19.04.1968
Neðri deild: 102. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1649 í B-deild Alþingistíðinda. (1502)
188. mál, útflutningsgjald af sjávarafurðum
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykn. (JSk) var hér mjög langorður í kvöld um þessi mál og fór nú nokkuð út fyrir þann ramma, sem hér er í raun og veru til umræðu, því að hann fór mest út í það að lesa hér upp bréf síldarútvegsnefndar og mótmæli hennar og lagði svona mátulega út af því og sömuleiðis að lesa upp kafla úr ræðu 5. landsk. þm. úr Ed. Það hefði nú kannske verið öllu hyggilegra og viðfelldnara, að þeir héldu kjósendafundi í sínu kjördæmi, hann og 5. landsk. þm. út af ummælum hans í Ed. en að ræða þau hér í hv. þd., þar sem hann á ekki sæti.
Það, sem hér liggur fyrir til umræðu, er ekki störf síldarútvegsnefndar, eins og löngum tíma var eytt í, heldur frv. um breyt. á l. um útflutningsgjald á sjávarafurðum. Það frv. er lagt fram af illri nauðsyn vegna þess, hvernig ástandið er hjá tryggingasjóðnum. Ég skal taka undir þá gagnrýni, sem fram hefur komið, að ég tel, að þetta frv. hefði auðvitað átt að vera komið fram löngu fyrr en nú undir lok þingsins, enda viðhafði hæstv. sjútvmrh. þau ummæli í Ed., og ég hlustaði á hans ræðu, að hann harmaði það, hvað undirbúningur þessa frv. hefði tekið langan tíma og hann hefði kosið að leggja þetta frv. miklu fyrr fram, en við það varð ekki ráðið. Ég furðaði mig á því, þegar hv. 2. þm. Reykn. talaði og sjútvmrh. greip fram í fyrir honum og spurði, hvort hann ætlaðist til þess, að bátar væru hafðir í slippnum og kæmust ekki niður, þá spurði hv. þm.: „Er svo illa komið?“ Ég hélt, að sérstaklega þm., sem kynnti sér sjávarútveg og gang sjávarútvegsmála, hefði vitað það nú í langan tíma, hvernig ástandi vátryggingasjóðsins er háttað. Tekjur af útflutningsgjaldi hafa lækkað það verulega á s. l. ári samfara stórfelldum hækkunum á greiðslum úr sjóðnum, að ástandið er með þeim hætti, að það er barátta um það að geta leyst skip úr slippnum til þess að þau geti komizt á veiðar.
Hv. 4. þm. Austf. kom víða við í sinni ræðu, og það var margt rétt, sem hann sagði, en hins vegar fór hann líka með miklar firrur, því að hann talaði um það, að þetta kerfi, vátryggingakerfið væri alrangt og ætti algjörlega að hverfa frá því. Þetta kerfi væri sett á kostnað sjómanna. Ég tel skylt að minna þennan hv. þm. og aðra á það, að um langt árabil var skiptaverð til sjómanna annað en hið raunverulega verð. Þetta breyttist með kjarasamningnum 1961 á þann veg, að sjómenn fengu til skipta hið raunverulega fiskverð, en þá var einnig tekið upp á sama tíma útflutningsgjaldið og samkomulag um það að greiða vátryggingar skipa með þeim hætti, sem síðan hefur verið hafður á. Þetta finnst mér, að hv. þm. hefði átt að koma inn á um leið, þegar hann var að gagnrýna þetta kerfi. Ég ætla að segja í sambandi við þetta kerfi, að það má ýmislegt finna að því og framkvæmd þess á liðnum árum, fyrst og fremst það að á skipum, sem eru tryggð í hinni svokölluðu frjálsu tryggingu, var ekkert mat lengi vel, og það var greitt fullt iðgjald miðað við þær reglur, sem rn. hefur sett um úthaldstíma, og iðgjaldið ekki takmarkað. Fyrrv. sjútvmrh. sá, að þetta var komið út í óefni og setti þá ákvæði um það að skipta þessum skipum í flokka eftir stærð og aldri og ákveða iðgjaldsupphæðina fyrir hvert ár fyrir sig sem hámarksiðgjald, er skipin fengu. Við skulum líka hafa í huga, að þegar þetta form var tekið upp og lög um útflutningssjóð voru sett, verkuðu þau aftur fyrir sig á þann veg, að útflutningssjóður varð þegar í upphafi nokkuð á eftir með sínar greiðslur. Fiskiskipaflotinn hefur aukizt, einkum hinn stærri floti, og við verðfallið og minnkandi afla hrynja tekjur útflutningssjóðsins og hafa skapað því þennan hala, sem nú er, og það verður ekki komizt hjá því að auka hans tekjur og það er engan veginn gert nóg með þessu frv. Hins vegar skal ég fúslega ganga inn á það, sem hv. 4. þm. Austf. sagði, enda kemur það raunverulega fram í áliti meiri hl. sjútvn. og kom mjög greinilega fram í framsöguræðu meiri hl. n., þar sem þeir mælast mjög eindregið til, að þetta kerfi verði endurskoðað og mér er kunnugt um það, að sjútvmrh. hefur ákveðið að verða við þeirri beiðni, og hér verður auðvitað að gera miklar breytingar á og ég er alveg sammála hv. 4. þm. Austf. í því tilfelli, að það verður auðvitað að setja upp einhvern frískaða. Og það hefur verið þegar gert af hinni almennu tryggingu, Samábyrgðinni, með því að setja á frískaða með um 300 kr. á brúttórúmlest á hvert sjótjón. Hins vegar má segja það, að þegar skipin stækkuðu og frjálsu tryggingarfélögin tóku skipin í tryggingu, þá hófst skefjalaust kapphlaup um að ná skipum í tryggingu. Útgerðarmönnum var lánað fé til þess að komast yfir skipin og við þá var sagt: „Við borgum öll tjón.“ Og það var vissulega rétt og satt, öll tjón voru greidd, en margir áttuðu sig ekki á því, að vátryggingafélög eru engin vetrarhjálp eða góðgerðastarfsemi, því að þegar tjónareynslan fór versnandi, voru iðgjöldin hækkuð upp úr öllu og nú er svo komið, að fjöldi skipa, sem hafa verið í tryggingu hjá hinum svokölluðu frjálsu tryggingafélögum, eru nú að leita eftir tryggingu hjá Samábyrgðinni. Og það er þannig hjá okkur í Samábyrgðinni, að þegar við höfum leitað eftir endurtryggingu fyrir þessi skip, sem eru nú að hverfa frá frjálsu tryggingarfélögunum, þá hafa erlendu endurtryggingarfirmun stórhækkað sín iðgjöld, vegna hinnar slæmu tjónareynslu, sem hefur verið á íslenzka flotanum, á skipum yfir 100 rúmlestir.
Það lá hér fyrir þremur árum frv. fyrir um að breyta l. um samábyrgð og bátaábyrgðarfélögin og með því frv. var reiknað með, að skyldutryggingin færi úr 100 rúmlestum í 400 rúmlestir. Ég mælti þá eindregið með samþykkt þessa frv. Það átti lítinn hljómgrunn á Alþ., og ég get svona sagt það til gamans, að þá áttumst við við nokkuð í sambandi við umr. um þetta mál, hv. 4. þm. Austf. og ég. Þá taldi hann eðlilegt og sjálfsagt að láta frjálsræðið ríkja í vátryggingum og ég tók að mér hlutverk sósíalistans, en hann hlutverk kapítalistans. Ég hef ekkert skipt um skoðun, en hins vegar telur hann nú, að það eigi að hverfa frá þessu úrelta kerfi. Ég tel, að það eigi ekki að hverfa frá þessu kerfi. Þó að það komi nokkuð misjafnt niður á ákveðnar greinar, vil ég segja það, að á undanförnum 2–3 árum, ef undan er skilið árið 1966, gat síldveiðiflotinn lagt þessu kerfi miklu meira til en þorskveiðiflotinn, og vátrygging er samhjálp og hún á að vera samhjálp, en þó aðeins að vissu marki. Hún á ekki að vera takmarkalaus. Við verðum að halda skynsamlegri samhjálp áfram og við getum gert það með því að hafa frumtryggingar alls íslenzka fiskiskipaflotans á einni hendi, því það er langbezta skipulagningin. Hitt er svo aftur hægt að koma til móts við hin frjálsu tryggingarfélög með því að veita þeim endurtryggingarnar á móti. Það verður miklu heilbrigðari starfsemi í því. Þetta er ekki það stór og mikill markaður, að hann sé til skiptanna fyrir 8 eða 10 vátryggingarfélög, sem rífast um vátryggingarnar, eins og bezt hefur sézt á liðnum árum, en eru nú að hverfa frá því, og margir hverjir eru fegnir að losna nú við sum þau skip, sem þeir keyptu í raun og veru í viðskipti fyrir nokkrum árum síðan. Það á að hverfa frá þessu kerfi, segja menn — og láta útgerðirnar greiða vátryggingariðgjöldin sjálfar og hækka aflaverðmætið sem því nemur, þannig að útgerðin á að fá hærra fiskverð. En svo náðu ráðleggingarnar ekki lengra, því það kom hvergi fram, hvernig þeir, sem kaupa og vinna úr afla, geta tekið á sig þessa hækkun. Þetta vitum við svo mætavel og stjórnarflokkarnir eru auðvitað ákveðnir í því að koma þessu frv. í gegn af illri nauðsyn, vegna þess að annað er ekki hægt og það hefur ekki verið bent á neinar aðrar leiðir og við verðum því að koma því áleiðis, jafnframt því að endurskoða þessi mál frá grunni með það fyrir augum að draga úr tjónunum. Það er alveg rétt, sem hv. 4. þm. Austf. sagði, að tjón hér á Íslandi eru næstum því þrisvar sinnum hærri en í Noregi og iðgjöldin auðvitað að sama skapi. Að þessu þurfum við auðvitað að vinna, bæði útgerðin og löggjafinn verður að koma þar til hjálpar. Ríkisstj. og Alþ. eru ekki að leggja fyrir sig neinar álögur á hvorki einn eða annan. Hér er aðeins verið að standa við það fyrirheit, sem gefið var, og það eina, sem ríkisstj. hefur af þessum málum að segja, er það, að hún innheimtir útflutningsgjaldið af sjávarafurðum og stendur fyrir þessum sjóði endurgjaldslaust, en allt þetta útflutningsgjald rennur svo einmitt aftur til sjávarútvegsins sjálfs.
Mér finnst mjög langt gengið, þegar nefnd eins og síldarútvegsnefnd — án þess að ég vilji á nokkurn hátt fara að tala illa um þá nefnd eða starfsemi hennar, enda er hún ekki hér til umr. — segir, að hún vilji benda á nokkur atriði sem skýlaus rök fyrir því, að hin mesta firra sé að hækka útflutningsgjöld af saltsíld, þvert á móti ætti að fella niður með öllu þau gjöld, sem fyrir eru. Hér finnst mér n. taka allmikið upp í sig, því að ekki munu aðrar greinar aflögufærari, sem greiða útflutningsgjaldið, og þá er um að ræða að leggja þessi gjöld á aðra og ég held, að þm. almennt séu þeirrar skoðunar, að útgerðin geti ekki tekið þau á sig bótalaust og þá er ekki um annað að ræða en leggja þessi gjöld á almenning í landinu.
Tekjur af útflutningsgjaldi námu 263,1 millj. kr. árið 1965, en þau lækkuðu niður í 172 millj. kr. árið 1965 samkv. bráðabirgðauppgjöri, og ég segi nú fyrir mitt leyti, að ef við ættum að leggja þessi gjöld niður, auk þess sem á vantar, og leggja þau á þjóðina, er ég nú ekki búinn að sjá þá menn, sem nú mæla gegn þessum gjöldum, benda á, hvaða skatta eigi að leggja á þjóðina. Ég held, að þegar allt kemur til alls, séu þm. sammála um það, að hér er um neyðarúrræði að ræða og þessar þrjár greinar útflutningsatvinnuveganna eru þó helzt þær greinar, sem geta tekið á sig einhverja hækkun útflutningsgjalda. Þó skal ég fúslega viðurkenna það, að ég hefði kosið og ég þori auðvitað að fullyrða, að allir þm. hefðu kosið að þurfa ekki að grípa til þess að skattleggja þessa útflutningsframleiðslu, en það er neyðin, sem rekur Alþ. til þess, því það verður auðvitað að standa undir þessum gjöldum, sem útflutningsgjaldinu hefur verið ætlað að standa undir, því að fyrst og fremst verður fiskiskipaflotinn að geta gengið.