11.10.1967
Sameinað þing: 0. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (15)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég skal nú vera mjög stuttorður. Það kom sáralítið nýtt fram í ræðu hæstv. dómsmrh. áðan, og mun ég því ekki eyða mörgum orðum honum til andsvara. Hann deildi lítið á mig og tók það svo skilmerkilega og greinilega fram, að öll stóru höggin skyldu ekki lenda á mér, þau skyldu lenda á Magnúsi Kjartanssyni, og hann á að vera maður til þess að mæta þeim höggum og er það.

Það er rétt, að krafan um það, að listi Hannibals Valdimarssonar o.fl. í Reykjavík yrði merktur utanflokkalisti, kom frá tveimur lögfræðingum, Alþb.-mönnum, Inga R. Helgasyni og Ívari H. Jónssyni. Það er rétt hjá dómsmrh. En það hefði ekki ráðið úrslitum málsins, ef fulltrúar flokkanna í yfirkjörstjórn Reykjavíkur hefðu ekki fallizt á þessa kröfu og gert hana að sinni. Og þeir gerðu það einmitt og byggðu sinn úrskurð á kröfu þessara tveggja lögfræðinga. Þess vegna er málið hingað komið í þessu formi, að yfirkjörstjórnin í Reykjavik í heild féllst á kröfur þessara tveggja lögfræðinga, þó að landskjörstjórn telji, að þetta sé löglaus úrskurður og styðjist hvorki við lög eða stjórnarskrá. Hæstv. dómsmrh. hefur látið mjög mikið yfir ósamkomulagi Alþb., sem sé svo magnað, að það sé varla hægt að telja það flokk. Já, ef ráðh. byggi ekki sjálfur í glerhúsi, væri ástæða fyrir hann til þess að gera sig digran út af þessu. En mig minnir, að það væru allalvarlegar deilur uppi um framboðsmál meginhluta s.l. vetrar hjá Sjálfstfl., allerfið mál, sem ég geri mig ekki að því viðundri að vera að gorta hér neitt yfir. Þetta kemur fyrir þráfaldlega og kom fyrir á þessu s.l. vori, líka hjá Sjálfstfl., og það kom líka upp allalvarlegt ágreiningsmál um framboð hjá Framsfl., og þetta er hlutur, sem getur gerzt á hinum beztu heimilum. Við höfum þess vegna engin efni á því, nema þá helzt Alþfl., að gera okkur digra út af ósamkomulagsmálum annarra flokka í framboðsmálum og skulum láta það liggja að sinni.

Hæstv. ráðh. vék að því, að kjörbréf mitt væri gefið út sem utanflokkamanns, ég væri kjörinn af l-lista, utan flokka. Það er rétt, þannig er texti míns kjörbréfs. Ég álít þennan texta rangan. Ég álít hann vera í ósamræmi við endanlegan úrskurð landskjörstjórnar, og það er einmitt það, sem mér finnst, að framkvæmdavaldið vanti til þess að láta yfirkjörstjórnina í Reykjavík, að uppkveðnum úrskurði landskjörstjórnarinnar, merkja listann rétt. Því finnst mér áfátt. Og ég er ekki þeirrar skoðunar, hæstv. ráðh. hefur ekki enn þá sannfært mig um það, að hann hefði farið út fyrir sitt verksvið sem ráðh., ef hann hefði á sínum tíma haldið yfirkjörstjórn til hlýðni um að framkvæma úrskurð landskjörstjórnarinnar í þessu efni. Ég álít, að það hefði verið hans skylda. Það gat ekki verið til annars fallið en að rugla kjósendur bókstaflega, að listinn væri merktur I-listi, þegar endanlegur úrskurðaraðili taldi, að hann ætti að vera merktur G-listi og atkv. hans að teljast Alþb. En þannig stóð þetta mál óafgert fram yfir kosningar, og kjósendur vissu í raun og veru ekki sitt rjúkandi ráð um þetta.

Hér er mikið talað um það, að nauðsynlegt sé að breyta þessum lögum, sem nú gildi um þessi efni. Alþ. hefur tvívegis, eins og ég hef sýnt fram á, fjallað um þessi mál og í bæði skiptin komizt að þeirri niðurstöðu, að réttur flokkanna skuli ekki vera svo alger, að flokksstjórnirnar einar hafi úrskurðarvald um framboð í nafni flokkanna, heldur skuli fólkið hafa nokkurn rétt, og þannig eru lögin nú. Menn tala um hættu í sambandi við þetta. Þetta er rangt. Það er því aðeins mögulegt að koma svona framboðum fram, að flokksstjórn hafi sett upp svo þröngt framboð, að það eigi ekki allsherjar fylgi innan flokksins og því aðeins fær annað framboð í nafni sama flokks hljómgrunn og skilar manni inn á Alþingi, að þessi mistök hafi átt sér stað og að fólkið hafi viljað rýmra framboð og vilja sinn gildandi með öðrum. Og þá á fólkið þennan rétt. Ef framboðsmálin ákveðin af flokksstjórn hafa verið sæmilega rúm og þannig, að flokksfólkið almennt sætti sig við, nær slíkt aukaframboð ekki árangri og dettur niður dautt og flokknum verður ekki tjón að því.

Þetta er því eins og Pétur Magnússon o.fl. sögðu í umr. 1933, þetta ákvæði um annað framboð í nafni sama flokks veitir flokksstjórnunum aðhald, nauðsynlegt aðhald, og ég er þeirrar skoðunar, að hv. alþm. eigi að standa vörð um þessi réttindi fólksins til þess að veita flokksstjórnum aðhald. Það fer því enginn í grafgötur um það, að þegar stjórnarflokkarnir ýta úr vör um það að fella þessi ákvæði um rétt fólksins niður, verð ég a.m.k. andstæðingur þess. Ég mun standa á þeirri línu, sem Pétur Magnússon, Magnús Guðmundsson og Tryggvi Þórhallsson mörkuðu 1933. Ég tel, að það sé vissara, að fólkið eigi þarna nokkurn rétt.

Niðurstaða þessa máls er einfaldlega sú, að ef atkv. þess lista, sem ég skipaði efsta sæti á, rúmlega hálft 4. þúsund atkv., leggst við atkvæðamagn Alþb. í landinu, er niðurstaðan sú eftir reglunum, sem gilda um jöfnun uppbótarsæta milli þingflokka, sem landskjörstjórnin á að sjá um, að sé framkvæmd, að Alþb. á það þingsæti, sem hér er um deilt. Steingrímur Pálsson er þá rétt kjörinn uppbótarþm. Alþb., og það er í samræmi við úrskurð landskjörstjórnarinnar, að leggja beri atkvæðamagn l-listans við annað atkvæðamagn Alþb. Það eitt er í fullkomnu samræmi við endanlegan úrskurð landskjörstjórnarinnar, að kjörbréf Steingríms Pálssonar sé samþ. hér á Alþ., og ég efast ekki um það eitt augnablik, að það réttlætisverk mun Alþingi sjá um, að verði framkvæmt í dag.