16.04.1968
Efri deild: 91. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1607 í B-deild Alþingistíðinda. (1487)
188. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. meiri hl. (Pétur Benediktsson):
Herra forseti. Ég þarf ekki að bæta miklu við það, sem sagt hefur verið. Það var minnzt á það í hv. þd. í dag, að rétt hefði verið að kalla á ýmsa aðila til að láta í ljós álit sitt fyrir nefndinni, og þá sérstaklega síldarútvegsnefnd. Ég held, að það hafi verið alveg óþarfi að bera nokkra smurningsolíu á málbeinið hjá þeirri góðu nefnd í þessu máli. Mér virðast þar, sannast sagt, öll hjól vera í fullu lagi og hygg, að d. sé mér sammála um það eftir að hafa heyrt úrvalskafla úr áliti hennar og eru þó enn ýmsir ólesnir, eins og þeir, þar sem sagt er, að þetta ætti að vera alveg gagnstætt, það ætti að láta þá hafa stórstyrk fyrir að vilja salta í staðinn fyrir að leggja á þessar svokölluðu álögur.
En hitt er rétt, sem ég hef sagt hér og það höfum við allir tekið undir, að vátryggingamálin eru í ólestri. Af hverju er þetta leiðindamál á leiðinni? Jú, þetta er gamall arfur, eins og fram hefur komið í umr., frá hinni frægu vinstri stjórn, það er gamall arfur, sem við erum enn þá að burðast með frá hennar tíð. Kannske er meira sannmæli, að það sé gamall draugur, sem við þurfum nú nauðsynlega að kveða niður, og mér er alveg sérstök ánægja að hafa heyrt það í hinni greinargóðu frásögn hæstv. sjútvmrh. um athuganir þær, sem fram hafa farið og eru í fullum gangi viðvíkjandi vátryggingamálunum, að þær réttu formúlur virðast þar vera á réttri leið, og því ætti að vera góð von um að kveða drauginn niður, áður en mörg tungl eru af lofti. En hitt vil ég taka fram greinilega, að það er ein afgreiðsla á þessu máli og aðeins ein, sem er með öllu óleyfileg, og það er sú sem hæstv. stjórnarandstaða leggur til, sú að fella frv., að ætla sér að skilja fiskibátaflotann eftir í algeru öngþveiti og óvátryggðan. Hvernig ætla þeir og sú góða síldarútvegsnefnd að afla síldarinnar, ef engin bátatrygging er á skipunum? Það væri gaman að fá svar við því.