08.02.1968
Efri deild: 52. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1673 í B-deild Alþingistíðinda. (1532)
36. mál, umferðarlög
Sveinn Guðmundsson:
Herra forseti. Ég er samþykkur frsm. um það að fresta þessu máli og vísa því aftur til n. Annars hafði ég hugsað mér að lýsa hér brtt., sem ég ætlaði að koma með við 3. umr. málsins, en sem ég tel nú, að ekki sé ástæða til. Betra er, að við ræðum það frekar í n., fyrst lagt er til að fresta umræðunni. Ég vil þó aðeins lýsa yfir, vegna ummæla frsm., er hann taldi, að svör umferðarlaganefndar hefðu ekki borizt í tæka tíð, að það var fullkomin ástæða til þess. Það hafði láðst að senda umferðarnefnd þetta lagafrv. til umsagnar. Umferðarlaganefnd fékk ekki bréf frá allshn. fyrr en 16. des. og skilaði sínu áliti 6. febr., eftir að hafa verið búin að leita mjög umfangsmikilla upplýsinga frá mörgum löndum. Ég skal svo ekki orðlengja þetta, og frv. verður þá vonandi vísað til n. aftur.