07.03.1968
Neðri deild: 70. fundur, 88. löggjafarþing.
Sjá dálk 1713 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)

61. mál, Fiskimálaráð

Frsm. (Birgir Finnsson):

Herra forseti. Ég hlýt að taka undir það með hv. 4. þm. Vestf., að það sé harður dómur af hálfu hv. 3. þm. Sunnl. um þetta mál, að það sé beinlínis hættulegt sjávarútveginum. Ég átti satt að segja ekki von á því, að hann felldi það harðan dóm um málið hér í hv. þingdeild. Í sjútvn. kom það að vísu fram, að hann væri andvígur málinu, en andstaða hans gegn því var þó ekki harðari en svo, að hann hefur ekki séð ástæðu til þess að gefa út sérstakt nál. um það.

Hv. 3. þm. Sunnl. hefur bæði í ræðu sinni hér áðan og við 1. umr. á dögunum lagt mikið upp úr því, að aðeins 5 aðilar af þeim, sem taldir eru upp í 7. gr. frv., hafi sent jákvæðar umsagnir um frv. Þessar umsagnir eru að vísu frá s. l. ári. Eins og hv. þm. muna, var þetta frv. hér til meðferðar seint á síðasta þingi og varð þá ekki útrætt. Þegar við tókum málið fyrir að nýju í sjútvn. að þessu sinni, var búið að bæta við í 7. gr., ef ég man rétt, a. m. k. tveim aðilum til viðbótar þeim, sem þar voru upp taldir á s. l. ári. Það var beinlínis gert eftir tilmælum frá þeim sjálfum, þannig að við þessa 5, sem áður svöruðu jákvætt, tel ég að megi nú a. m. k. bæta þessum tveimur, sem nú er bætt þarna inn í. Í sjútvn. minnist ég þess nú ekki, að þess væri óskað, að málið yrði á ný sent til umsagnar, sem auðvitað hefði verið hægt að gera. Menn töldu yfirleitt, að frá þeim aðilum, sem þarna eiga hlut að máli, væri ekki að vænta andstöðu gegn frv., og það hygg ég að hafi verið ástæðan fyrir því, að þeim var ekki sent málið til umsagnar.

Þetta var eiginlega það, sem kom mér til að kveðja mér hljóðs. En eftir ræðuflutning hv. 3. þm. Sunnl. vil ég undirstrika það, að ég hygg, að hann misskilji þetta mál allhrapallega, ef hann telur, að með þessu litla frv. sé sjávarútveginum stofnað í einhverja hættu. Eins og ég gat um í framsögu fyrir nál. meiri hl. n., er ætlazt til þess, að fiskimálaráð verði fyrst og fremst ráðgefandi stofnun, þar sem þeir aðilar, er mesta þekkingu og reynslu hafa á málefnum sjávarútvegsins, beri saman ráð sín. Hv. 3. þm. Sunnl. gat þess, — ég hygg, að það hafi verið fyrir tveim dögum, — að nægilegar upplýsingar lægju fyrir hjá þeim einstöku stofnunum, sem þarna ættu aðild að, um afkomuhorfur og annað, er máli skiptir í sambandi við sjávarútveginn. Það mun að vísu rétt, að ég hygg, að hjá einstökum aðilum, eins og hjá sölusamböndunum, liggi fyrir margvíslegar upplýsingar. En það snertir bara hverja grein fyrir sig. Það er engin stofnun til í landinu, sem hefur heildaryfirsýn yfir þessi mál, ekki aðeins með tilliti til fjárfestingar, því að það er ekki nema einn þátturinn í því, sem fiskimálaráði er ætlað að annast, — heldur líka með tilliti til markaðskönnunar og markaðsrannsókna. Ég mundi t. d. segja, að slík stofnun hefði verið mikils virði fyrir þá aðila, sem fyrir nokkrum árum ruku upp til handa og fóta og keyptu grásleppuhrogn dýrum dómum. Ef það hefði verið til einhver stofnun viðlíka og nú er hugsað að koma á fót með fiskimálaráði, þá hefði hún getað sagt þessum aðilum, hvað markaðurinn þoldi mikið af grásleppuhrognum. Það er einmitt á þessu sviði, sem ég hygg, að fiskimálaráð geti gert mjög mikið gagn. Það er ekki heldur alltaf, sem það er til góðs að láta útgerðarmenn og sjómenn fara algerlega eftir eðlishvöt um það, hvaða stærð fiskibáta þeir kaupa og gera út. Það mundi í mörgum tilfellum vera affarasælla, ef þeir gætu fengið ráð og leiðbeiningar bæði um aflahorfurnar, þótt óvissar séu og Hafrannsóknastofnunin sé oft vefengd í þeim efnum, svo og um söluhorfur á einstökum tegundum, eins og á frystum fiski, saltfiski og skreið. Ég hygg, að eins og málin hafa þróazt á s. l. ári, hefði verið miklu æskilegra, að við hefðum í sjávarútveginum lagt meiri áherzlu á framleiðslu saltfisks heldur en t. d. skreiðar. Það hefur kannske verið erfitt að gera sér grein fyrir þessu í byrjun vertíðar í fyrra. Það má segja, að það hafi ekki verið hægt að sjá fyrir, hversu hrapallega mundi fara um skreiðarmarkaðinn, en á hinn bóginn lá það fyrir í fyrrahaust og allt s. l. ár, að verð á saltfiski var mun betra en á nokkurri annarri framleiðslutegund, og því hefði verið gott, að einhver ráðleggingarstofnun hefði verið til, sem hefði getað bent þeim aðilum, er með þessa framleiðslu fara, á það og brýnt fyrir þeim að leggja meiri áherzlu á saltfiskverkun en gert hefur verið. Og satt að segja býst ég við, að undanfarin ár höfum við ekki lagt nægilega áherzlu á saltfiskmarkaðinn, a. m. k. ekki á þurrfiskmarkaðinn.

Það er óteljandi margt þessu líkt, sem hugsað er sem verkefni einmitt fyrir fiskimálaráð. Ég gat þess í framsöguræðu minni, að á s. l. ári, þegar málið var hér til umr., hafi verið að því fundið af þeim, sem gagnrýndu málið þá, að fiskimálaráði væri ekki ætlað nógu mikið vald og ekki nógu mikil fjárráð. Ég get fyrir mitt leyti vel hugsað mér, að við þyrftum að koma hér upp stofnun, sem hefði meira valdsvið en fiskimálaráði er ætlað. En ég tel þó, að með fiskimálaráði samkv. þessu frv. verði komið upp vísi að slíkri stofnun. En hún þarf vitanlega, eins og allt annað, að þróast og þarf tíma til að þróast.

Ég sé svo ekki ástæðu til, herra forseti, að lengja þessar umr. meira. Ég endurtek það fyrir hönd meiri hl. sjútvn. þessarar hv. d., að við mælum með því, að frv. verði samþ.