07.03.1968
Neðri deild: 70. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1710 í B-deild Alþingistíðinda. (1575)

61. mál, Fiskimálaráð

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Hv. 3. þm. Sunnl., sem var að ljúka hér máli sínu, tók meira upp í sig í þessari síðari ræðu sinni heldur en í ræðunni fyrir tveimur dögum, enda hefur hann nú haft tvo sólarhringa til þess að sækja í sig veðrið. Og hann komst að lokum að þeirri skynsamlegu niðurstöðu, að þetta frv. um stofnun fiskimálaráðs væri hættulegt fyrir sjávarútveginn. Mér finnst, að þessi endir á ræðu hv. þm. sanni það glöggt, að hann, þrátt fyrir allan sinn ræðuflutning í þessu máli, skilur hvorki upp né niður í tilganginum með flutningi þessa frv., enda var málflutningur hans hér áðan með þeim hætti.

Hann greip í eitt hálmstrá í byrjun ræðu sinnar, og hélt í það alllengi og var afskaplega glaður og sagði, að það hefði verið lítill áhugi sýndur þessu frv. frá þeim stofnunum, sem hefur verið leitað umsagnar hjá. Rétt er það að vísu, að það voru ekki allir, sem sendu umsagnir. En hvaða frv. er það, sem flutt er og leitað er umsagna um, sem menn trassa ekki að senda umsagnir um nema þegar þeir þurfa að mótmæla einhverju? Þá eru þeir fljótir til. Og það er eitt atriði í þessu máli, að enginn aðili mótmælir frv. eða hafði neitt út á það að setja, svo að ég hygg, að þetta hálmstrá slitni fljótlega.

Ég furða mig á því, að hv. þm. skuli leyfa sér að snúa þannig út úr ræðu minni hér fyrir tveimur dögum, þegar ég talaði um, að eitt af þeim mörgu málum, sem slíkt ráð ætti að fjalla um, væri stofnun hagstofnunar fyrir sjávarútveginn, en láta ekki hverja sérgrein sjávarútvegsins fyrir sig vera að halda uppi dýrum stofnunum til þess að reikna sér í hag hver fyrir sig. Og ég sagði, að ég teldi, að það væri skynsamlegt og eitt af verkefnum þessa væntanlega ráðs að stofna eina heildarstofnun, þar sem aðilar bæði þeirra, sem fiska, sjómanna, og þeirra, sem gera út, þeirra, sem vinna úr fiskinum, og þeirra, sem fara með lánamálin, og Efnahagsstofnunin ættu aðild að. Ég hélt, að þetta væri skynsamlegra og léttara í vöfum við fiskverðsákvarðanir. En hv. þm. kemst að þeirri niðurstöðu, að með því að leggja þetta til í ræðu minni hafi ég í raun og veru verið að gefa það til kynna, að ég vildi leggja niður öll sölusamtök sjávarútvegsins. Ég get ómögulega skilið, hvernig hv. þm. hefur fengið þetta í höfuð sitt.

Ég sagði í þessari ræðu minni, — að vísu flutti ég ekki skrifaða ræðu, en hún er komin hér á borðið til mín, — og ég segi það, að ég vil segja fyrir mitt leyti, að þó að ég eigi að heita fremur í hópi atvinnurekenda, tel ég fullkomna ástæðu til þess, að sjómenn og sjómannasamtökin hafi aðild að slíkri stofnun, en það hafa þau hvergi í dag, og það er hvergi reynt að koma þessum stofnunum saman til þess að mynda heildarstefnu, heldur er hver fyrir sig að taka sín afstöðu, og það rekur sig hvað á annars horn, vegna þess að það vantar að skýra sjónarmið allra aðila. Það eru nú starfandi í sjávarútvegi fjölmargar stofnanir, sem vinna að því að reikna út hag og afkomuhorfur, hver á sínu sviði. Efnahagsstofnunin tekur svo að sér að reikna út um hver áramót, áður en fiskverð er ákveðið. Og síðan segi ég: Væri ekki meira vit í því, að stofnun eins og fiskimálaráð myndaði ein hagstofnun fyrir sjávarútveginn, og leggja allar þessar reikningaskrifstofur niður. Það yrði hlutlaus hagstofnun, sem sjómannasamtökin ættu aðild að, útvegsmannasamtökin, sölusamtökin og Efnahagsstofnunin. Ætli það væri ekki léttara í vöfum í sambandi við fiskverðsákvörðun að láta slíka stofnun eina starfa árið um kring og leggja þær fjölmörgu niður, sem eru að reyna að mála fjandann á vegginn, hver á sínu sviði. Það eru reikningaskrifstofur að sjálfsögðu.

Ég hélt, að þetta skildi hvert 12 ára barn, að það væri ekki verið að ætlast til þess að leggja sölusamtökin niður. Hvenær hefur hv. þm. eða aðrir þm. eða aðrir heyrt mig tala gegn sölusamtökum fiskframleiðenda í þessu landi? Aldrei. Ég stend einhuga með þeim og met mikils þeirra störf. En það, sem hér veltur á mestu, er það, að það vantar að mynda einhverja heildarstofnun fyrir sjávarútveginn, þar sem allir aðilar eiga rétt á að mynda heildarstefnuna, bæði þeir, sem afla frumhráefnisins, þeir, sem selja það, þeir, sem lána til þess, og ríkisvaldið, og með þessu frv. er gert ráð fyrir því, að sá maður, sem fer með æðstu stjórn sjávarútvegsmála, sjútvmrh., skipi formennsku í slíku ráði. Það er hvergi nú nein stofnun, þar sem launþegar eiga aðild að. Það er þróunin í flestum öðrum löndum, að launþegarnir fylgjast meira með gangi fyrirtækjanna til þess að það vaxi skilningur meðal þeirra á því, hvernig fyrirtækin ganga, en ekki fara með neitt pukur og deila svo alltaf, þegar á að taka ákvörðun um fiskverð eða kaup og kjör, hvort það verði borgað of mikið eða of lítið. Ég endurtek það, sem ég sagði hér fyrir tveimur dögum, að ég tel það þýðingarmikið í okkar þjóðfélagi að hefjast handa um að skapa aukinn skilning hér á milli, en ekki skipta sér í tvær andstæðar fylkingar, sem líta á sig sem andstæðinga, sem aldrei geti náð saman, nema komi til verkfalla eða deilna í þjóðfélaginu.

Mér skildist á hv. ræðumanni, að ég vildi leggja niður frystihús í landinu, og láta fiskimálaráð stjórna öllum frystihúsum á Íslandi. Þetta er alger misskilningur. Ég tel, að mörgum frystihúsum á landinu hafi verið mjög vel stjórnað, og ég vil mjög gjarnan og eindregið hafa þau frystihús undir þeirri stjórn, sem þau hafa verið á undanförnum árum. Þessir aðilar margir hverjir hafa öðlazt það mikla reynslu og hafa sýnt hæfni sína til að stjórna þessum fyrirtækjum. Ég skal ekkert hafa á móti því, sem hv. ræðumaður sagði varðandi sína heimabyggð. En hitt ætla ég að endurtaka, að ég veit um, að það hafa verið byggðar fiskverkunarstöðvar á ýmsum stöðum á landinu, þar sem hraðfrystihús eru fyrir og þar sem ekki hefur orðið nein aukning á hráefni, og það hefur orðið til þess, að hraðfrystihúsin hafa fengið minna hráefni en áður var.

Ég segi það fyrir mitt leyti: ég tel fullkomna ástæðu til, að það ráð, sem hér er ráð fyrir gert, móti heildarstefnu. Það á ekki að fara að taka ákvörðun í hverju einstöku máli, hvar eigi að lána, en það þarf að móta heildarstefnu í þessum málum, en hún hefur ekki verið fyrir hendi. Hvað er eðlilegra en allir þeir aðilar, sem að sjávarútvegi vinna, komi saman í slíku ráði sem þessu og skiptist þar á skoðunum, reyni að ná samvinnu á sem víðtækastan hátt? Og hvaða ástæðu hefur hv. ræðumaður til þess að leggja mér í munn það, sem hann gerði hér í sinni ræðu? Ég hygg, að hver einasti hv. þm. skilji auðveldlega þetta stuttorða frv., en þar segir, að fiskimálaráð skuli vera ráðgefandi um mótun heildarstefnu í uppbyggingu sjávarútvegsins og í markaðsmálum og skuli beita sér fyrir góðri samvinnu allra aðila, sem hlut eiga að máli, með gagnasöfnun, umræðufundum, skýrslugerð, útgáfu- og fræðslustarfsemi og öðrum ráðum, sem líklegust eru talin til þess hverju sinni, að tilganginum með stofnun ráðsins verði náð. Býst nokkur við því, að frv., sem hefur þennan tilgang, muni leiða til þess, að þeir aðilar, sem ættu þar sæti, kæmu fram með till. um að leggja niður ákveðin sölusamtök? Ég hygg, að það detti engum manni í hug og ekki einu sinni hv. síðasta ræðumanni, ef hann vill hugsa um þetta mál í alvöru og lesa frv., eins og það liggur hér fyrir.

Þá gerir frv. ráð fyrir því, að ályktanir sínar um uppbyggingu fiskiskipastólsins skuli fiskimálaráð við það miða, að jafnan sé sem mest fjölbreytni í útgerðinni og eðlilegt jafnvægi milli einstakra greina hennar. Miða skal till. ráðsins við það, að hráefnisöflun til fiskiðnaðarins sé tryggð eftir föngum með tilliti til arðsemi fiskistofna á hverjum tíma. Síðan segir, að ályktanir sínar um uppbyggingu fiskvinnslu- og fiskiðnaðarfyrirtækja skuli ráðið semja þannig, að tillit sé tekið til æskilegrar dreifingar fyrirtækjanna og við það miðað, að afkastageta þeirra sé hæfileg með hliðsjón af mögulegri öflun hráefnis. Og það skiptir miklu máli, ef verið er að auka útgerð á einum stað og auka hráefnisöflunina þar með, að þá sé um leið aukin fiskvinnsla á þeim stað. Hitt skiptir aftur líka miklu máli, að það sé ekki verið að fjölga fiskvinnslustöðvum á stöðum, þar sem hráefnisöflunin stendur í stað eða fer minnkandi. Þar er ekki þörf fyrir fleiri fiskverkunarstöðvar, alveg eins og á hinum staðnum er þörf fyrir fleiri fiskverkunarstöðvar, ef það verður stórkostleg aukning á útgerð og hráefnisöflun. Þetta hélt ég, að lægi svo ljóst fyrir, að um það þyrfti ekki að vera að deila.

Hv. þm. sagði hér fyrir tveimur dögum, að það væri allt annað mál, stofnun iðnþróunarráðs, því að iðnaðurinn hefði sitt fasta og ákveðna hráefni, en hitt væri svo óöruggt, það sem lyti að sjávarútvegi, því að fisköflun væri auðvitað háð, eins og við allir vitum, bæði aflabrögðum og veðráttu. Ég segi aftur fyrir mitt leyti, að þá tel ég, með allri virðingu fyrir stofnun iðnþróunarráðs, sem er alveg sjálfsögð ráðstöfun, og allir, sem að iðnaði standa, hafa fagnað stofnun þess ráðs, en ég tel ekki síður, heldur miklu frekar þörf fyrir að stofna ráð eins og fiskimálaráð, því að þar sem óvissan er mest, þar ríður mest á, að skipulagningin sé í beztu lagi. Annars skil ég ekki þá hræðslu, sem hefur leynt sér á bak við ræðuflutning hv. þm., bæði hér fyrir tveimur dögum og eins nú í dag. Hann hefur í raun og veru aldrei komið inn á það. Höfuðmarkmið þessa máls er að færa þá aðila saman undir einni stofnun, þannig að þeir geti rætt um þennan atvinnuveg hver frá sínu sjónarmiði og reynt að ná sem beztri samvinnu og beztum árangri fyrir sjávarútveginn. En þetta frv. er ekki flutt í þeim tilgangi að gera sjávarútveginum illt, og það fannst mér allhart og harður dómur, sem hv. þm. lauk ræðu sinni með hér áðan.