16.04.1968
Efri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1604 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

188. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum

Ólafur Jóhannesson:

Herra forseti. Það var út af orðum hv. síðasta ræðumanns um síldarútvegsnefnd, sem ég vildi aðeins segja örfá orð. Ég held, að það fari ekki á milli mála, að þetta málefni, sem hér er verið að ræða, hljóti að varða síldarútvegsnefnd. En hv. síðasti ræðumaður hélt því fram, að það væru óeðlileg gífuryrði í bréfi frá síldarútvegsnefnd og að hún mundi jafnvel ekki sjálf meina það, sem hún þar segði. Af þessu tilefni vil ég taka það fram, að á fundi sjútvn. í dag fór ég einmitt fram á það og benti á nauðsyn þess, að kvaddir væru á fund sjútvn., áður en mál þetta væri afgreitt, þeir aðilar, sem þetta sérstaklega varðaði, og mér sýnist, úr því að menn höfðu þetta álit á umsögn — óumbeðinni að vísu — síldarútvegsnefndar, að þá hefði nú ekki minna mátt vera en að hún eða hennar fyrirsvarsmenn hefðu verið kvaddir á fund sjútvn. og þeim gefinn kostur á að tjá sig nánar um þetta mál og veita svör við því, sem vefengt er í þeirra umsögn. Það er náttúrlega ómögulegt, úr því farið er að tala um þetta á þennan veg hér, annað en benda á þau óhæfilegu vinnubrögð, sem hér eru við höfð, að það skuli ekki vera gefið ráðrúm til þess að kalla á þá aðila, sem þetta mál varðar. Það er ekki verið að fara fram á það, að þeim sé skrifað og málið sé tafið með því að það sé leitað eftir skriflegri umsögn þeirra, en hins vegar er bent á það, að eðlilegt sé að kalla þá á fund n. og fá þá til að tjá sig munnlega um það. Ég verð satt að segja að álíta það af því, sem hér hefur að öðru leyti komið fram í þessum umræðum, að það hefði ekki verið vanþörf á því að kanna nánar hug manna til þess, vita hvort þeir sæju einhver önnur ráð, því um eitt virðast þó allir hér vera hjartanlega sammála, og það er, að þetta frv. og þær leiðir, sem það markar, séu mjög ómyndarlegar og varhugaverðar, og hafa ýmis orð um að þeir neyðist að vísu til þess af illri nauðsyn að fylgja þessu máli, en hafi svo sem enga trú á því. Ég held þess vegna, að þetta mál hefði haft gott af því að vera athugað nánar.

En það er ekki síldarútvegsnefnd ein, sem hefur mótmælt þessu. Ég veit ekki betur en það liggi fyrir snörp mótmæli bæði frá samtökum síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi og m. a. s. líka hér á Suður- og Vesturlandi. Ég hygg að síldarsjómenn, samtök þeirra, hafi mótmælt þessu líka, þannig að það skortir ekkert á mótmæli gegn þessu frv. Mér finnst, að það hefði verið ástæða til þess að kynna sér allt þetta mál betur, því að eins og ég sagði þá eru allir sammála um það, að hér séu ekki góð úrræði. Jafnvel þeir, sem vilja þó ljá þessu atkv., eru sammála um það, að þeir geri það ekki með hrifningu, geri það tilneyddir o. s. frv. Það er annað líka, sem menn eru alveg hjartanlega sammála um allir með tölu — og það er það, að þessi vátryggingamál öll séu í hinum mesta ólestri, það er víst áreiðanlega rétt. En ólag þeirra mála er ekki nýtilkomið. Það hefur verið séð alllengi, að hverju fór í þeim efnum og þess vegna hlýtur manni að vera spurn: Hvers vegna var ekki snúizt fyrr við þessum vanda, hvers vegna var ekki fyrr gripið í taumana og farið að leita að einhverjum úrræðum til þess að laga þennan hala, sem á þessu er? Það hefur ekki getað dulizt neinum, að hverju fór. Þess vegna er alveg óhæfilega seint gripið í taumana. Og það mætti vissulega segja það um mál þeirra manna, sem eru að tala um það nú, að þessi mál séu í ólestri, að þeir geti. naumast meint það, sem þeir eru að segja, því þeir hefðu vissulega átt að beita sér fyrir því, að þessi mál væru löguð, ef þeir voru þeirrar skoðunar. Það hefur verið nægilegt tækifæri til þess áður að skyggnast eftir þessum málum. Þess er skemmst að minnast, að fyrir jólin var hér fjallað um mikið frv., sem hét frv. um ráðstöfun á gengishagnaði á útfluttum sjávarafurðum. Þá var viðhorf manna það, eftir að gengisfellingin hafði verið gerð, að sjávarútvegurinn mætti við því, að það væri af honum tekinn og lagður til hliðar þessi reikningslegi hagnaður, sem hv. frsm. meiri hl. var að tala um, sem hlauzt af því, að þær vörur, sem fluttar voru út til áramóta, voru gerðar upp á hinu gamla gengi, samkv. því, sem nánar sagði í lögum um ráðstafanir vegna ákvörðunar Seðlabanka Íslands um nýtt gengi, en auðvitað seldar á hinu nýja, þannig að það kom fram þarna allmikill hagnaður, eins og menn vita. Þá var sem sagt talið, að sjávarútvegurinn mætti við því, að sá hagnaður væri tekinn og lagður til hliðar og honum varið með vissum hætti, að vísu í þágu sjávarútvegsins aftur. Og sú grein, sem um þetta fjallaði í því frv., byrjar á þessa leið: „Gengishagnaðarsjóði er ríkisstj. heimilt að ráðstafa í þágu sjávarútvegsins sem hér segir: a. Allt að einum fjórða til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiskiskipa.“ Þetta vandamál hlaut að vera kannað þá, þegar sú ákvörðun var tekin, að aðeins einum fjórða af gengishagnaðinum skyldi varið til þess að greiða vátryggingariðgjöld af fiskiskipum. En auðvitað hlutu menn að vita þá, að þessi mál voru í ólestri. Þá hefði verið rétt að athuga þau mál öll betur og ákveða þá annað um skiptingu á þessum gengishagnaðargróða, því honum er ekki öllum ráðstafað strax með þessari gr., heldur er gert ráð fyrir því í d-lið, að afganginum, sem mér skilst að hljóti að vera a. m. k. einn fjórði, honum skuli varið sem stofnframlagi til verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins. Og í 3. gr. frv. segir síðan, að stofnfé verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins skuli varðveitt í Seðlabanka Íslands, þar til sett verði lög um sjóðinn.

Fyrir áramót hefur sjávarútvegurinn sem sagt verið talinn geta séð af þessu, einum fjórða af gengishagnaðinum til framtíðarinnar, sem að vísu getur verið góðra gjalda vert, en ég held, að það sé komið á daginn að það hafi verið fullmikil bjartsýni miðað við það ástand, sem kemur fram í aths. með því frv., sem hér er verið að ræða. Mér er spurn: hefði ekki verið jafngott að athuga þennan vanskilahala vátrygginganna í sambandi við málið um ráðstöfun á gengishagnaði og taka þá nokkru meira til vátrygginga fiskiskipa í stað þess að koma nú og ætla að leggja til hækkun á útflutningsgjöldunum?

Ég vil að lokum aðeins undirstrika það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði og sem var náttúrlega algerlega rétt, og það dylst engum, og það er ákaflega einfalt, hver er kjarni þessa máls og hefur alltaf verið frá upphafi. Það er auðvitað það, að af því það hefur ekki tekizt að breyta hlutaskiptafyrirkomulagi, þá er þarna og með þessu fyrirkomulagi tekið af sjómönnunum og fært yfir til útgerðarinnar. Það er mjög einfalt mál. Og sjómenn — síldarsjómenn — hafa þegar mótmælt þessu. Og það mætti segja mér, að þeir teldu algerlega rofinn þann grundvöll, sem hlutaskiptingin er byggð á, með samþ. slíks frv. sem þessa. Til hverra ráðstafana þeir kunna að grípa út af því skal ég ekki segja um, en ég býst við því, að þeir taki þessu ekki með neinni gleði og verði ekki fúsari til að fara á skipin eftir samþykkt þessa frv.