12 þús. kr. brúttó á mánuði, borga þar af 4—5 þús. kr. í fæði, þá má búast við því, að það verði erfitt að fá þá til þess að starfa á síldarflotanum, nema því aðeins, að einhverjar teljandi vonir séu um það, að þeir geti haft sómasamlegar tekjur. En á því eru vissulega veruleg tormerki. Það er vitað. Reynslan frá því í fyrra var sú, að síldin hefur fjarlægzt landið og það er yfirleitt búizt við því, að sú saga endurtaki sig nú og þess vegna er gert ráð fyrir því, að margvíslegir erfiðleikar mæti síldveiðiútgerðinni á komandi sumri.

Það hefur þó verið talið, að vonir stæðu til þess, að einn þáttur síldveiðanna, þ.e.a.s. sá hlutinn, sem yrði veiddur til söltunar, yrði sæmilega arðbær, það stæðu nokkrar vonir til þess, að fyrir saltsíldina fengist bærilegt verð og það gæti e.t.v. greitt fyrir því, að menn yfirleitt treystu sér til þess að hefja þessar veiðar við þau erfiðu skilyrði, sem búast má við, að verði. En nú á að skattleggja alveg sérstaklega þennan þátt síldveiðanna, saltsíldina, til þess að standa undir hinu mikla tapi í sambandi við tryggingasjóðinn, og það hefur komið greinilega í ljós, að þeir aðilar, sem þetta mál skiptir alveg sérstaklega, sjómenn og útgerðarmenn og þeir sem fást við síldarsöltun, telja þetta hið mesta óráð og hafa mótmælt harðlega. Og við, sem skipum minni hl. n., sjáum ekki annað heldur en þeir hafi fært mjög veruleg og veigamikil rök fyrir sínu máli. Alveg sérstaklega vil ég benda á það, sem fram kemur í mótmælabréfi frá samtökum síldveiðisjómanna, að þeir telja, að með því hækka svo sem hér er gert ráð fyrir útflutningsgjaldið á saltsíldinni, hækka það úr 6% í 10%, þá sé í raun og veru verið að raska þeim grundvelli, sem samningarnir um hlutaskiptakjörin milli sjómanna og útvegsmanna voru á sínum tíma reistir á. Þetta tel ég, að sé býsna veigamikið atriði í sambandi við þetta mál, auk þess sem það er algerlega ljóst, að þessar 42 millj. kr. sem þarna á að taka af sjómönnum og útgerðarmönnum til þess að borga upp einhvern hluta, takmarkaðan hluta af hinu mikla og sívaxandi tapi tryggingasjóðsins, þær leysa það mál engan veginn til neinnar hlítar.

Þessi tryggingamál bátaflotans hafa nú um sinn verið hið mesta vandræðamál og það er fyrir löngu tími til þess kominn, að þau séu öll endurskoðuð og fundin einhver varanleg lausn á þeim. Það er alveg hárrétt, sem frsm. meiri hl. n. sagði hér í sinni framsögu, að þessi mál eru í hinum mesta ólestri og þau þarf að taka miklu fastari tökum heldur en gert hefur verið. En þessi vandræðalausn að leggja þetta viðbótarskattgjald á ákveðnar greinar útflutningsframleiðslunnar, sú lausn er bæði mjög takmörkuð að því er sjálft vandamál tryggingasjóðsins snertir og hún mun koma mjög erfiðlega við alveg sérstaklega síldveiðarnar, en ég býst jafnvel einnig við, að það geti farið svo, að því er saltfiskinn varðar, að þar verði einnig nokkrum erfiðleikum bundið að taka á sig nýjar byrðar.

Það hefur gengið allvel með sölu á saltfiski. Verðið hefur verið nokkuð hátt og farið heldur hækkandi. En nú á þessu ári og raunar að einhverju leyti á síðasta ári hygg ég, að saltað hafi verið nokkru meira en allmörg ár áður og e.t.v. sérstaklega, að í salt hefur farið fiskur, sem tæplega er í þeim sama gæðaflokki, sem saltfiskur hefur að. undanförnu verið, þ.e.a.s. fiskur, sem undir venjulegum kringumstæðum hefði tvímælalaust verið verkaður í skreið, en eins og menn vita, er ekki um skreiðarverkun að ræða eða varla um hana að ræða að sinni vegna þeirra markaðserfiðleika, sem eru í sambandi við skreiðina. Það má því jafnvel búast við, að öll skattlagning, aukin skattlagning að því er saltfiskinn varðar, geti komið erfiðlega niður, en þó hygg ég, að það sé alveg sérstaklega varðandi saltsíldina, að þar geti verið um að ræða mjög varhugaverða ráðstöfun að hækka svo stórlega sem hér er lagt til útflutningsgjald af þeirri vöru.

Eins og ég sagði áðan, hafa þegar birzt mjög harðorð mótmæli ýmissa aðila gegn þessu frv. Það eru í fyrsta lagi mótmæli frá síldarútvegsnefnd. Það eru í öðru lagi mótmæli frá stjórn Samtaka síldveiðisjómanna og enn fremur hafa komið mótmæli frá félögum síldarsaltenda, bæði norðanlands og austan og sunnanlands og vestan. Ég vil leyfa mér að vitna hér í nokkur atriði úr hinu harðorða bréfi síldarútvegsnefndar, þar sem m.a. kemur fram, að við undirbúning þessa máls hefur ekkert samráð verið haft við n. og m.a.s. virðist ekki hafa verið, að því er hún segir, tekið neitt tillit til mjög eindreginna varnaðarorða, sem hún sendi bæði hæstv. sjútvmrh. og fleiri aðilum nú fyrir nokkrum mánuðum varðandi þetta mál. En í bréfi síldarútvegsnefndar til sjútvn. Ed. Alþ., dags. 10. apríl, segir m.a. á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Síldarútvegsnefnd vill mjög eindregið og ákveðið mæla gegn hækkun útflutningsgjalda á saltsíld, sem felst í frv. þessu.

N. telur, að þessi hækkun geti leitt til þess, að þessi atvinnuvegur, sem hingað til hefur bjargazt án opinberra styrkja, lamist svo, að hann falli niður að mestu.

Með bréfi voru, dags. 29. nóv. s.l., sem hér með fylgir í myndriti og sem stílað var til sjútvmrh., en jafnframt sent Efnahagsstofnuninni og Seðlabanka Íslands, eru ýtarlega raktir þeir erfiðleikar, sem fram undan eru með sölu og framleiðslu saltsíldar á sumri komanda. Er þar m.a. bent á erfiðleika um öflun hráefnis og verkun síldar af fjarlægum miðum, svo og kostnaðarauka af þeim sökum. Í bréfi þessu varar n. alvarlega við því, að nokkrar ráðstafanir verði gerðar til þess, að þessi útflutningsgrein verði lögð í einelti með auknum álögum. Allar þessar ábendingar og aðvaranir síldarútvegsnefndar virðast virtar að vettugi. Það er furðulegt, að ekki skuli haft í neinu samráð við n. eða hlustað á till. hennar og aðvaranir, þegar þess er m.a. gætt, að í n. eru fulltrúar útvegsmanna, sjómanna og verkamanna, síldarsaltenda og auk þess þrír fulltrúar þingkjörnir.“

Síðan er í bréfinu nánari rökstuðningur fyrir því, að mjög óráðlegt sé að leggja aukið útflutningsgjald á saltsíldina.

Í bréfi frá stjórn Samtaka síldveiðisjómanna er lögð áherzla á hið sama ag þar vil ég alveg sérstaklega undirstrika það, sem þeir segja, að því er varðar röskun á þeim skiptakjörum, sem verið hafa á milli útgerðar og sjómanna. Þeir segjast vilja benda á það, að hækkun á útflutningsgjaldinu valdi röskun á þessum skiptakjörum og vilja vara við þeim afleiðingum, sem það geti haft.

Það er, eins og ég hef þegar tekið fram, alveg augljóst, að tryggingamál bátaflotans þarf jafnt eftir sem áður, hvað sem verður um þetta frv., að taka föstum og ákveðnum tökum og leysa þau til einhverrar frambúðar. Þetta, sem nú á að gera, er hin mesta og vandræðalegasta bráðabirgðalausn, og ég hygg, að það væri skynsamlegt að hlusta á þau viðvörunarorð, sem fram hafa komið varðandi það, hvaða afleiðingar þessi nýja skattlagning getur haft. Ég held, að það hefði verið og væri enn skynsamlegra að leita annarra úrræða til bráðabirgða, en brýn nauðsyn er, að hafizt verði hið allra fyrsta handa um að leysa til nokkurrar hlítar og einhverrar frambúðar þann mikla vanda, sem upp hefur risið, varðandi öll þessi tryggingamál bátaflotans, sem, eins og hér hefur verið margsagt, eru í hinum mesta ólestri.